Heimsmynd - 01.11.1991, Blaðsíða 74
1973, en síðar yfirborgardómari í Reykjavík til 1987. Börn
þeirra eru: Ingvar Björnsson (f. 1944), lögmaður í Hafnarfirði,
Þorsteinn Björnsson (f. 1945), prentari í Hafnarfirði, og Björn
Björnsson (f. 1947), verslunarmaður í Hafnarfirði.
c. Jón Þorsteinsson (f. 1924), yfirlæknir lyflækningadeildar
Landspítalans og dósent við Háskóla íslands. Kona hans er
Lovísa Eiríksdóttir og eru börn þeirra: Sigríður Jónsdóttir (f.
1950), félagsfræðingur í Reykjavík, Eiríkur Jónsson (f. 1952),
dagskrárgerðarmaður við Bylgjuna, Margrét Jónsdóttir (f.
1958), bóndi og kennari á Hrafnkelsstöðum í Hrunamanna-
hreppi, Ingunn Jónsdóttir (f. 1958), kennari, og Þórunn Jóns-
dóttir (f. 1965), hjúkrunarnemi.
d. Þorgeir Þorsteinsson (f. 1929), lögreglustjóri. Hann var
bæjarfógetafulltrúi í Hafnarfirði 1956 til 1959, síðan
fulltrúi lögreglustjóra á Keflavíkurflugvelli og frá 1974
lögreglustjóri þar. Fyrri kona hans var Herdís
Tryggvadóttir og eru börn þeirra: Herdís Þorgeirsdóttir
(f. 1954), M.A.L.D. í alþjóðastjórnmálum, ritstjóri
Heimsmyndar í Reykjavík, Þorsteinn Þorgeirsson (f.
1955), hagfræðingur í Bandaríkjunum, Sigríður Þor-
geirsdóttir (f. 1958), í doktorsnámi í heimspeki, og
Ófeigur Tryggvi Þorgeirsson (f. 1960), læknir í Reykja-
vík. Eftir skilnað við Herdísi eignaðist Þorgeir dótturina
Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur (f. 1970). Núverandi kona
hans er Kristín Sveinbjörnsdóttir.
SIGRÍÐUR OG SVEINN
Sigríður Jónsdóttir (1891-1971) var næstelst systkinanna
frá Egilsstöðum. Hún stundaði nám í verslunarskóla í
Kaupmannahöfn, en var lengst af póst- og símstöðvar-
stjóri á Egilsstöðum. Hún var ógift og barnlaus.
Sveinn Jónsson (1893-1981), bóndi á Egilsstöðum, var
þriðji í röð barna Jóns Bergssonar og Margrétar Péturs-
dóttur. Það kom aðallega í hans hlut að halda uppi merki
föður síns sem stórbóndi og héraðshöfðingi og varð hann
landsfrægur fyrir rausn og skörungsskap.
Sveinn hóf nám í Búnaðarskólanum á Eiðum 1909 og
lauk því 1911. Veturinn 1912 til 1913 var hann á lýðskólan-
um í Askov í Danmörku og vann síðan á dönsku búi.
Heimkominn tók hann að mestu við bústjórn á Egilsstöð-
um, enda var faðir hans þá næstum orðinn blindur. Sveinn
var mikill íþróttakappi og gekkst fyrir árlegum íþróttamót-
um í Egilsstaðaskógi. Þótti glæsimennska einkenna þennan
unga mann, hvort sem var í limaburði, fasi eða framkvæmd-
um. Vorið 1920 hóf Sveinn eigin búrekstur á Egilsstöðum.
Var þá heimajörðinni og næstu jörð, Kolsstöðum, er Jón
faðir hans hafði keypt, skipt í tvö býli. I hlut Sveins kom
mest öll heimajörðin
HÉRAÐSHÖFÐINGINN
Sveinn Jónsson var talinn einhver glæstasti bóndinn og for-
inginn á Héraði og býli hans hið stærsta og vélvæddasta
eystra. Hélt hann þannig ótrauður uppi merki föður síns. Öll
gripahús reisti hann að nýju úr steinsteypu. Auk hefðbundins
búskapar var Sveinn ótrauður að fara nýjar leiðir og fékk til
dæmis snemma áhuga á skógrækt og fiskirækt.
Hann var hvatamaður að stofnun Skógræktarfélags Austur-
framhald á bls. 90
23. Jón Egill Sveinsson bóndi á Egilsstööum.
24. Ingimar Sveinsson skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri.
25. Jón Pétursson héraðsdýralæknir á Egilsstöðum.
26. Ólafur Stephensen Pátursson sem lést 23 ára af slysförum.
27. Margrét Pétursdóttir.
28. Áslaug Pétursdóttir.
74 HEIMSMYND