Heimsmynd - 01.11.1991, Blaðsíða 10
FRA RITSTJORA
La Dolce Vita
s
meðan Róm brennur eru ráða-
menn þjóðarinnar í reisum um
víða veröld. Sex hjón fóru á kostn-
að hins opinbera á fund alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins í Bangkok í Tailandi í októ-
ber. Um þriðjungur háttvirtra þingmanna var
fjarverandi erlendis á sama tíma nýverið. Þá
hefur æðsti embættismaður þjóðarinnar, for-
seti lýðveldisins, verið í opinberum erinda-
gjörðum erlendis í 54 daga fyrstu 40 vikur árs-
ins enda hefur kostnaður við það embætti
tvöfaldast í hennar tíð. Ráðherrar neita að
borga skatta af bifreiðum sínum. Eftirlit með
ferðakostnaði, dagpeningum, risnu, veislu-
höldum og fleiru sem snertir opinbert athæfi
er svo að segja ekkert.
Umræðan um kynferðislega áreitni hefur verið í brennidepli
í Bandaríkjunum undanfarið og segja má að hún eigi ekki síð-
ur við hér þegar litið er á atferli karlanna á toppnum á meðan
íslenskar konur eru ævilangt dæmdar til að vera hálfdrættingar
þeirra í launum. Nýjustu skattaskýrslur hafa leitt í ljós að ís-
lenskar konur ná því ekki á neinu aldursskeiði að verða hálf-
drættingar í launum á við karlkyns jafnaldra sína. Fyrirmenn-
irnir sem sátu fundinn í Bangkok hafa ugglaust hneykslast á
því hvernig tailenskum konum er þrælað út. Maður sér þá fyr-
ir sér á Oriental-hótelinu, vermandi koníaksglösin sem við
bjóðum þeim upp á, eftir erilsaman fund þann daginn og
annasaman verslunartúr því einhvernveginn verður að koma
dagpeningunum í lóg. Þeir hafa hrist höfuðin yfir þeirri stað-
reynd sem allir ferðamenn í Tailandi hafa upplifað - konur
þar eru þrælar hins kynsins. Menn verða alltaf að hafa svarta
mynd til samanburðar. Slíku hlutverki hafa einræðisstjórnir
kommúnistaríkjanna gegnt fram til þessa, hin spilltu stjórn-
völd sem arðrænt hafa varnarlausan múginn.
Tímaritið Time veittist harkalega að þingliðinu á Capitol
Hill nýverið. Segir blaðið að spillingin þar ríði ekki við ein-
teyming og líkir ástandinu á þingmönnum bandarísku þjóðar-
innar við stjórnvöld Sovétríkjanna áður en kommúnistaflokk-
urinn var lagður niður. Time gerir því skóna að forréttindi for-
ystunnar á kostnað skattborgara falli illa að því
efnahagsumhverfi og kreppu sem nú ríkir í
Bandaríkjunum. Enn fremur spyr þetta
íhaldssama blað hvað geti betur framkallað
uppþot eða byltingu meðal almennings en
slíkt athæfi af hálfu hinnar lýðkjörnu forystu.
íslenskir fjölmiðlar eru einnig farnir að
velta slíku fyrir sér. A undanförnum vikum
hefur orðið gerbylting í fjölmiðlaumræðunni
hér - óbragðið sem menn eru komnir með í
munninn fær útrás í helgarpistlum, leiðurum
og jafnvel hinu virta Reykjavíkurbréfi Morg-
unblaðsins. Fólki er orðið þungt niðri fyrir.
HEIMSMYND hefur hamrað á þessu atferli
undanfarin ár í óþökk ráðamanna og sumra
hvimleiðra áhangenda þeirra sem lifa sam-
kvæmt þeirri formúlu að oft megi satt kyrrt
liggja. En þegar framtíðarmyndin er eins svört og hér við blas-
ir er mannfjandsamlegt og þjóðhættulegt að þegja yfir stað-
rejmdum.
Islenskur almenningur sættir sig ekki við atferli og viðhorf
ráðamanna. Það er stórkostleg móðgun við þjóðina að pred-
ika yfir henni þörfina á auknum álögum, auknu aðhaldi og
herðingu sultaróla á sama tíma og þetta fólk snertir varla ís-
lenska jörð í orðsins eiginlegustu merkingu.
Forsætisráðherra íslands sagði nýlega að við værum á leið
út úr skuggasundinu í átt til fagurrar veraldar. Við hver? Eða
á hann við að nú fái hann og hans samstarfsmenn loks að
kynnast óheftum dásemdum hins ljúfa lífs?
FRAMLAG
Ljósmyndarinn Bonni,
Björn Torfi Hauksson, tók
myndina af Lindu Péturs-
dóttur sem prýðir forsíðu
HEIMSMYNDAR að
þessu sinni. Bonni starfaði
um skeið hjá japanska ljós-
myndaranum Hiro í New
York en Hiro hefur í rúm
þrjátíu ár verið í hópi fræg-
ustu ljósmyndara heims.
Undir hans leiðsögn vann
Bonni meðal annars að
tískuþáttum fyrir tímaritið
Vogue og auglýsingamynd-
um af leikkonunni og fyrir-
sætunni heimsfrægu Isabellu
Rossellini, svo fátt eitt sé
nefnt. Starfsaðstaðan í New
York var að sögn Bonna all
frábrugðin því sem gerist hér
á landi og ekki óalgengt að
hátt í fimmtán manns ynnu
við hverja myndatöku þótt í
flestum tilfellum væri fyrir-
sætan aðeins ein. Samkeppn-
isandinn var mikill og allt
skipulagt út í ystu æsar enda
dugir lítið annað því eins og
hann bendir á eru heims-
þekktar fyrirsætur bókaðar
marga mánuði fram í tímann.
Áður en Bonni hélt utan
hafði hann unnið hér heima
um nokkurra ára skeið hjá
Mats Wibe Lund og í
Myndiðn auk þess sem
hann starfaði sjálfstætt.
Bonni naut aðstoðar fag-
manna við tökurnar á
Lindu Pétursdóttur. Um
förðun sá Kristín Stefáns-
dóttir hjá No Name en
Dúddi (hjá Dúdda) um hár-
greiðsluna. Fatnaður og
skartgripir eru frá verslun-
unum Sér og Gull og silfur
lánaði Lindu hina stórglæsi-
legu demanta sem hún
skreytir sig með.
10 HEIMSMYND