Heimsmynd - 01.10.1991, Page 74
Sannleikurinn er sá að
árafjöldinn skiptir
ekki máli þegar
kvenleg fegurð er
annars vegar. Það að
vera þrítug, fertug,
fímmtug eða sextug
og líta út fyrir að
vera jafn gömul og fæðingar-
skírteinið segir til um er alls
ekki það sama og líta illa út,
ekkert frekar en það að vera
tvítug er trygging fyrir því að
vera gullfalleg. Eitthvað ann-
að og meira liggur að baki
góðu útliti en það að hafa
hrukkulausa húð og grannan
líkama. Öll viljum við líta
eins vel út og kostur er. Því
sætir það furðu hversu al-
gengt er að sjá konur mis-
þyrma útliti sínu. Þær gera
ýmis glappaskot þegar þær
snyrta andlit sitt og klæðast
sem gera það að verkum að
þær líta út fyrir að vera tíu
árum eldri en þær í raun eru.
Það er ekki hin eiginlega og
óumflýjanlega hrörnun
holdsins sem spillir mest feg-
urð kvenna heldur sú þreyta
og deyfð sem gerir það að
verkum að frísklegt yfírbragð
hverfur úr andliti og fasi við-
komandi. Þá fyrst verður
fólk gamalt, sama hvað árin
eru mörg.
Fæst höfum við þekkingu
til að laga það sem rangt er
gert en verjum miklum tíma í
vangaveltur um hvað hægt sé
að gera til að snúa blaðinu
við. Ráð sérfróðra geta hér
sparað mikinn tíma og
áhyggjur. HEIMSMYND
leitaði upplýsinga hjá þremur
snyrtisérfræðingum, hár-
greiðslumeistara, fatahönn-
uði, sálfræðingi og útlitsráð-
gjafa, um það hvað að þeirra
mati gerir fólk ellilegt og
hvað ekki.
Andlitið ræður án efa hvað
mestu um það hvort mann-
eskja telst líta vel eða illa út.
Streita og þreyta setja fljótt
mark sitt á andlitið og mörg-
um reynist erfitt að fela slíkt
með farða. Guðrún Þor-
bjarnardóttir snyrtisérfræð-
ingur og eigandi snyrtistof-
unnar Saloon Ritz leggur
megináherslu á að konur gefi
sér nægan tíma þegar þær
farða andlitið. „Aðalatriðið
er að gera vel og frekar
minna en meira.“ Þykkur
farði gerir það að verkum að
kona lítur út fyrir að vera
74 HEIMSMYND
mun eldri en hún í raun er.
Astæðan er sú að farðinn sest
í allar glufur og línur og dreg-
ur þær fram í stað þess að
fela. Því ættu eldri konur
frekar að nota léttan farða en
þykkan. í raun gildir þetta
um allar konur sem vilja líta
unglega út. „Farða á að nota
til að fela lýti í andliti,
„bendir Ásta Hannesdóttir
snyrtisérfræðingur á snyrti-
stofunni Kristu á. Þegar ár-
unum fjölgar fjölgar æðaslit-
um, roða og þurrkublettum í
húðinni. Farði er kjörinn til
að hylja slíkt. Best er að nota
léttan farða eða jafnvel litað
dagkrem á allt andlitið en
síðan þykkari til að fela lýtin.
Aðalatriðið er þó að fara
mjög sparlega með hann og
ágætt getur verið að nota
pensil til að bera farðann á.
Litavalið skiptir einnig miklu
máli. Heiðar Jónsson snyrtir
bendir á það sem meginreglu
að konur ættu alltaf frekar að
nota ljósan farða en dökkan.
„Dökkur farði eldir. Það
skiptir ungar stúlkur ef til vill
ekki máli þótt þær líti út fyrir
að vera tíu árum eldri, en
það fer að gera það þegar
þær eru komnar yfir þrítugt.“
Þumalfingursreglan er að
velja alltaf farða sem er ein-
um litatóni ljósari en húðin.
„Þannig er líka komið í veg
fyrir áberandi litamun andlits
og háls,“ bendir Guðrún á.
