Heimsmynd - 01.11.1991, Blaðsíða 15
HNEYKSLI
í utanríkisþjónustunni
Margir spyrja sjálfa sig þessa dagana hvert utanríkisþjónustan eiginlega stefni ?
Um langan tíma hefur hún verið notuð sem elliheimili fyrir uppgjafa stjórnmála-
menn, uppskafninga í vinfengi við utanríkisráðherra hverju sinni, að ótöldum
flokksbrceðrum og -systrum, og vinum þeirra sem þegar eru í utanríkisþjónustunni,
eða gegna mikilvcegum embcettum.
Akvörðun utanríkisráðherra, Jóns Baldvins Hannibalssonar, að ráða Jakob Frí-
mann Magnússon popptónlistarmann í stöðu menningarfulltrúa hjá sendiráðinu í
London, hefur enn einu sinni ýtt við þeirri spurningu hvort allir hafi jöfn tcekifœri í
þessu þjóðfélagi eða eru
sumir jafnari en aðrir?
Það hefur löngum leg-
ið í loftinu að Jakob vœri
Alþýðuflokksmaður og
gekk hann reyndar
nýverið formlega til liðs
við flokkinn. Þetta mál
vakti ekki síst hneyksli
þar sem Jakob er svo að
segja tekinn beint af göt-
unni því venjan hefur
verið sú að menn starfi í menn mn 1 utanrikisþjónust-
: una-
einhver ár innan þjón-
ustunnar — til reynslu — áður en ákveðið er hvort skuli ráða þá til starfa í sendi-
ráðum. Ein af meginástceðunum fyrir þessum reynslutíma er vcentanlega sú að til-
vonandi sendifulltrúar þurfa að lcera ákveðin „diplómatísk“ samskipti áður en þeir
fara á vit ævintýranna. Auk þess hefur Jakob ekki háskólapróf en hefðin hefur verið
sú hingað til að menn hafi einhverjar gráður frá háskólum, ef ekki, þá víðtæka
starfsreynslu af alþjóðasamskiþtum.
Jón Baldvin Hannibalsson hef-
ur verið Iðlnn vlð að taka með
sár ættingja og pólitíska vildar-
Steingrímur Hermannsson:
Ráðning Jakobs Magnússonar
brýtur allar hefðlr.
Matthías Á. Matthlesen réð
fjölmarga unga menn í utanrík-
isþjónustuna í sinni ráðherra-
tíð. Enginn sem hann réð er
talinn bera „pólitískan óróa í
hjarta“.
eftir GUÐRÚNU KRISTJÁNSDÓ TTUR
HEIMSMYND 15
HEIMSM918-8