Heimsmynd - 01.11.1991, Blaðsíða 73
og flugsamgöngur orðnar það góðar að höfnin skipti ekki eins
miklu máli og áður. Par var reist verslunarhús, sláturhús,
frystihús, mjólkurbú og fleiri byggingar. Það var upphafið að
Egilsstaðaþorpi. Þar með var kaupfélagið eiginlega komið
heim til sín, á höfuðból ættarinnar.
Til marks um álit Þorsteins Jónssonar innan samvinnuhreyf-
ingarinnar má geta þess að hann var í stjórn SÍS í meira en
fjóra áratugi. Hann gegndi og fjölmörgum trúnaðarstörfum
innan héraðs og beitti sér til dæmis mjög fyrir stofnun Hall-
ormsstaðarskóla eins og reyndar foreldrar hans líka. Hann
þótti einn hinn skemmtilegasti maður í umgengni, léttur í
skapi, fyndinn og fjörugur í samræðum. Þorsteinn var Fram-
sóknarmaður eins og flestir kaupfélagsmenn og varð hann þar
viðskila við Svein, bróður sinn, á Egilsstöðum.
Eins og þeir Egilsstaðabræður allir var Þorsteinn mikill
hestamaður og annálaður ferðagarpur og lét sér ekki allt fyrir
. brjósti brenna. Fór hann hinar ótrúlegustu svaðilfarir um fjöll
og firnindi allt til gamals aldurs.
Eiginkona Þorsteins var Sigríður Kjerúlf, dóttir Þorvarðar
Kjerúlfs, læknis og alþingismanns, á Ormarsstöðum í Fellum.
Heimili þeirra í Hermes var helsta heimilið á Reyðarfirði og
þau hjón voru veitul í besta lagi og allt heimilishald með höfð-
ingssniði.
AFKOMENDUR ÞORSTEINS
a. Þorvarður Kjerúlf Þorsteinsson (1917-1983), sýslumaður á
ísafirði. Hann var lengi deildarstjóri í atvinnu- og samgöngu-
málaráðuneytinu en sýslumaður frá 1973. Fyrri kona hans var
Anna Einarsdóttir og eru börn þeirra: Einar Þorvarðarson (f.
1944), umdæmisverkfræðingur Vegagerðar ríkisins á Reyðar-
firði, Sigríður Þorvarðardóttir (f. 1948), kaupmaður í Reykja-
vík, Margrét Þorvarðardóttir (f. 1949), ljósmóðir og hjúkrun-
arfræðingur í Reykjavík, Guðbjörg Anna Þorvarðardóttir (f.
1951), dýralæknir á Hólmavík, og Þorsteinn Þorvarðarson (f.
1955), búfræðingur. Seinni Kona Þorvarðs var Magdalena
Thoroddsen og eru dætur þeirra: Ólína Þorvarðardóttir (f.
1958), BA í íslensku, borgarfulltrúi í Reykjavík, og Halldóra
Jóhanna Þorvarðardóttir (f. 1959), prestur.
b. Margrét Þorsteinsdóttir (f. 1922), kona Björns Ólafs Ingv-
arssonar, sem var lögreglustjóri á Keflavíkurflugvelli 1954 til
13. Sveinn Jónsson ásamt ömmu sinni Ólöfu, móður sinni Margréti og
dótturinni Ásdísi.
14. Bræðurnir Egill og Svelnn. Egill var héraðslæknir á Seyðisfirði frá 1925
til 1960.
15. Ólöf Jónsdóttir var fimmta barn Egilsstaðahjónanna.
16. Bergur Jónsson bóndi á Ketilsstöðum ásamt fjölskyldu sinni, eiginkon-
unni Sigríði Hallgrímsdóttur, dótturinni Þórdísi og sonunum Jóni og Hall-
grími.
17. Pétur Jónsson bóndi á Egilsstöðum.
18. Elín Stephensen á Egilsstöðum.
19. Pátur Jónsson, sem er nýlátlnn, var geysimikill hestamaður eins og
margir af Egilsstaðafólkinu.
20. Unnur Jónsdóttir er yngst Egilsstaðasystkinanna. Hún kenndi leikfimi í
Austurbæjarskólanum frá 1930 til 1977.
21. Börn Sigríðar Þovarðardóttur og Þorsteins Jónssonar. í efri röð eru Jón
yfirlæknir, Þorvarður Kjerúlf sýslumaður og fóstursonurinn Ólafur Bjarna-
son. Sitjandi eru Þorgeir lögreglustjóri og Margrét, eiginkona Björns Ing-
varssonar fyrrum yfirborgardómara.
22. Ásdís Sveinsdóttir (1922-1991). Hún var framkvæmdastjóri félagsheim-
ilisins Valaskjálfar en tók síðan við rekstri gistiheimilisins. Á myndinni er
hún með einkadóttur sinni Ingunni.