Hún leggur jafnframt áherslu
á nauðsyn þess að gefa sér
nægan tíma til að bera farða
á andlitið ef sjónin er tekin
að dofna. „Konur ættu að
gæta þess að hafa nægilega
birtu og stóran spegil til að
sjá vel til. Svampar sem fá
má í flestum snyrtivöruversl-
unum eru sérlega vel til þess
fallnir að dreifa úr andlits-
Þy)
ykkur farði
sest í glufur og
fínar línur í húð-
inni og gerir það
að verkurn að kon-
an lítur út fyrir
að vera mun eldri
en hún í raun er.
farða þannig að áferðin verði
jöfn.“
„Augun eru ásamt hálsin-
um það fyrsta sem lætur á
sjá. Þess vegna skiptir miklu
að hugsa vel um umgjörð
augnanna,“ segir Ásta. „Mér
finnst konur oft hirða illa um
augnabrúnir sínar og gæta
þess ekki að lita augnhárin
reglulega. En það verður líka
að gæta þess að of mikill
augnabrúnalitur gefur andlit-
inu hörkulegan svip,“ bætir
hún við. Heiðar bendir hins
vegar á að sitt hvort gildi
þegar Ijóshærðar og dökk-
hærðar konur eiga í hlut.
„Þær ljóshærðu verða að
passa að dekkja augnabrún-
irnar en þær dökkhærðu að
lýsa þær til samræmis við
hárið sem tekið er að grána.“
Þegar augun eru máluð
ætti jafnan að fara nokkrum
sinnum yfir augnlokið þannig
að farðinn nái að þekja vel
en verði ekki gloppóttur.
Allt of algengt er að sjá eldri
konur illa málaðar um augun
vegna þess að þær sjá ekki
lengur nógu vel til og gefa sér
ekki nægan tíma. Engu að
síður gildir sú regla hér að of
mikill augnskuggi sest í fell-
ingar og rennur frekar til.
Sanseraðir litir eru sérlega
óheppilegir af þessari ástæðu
og því er æskilegt að forðast
þá og nota heldur matta. Nú
orðið er hægt að fá sérstök
krem til að bera undir augn-
skuggann sem gera það að
verkum að hann rennur síður
til.
Kinnalitur getur gefið and-
litinu líf en hann ætti þó að
nota sparlega. Algengur mis-
skilningur er að með því að
bera hann undir kinnbeinin
virðist þau hærri. Það rétta
er að flestum fer best að nota
hann aðeins efst á kinnbein-
inu við hársvörðinn. Kinna-
litur ætti að vera lítt áberandi
og í samræmi við húðlit við-
komandi. Guðrún bendir á
að það gefi góða raun að
púðra létt yfir kinnalitinn að
lokum til að dreifa honum
enn frekar. „Púður ætti þó
að nota varlega,“ segir Heið-
ar. „Þykkt lag er mjög áber-
andi og líkt og mikill andlits-
farði eldir það andlitið."
Varalitur fer eldri konum
mjög vel. Hann gefur mikinn
lit og sparilegt yfirbragð.
Sterkir æpandi litir klæða
sjaldan konur sem komnar
eru yfir miðjan aldur. Þær
ættu því frekar að nota bjarta
og ljósa varaliti. Það er engin
ástæða til að spara notkun
varalits, því bjartur litur sem
fer andlitinu vel getur einmitt
gefið unglegt og lifandi yfir-
bragð.
Þreyta og streita valda því
að andlitið fær ellilegt yfir-
bragð og sömuleiðis ónógur
svefn og reykingar. Því er
það ágætt ráð að gefa sér
tíma til að slaka vel á öðru
hvoru, þó ekki sé nema stutt-
an tíma á hverjum degi.
Heitt bað eða fimm mínútna
blundur getur gert mikið fyr-
ir útlitið og dregið úr streitu-
merkjum í andliti og líkama.
„Kalt fótabað gerir heilmikið
fyrir mig,“ segir Ásta en
bendir jafnframt á að ódýr-
asta og án efa eitt besta ráð-
ið sé að brosa framan í
heiminn. Þessari speki er erf-
itt að hafna enda ekki
bara að brosið sýni létta lund
viðkomandi heldur togar
það beinlínis andlitið upp á
við.
K^Jtroff á peysu
sem dregin er nið-
ur fyrir lceri til að
hylja þau dregur
athyglina enn
frekar að þeim.
Grátt hár tengist ellinni
órofaböndum. Elsa Haralds-
dóttir á Saloon Veh hvetur
konur til að nýta sér þær
miklu framfarir sem orðið
hafa í hárlitun og deyfa gráu
hárin. „Konur þurfa að taka
mið af húðlit sínum þegar
þær ákveða háralitinn. Það
eru ekki margar konur sem
hafa þann bjarta og ferska
húðlit sem er fallegur með
hvítu eða gráu hári. Ef húðin
er gráleit, eða jafnvel gulleit
eins og í flestum tilvikum, er
fallegra að halda litatóninum
í stað þess að láta hárið
grána. Eg myndi líka ráða
konum frá því að ganga of
langt í háralitun. Sú sem hef-
ur verið mjög dökkhærð um
þrítugt ætti frekar að fara út í
strípur þegar grá hár fara að
HEIMSM917-6