Heimsmynd - 01.10.1991, Page 95

Heimsmynd - 01.10.1991, Page 95
verkalýðshreyfingarinnar og ríkisstjórn- arinnar 1964 þegar Breiðholtsfram- kvæmdir voru ákveðnar. Milli Finnboga Rúts og Bjarna Benediktssonar forsætis- ráðherra ríkti djúp vinátta frá gamalli tíð. I átökunum miklu, sem urðu í Alþýðubandalaginu á árunum 1967 til 1970, var Finnbogi Rútur talinn sterki maðurinn á bak við Hannibal og arkitekt Samtaka frjálslyndra og vinstrimanna. Á Marbakka var ráðið ráðum og þar var líka til reiðu Styrmir Gunnarsson, tengdasonur Finnboga Rúts, til að koma frásögnum af innanflokksmálum Alþýðubandalagsins í Morgunblaðið - ef henta þurfti. Finnbogi Rútur Valdimarsson er án efa einhver sérstæðasti stjórnmálamaður þessarar aldar, fjölgáfaður og margbrot- inn maður og áhrif hans ekki öll enn komin upp á yfirborð sögunnar. Jón Baldvin Hannibalsson, bróðursonur hans, sagði í minningargrein að margar andstæður eða þversagnir hefðu verið í fari hans: „sérfræðingur í alþjóðamálum sem gerðist tribunus populus fátæks fólks í berangri Kópavogs, hinn róttæki vinstrisinni sem fyrirleit kommúnista og alla þeirra fólsku og fordæðuskap, hinn margræði menntamaður og einfari sem gerðist mesti kosningasigurvegari lýðveldissögunnar og naut einstakrar hylli alþýðufólks, klassíker sem gerðist byltingamaður í blaðamennsku og áróð- urstækni . . .“ Kona Finnboga Rúts var Hulda Jak- obsdóttir og eignuðust þau fimm börn. Eina dóttur átti Finnbogi Rútur fyrir með Sigríði Guðjónsdóttur. Börn hans: 1. Auður Rútsdóttir (f. 1928), ritari við sendiráð íslands í Osló. 2. Elín Finnbogadóttir (f. 1937) kenn- ari, gift Sveini Hauki Valdimarssyni hæstaréttarlögmanni. Sonur hennar er Finnbogi Rútur Arnarson (f. 1957), sendifulltrúi í utanríkisþjónustunni. 3. Gunnar Finnbogason (f. 1938) í Kópavogi. 4. Guðrún Finnbogadóttir (f. 1940). Hún var gift Ahdel Fattah Jabali lækni frá Palestínu. Synir þeirra eru Fadh Fal- ur Jabali (f. 1963) og Ómar Jabali (f. 1976). 5. Sigrún Finnbogadóttir (f. 1943), gift Styrmi Gunnarssyni, ritstjóra Morgun- blaðsins. Dætur þeirra eru Hulda Dóra Styrmisdóttir (f. 1965), fréttamaður á Stöð 2, og Hanna Guðrún Styrmisdóttir (f. 1967), við nám í Frakklandi. 6. Hulda Finnbogadóttir (f. 1948), gift Smára Sigurðssyni rannsóknarlögreglu- manni, starfsmanni hjá Interpol í París. Börn þeirra eru Gunnar Smárason (f. 1967) háskólanemi, Elín Björg Smára- dóttir (f. 1968) háskólanemi og Hrafn- hildur Huld Smáradóttir (f. 1975). HIN SYSTKININ OG AFKOMEND- UR ÞEIRRA Elsta systir þeirra Hannibals og Finn- boga Rúts var Guðrún Valdimarsdóttir (1898-1990) ljósmóðir. Hún var Ijósmóðir á ýmsum stöðum á Vestfjörðum á árun- um 1920 til 1933. Eftir það var hún stöðvarstjóri Landsímans í Hveragerði 1934 til 1944. Þá var hún starfandi ljós- móðir í Reykjavík og starfrækti meðal annars eigið fæðingarheimili á árunum 1947 til 1961. Maður hennar var Kjartan Helgason sjómaður í Hnífsdal en hann drukknaði 1924. Sonur þeirra: Amerísku „Sealy“ rúnjin eru alveg ómótstæðileg. Þau eru hönnuð í samróði við færustu beinasérfræðinga Bandaríkjanna. Tvær þykkar dýnur, undir- og yfirdýna, sem fjaðra saman og nó þannig að gefa þér góðan nætursvefn ón bakverkja að morgni. 5—15 óra óbyrgð. Höfum einnig rúmgafla, nóttborð og rúmföt í miklu úrvali. Marco, Langholtsvegi 111, sími 680690. Opið alla virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 11-14 HEIMSMYND 95
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Heimsmynd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.