Heimsmynd - 01.10.1991, Page 80
FITUFALS
7. Að klæðast gúmmí-
fatnaði er grennandi.
Pað er algengur misskilning-
ur að með því að klæðast
gúmmífatnaði brenni fitan
hraðar. Það eina sem á sér
stað er tímabundið vökvatap
sem líkaminn vinnur upp um
leið og viðkomandi drekkur
vökva. 8. Megrunarkúrar
sem ganga út á að
borða eða sleppa
ákveðnum fæðuflokk-
um eru árangursríkir.
Framboð á slíkum megrun-
arkúrum hefur verið gífur-
legt á undanförnum áratug-
um. Einn slíkur boðaði að
óhætt væri að borða alla þá
fitu og allt það prótein sem
hugurinn girntist svo lengi
sem kolvetnum væri sleppt.
Annar, hinn þekkti Scars-
dale kúr, felst í því að borða
aðeins prótein. Höfundur
hans, Doktor Stillman, hélt
því fram að líkaminn þyrfti
meiri orku til að brjóta nið-
ur og melta svo stórar sam-
eindir og prótein eru. Það er
óhætt að hætta að brjóta
heilann um hver af þessum
kúrum sé bestur, eina leiðin
til að grennast er að borða
minna, draga úr fituneyslu
og hreyfa sig meira. 9.
„Cellulite“, svokölluð
appelsínuhúð, er annað
en fita. Konur tóku kenn-
ingum um að hin hvimleiða
appelsínuhúð væri eitthvað
annað og óviðráðanlegra en
venjuleg fita fegins hendi.
Snyrtivöruframleiðendur og
nuddarar voru fljótir að
bregðast við og tóku að
bjóða konum undralyf og
meðferðir sem áttu að herja
á þennan dulafulla óvin. Nú
hafa læknar endanlega kveð-
ið upp úrskurð sinn, appels-
ínuhúð er venjuleg fita og
ekkert annað. Eina leiðin til
að vera laus við hana er að
hreyfa sig og borða minna.
10. Megrunarpillur gera
gagn. Því miður, enn ein
lygin. Ef svo væri hefði of-
fituvandamálið verið leyst.
Allir væru grannir og glæsi-
legir og framleiðendur þessa
undralyfs væru margfaldir
milljónerar. 11. Réttur
þrýstingur á eyrna-
snepilinn dregur úr
matarlyst. Tómt rugl, slík-
ar stungur í eyra hafa aðeins
þau áhrif að valda sársauka
og auka líkur á ígerð í
eyrnasnepli. 12. Aö boröa
sætindi fyrir máltíö
dregur úr matarlyst.
Hættulegur misskilningur
það. Hver man ekki eftir
Diet Ayds karamellunum
sem átti að borða rétt fyrir
mat? Áhrif þeirra voru að
þær hækkuðu blóðsykurinn
skyndilega þannig að við-
komandi varð lystarlaus
næstu klukkustundina en um
leið og blóðsykurinn tók að
falla á ný braust fram mikil
og knýjandi þörf fyrir meiri
sykur. Niðurstaðan varð því
oftast sú að fólk fitnaði með
tímanum í stað þess að létt-
ast. 13. Hægt er að
grennast á tilteknum
svæöum líkamans. Þótt
gerðar séu læraæfingar
brennir maður ekki bara fitu
á lærum. Vissulega hafa æf-
ingarnar þau áhrif að vöðvar
á þessu svæði verða stinnir
og hugsanlega fallegri í lag-
inu en þær hitaeiningar sem
líkaminn brennir við æfing-
una fara jafnt af öllum lík-
amanum. 14. Líkamsrækt
sem krefst ekki
áreynslu. Til þess að lík-
aminn fái hreyfingu sem að
gagni kemur verður hann
sjálfur að nota orku. Full-
frískt fólk verður að láta sig
hafa það að hreyfa vöðvana
sjálft vilji það byggja líkam-
ann upp og ná í leiðinni af
oq sér aukakílóunum. 15. Til
5 aö benna fitu verður aö
1 reyna svo mikið á sig
o aö maöur finni brunann
g í vöövunum. í ljós hefur
^ komið að líkaminn brennir
5 hraðast fitu þegar hjart-
slátturinn er um það bil 50
til 60 prósentum hraðari en
þegar hann er í hvfld. I þeim
brunaæfingum sem hingað til
hafa verið taldar þær áhrifa-
ríkustu eins og eróbikk er
hjartslátturinn 65 tjl 80 pró-
sentum hraðari en í hvíld.
Það borgar sig sem sagt að
ofgera sér ekki í leikfiminni.
16. Vökvakúrar virka.
Slíkir kúrar eru oft mjög
hitaeiningasnauðir, aðeins
300 til 900 hitaeiningar á
dag. í ljós hefur komið að
slíkt svelti skilar sér ekki
þegar til lengri tíma er litið
auk þess sem það getur haft
slæm áhrif á heilsu viðkom-
andi.
HRUKKUR
17. Andlitsleikfimi vinn-
ur gegn hrukkumyndun.
Ekki aldeilis, staðreyndin er
að slíkar grettur valda
hrukkum líkt og öll önnur
notkun andlitsvöðva. Besta
leiðin til að verjast hrukkum
er að hreyfa aldrei andlitið,
en það hefur jú sína augljósu
galla. 18. Andlitsnudd,
heföbundiö eöa meö
sérstökum rafmagns-
pólum, dregur úr hrukk-
um sem fyrir eru. Rangt,
af sömu ástæðu og að and-
litsleikfimi vinni gegn hrukk-
um. Rafmagnið stuðar
vöðva í andliti og veldur því
að þeir herpast saman stund-
arkorn er fara síðan aftur í
gamla farið. 19. Aö
strekkja á hrukkum
meö límbandi hjálpar
til viö aö eyöa þeim.
Þetta var vinsælt ráð á fyrri
hluta aldarinnar en fáar kon-
ur reyna það í dag, sem bet-
ur fer, því þetta er vita-
gagnslaust. Það sama er að
segja um undirhökuólina
20. sem konur hafa sofið
með til að reyna að vinna
gegn því að undirhaka
myndist. 21. Krem sem
innihalda estrógen
geta dregiö úr hrukk-
um. Þar sem líkami ungra
kvenna er ríkari af estrógen
hormónum átti að bæta eldri
konum þennan skort með
því að bera hormónana
beint á húðina í kremformi.
Niðurstöður rannsókna
sýndu hins vegar að slík
krem höfðu engin áhrif á