Heimsmynd - 01.11.1991, Blaðsíða 89
flestir forvera hans. Hann hefur hvað
eftir annað ráðið fólk til starfa í ráðu-
neytinu án þess að auglýsa stöðurnar.
Bæði á nótum fjölskyldutengsla og vegna
pólitískra tengsla. Finnbogi Rútur Arn-
arsson er náfrændi Jóns og starfar í utan-
ríkisráðuneytinu. Hann státaði sig af því
í Morgunblaðinu á dögunum að hafa
borgað skólagjöld sín í diplómataskóla
er nefnist Europian College. Gunnar
Gunnarsson stjórnmálafræðingur og
fyrrum starfsmaður öryggismálanefndar
er einn af gæðingum utanríkisráðherra
sem nú starfar í þjónustunni. Þrátt fyrir
faglegan bakgrunn Gunnars er hann eins
og svo margir með ættartengsl við rétta
menn því bróðir hans er Styrmir Gunn-
arsson ritstjóri Morgunblaðsins sem
kvæntur er dóttur Finnboga Rúts föður-
bróður Jóns Baldvins. Jón réð einnig til
sín Stefán Friðfinnsson sem aðstoðar-
mann sinn og nú forstjóra Islenskra að-
alverktaka en Stefán og Jón eru syst-
kinabörn. Og áfram mætti lengi telja.
Bjarni Guðnason prófessor skrifaði
um þetta athyglisverða grein í Morgun-
blaðið á dögunum er hann nefndi Illgresi
í utanríkisráðuneytinu. Hann komst svo
að orði um ráðningarregluna í utanríkis-
þjónustunni: „Maður tók í mann sem tók
í svein.“ Samkvæmt ofangreindu hefur
hann hitt naglann á höfuðið.
Þær ráðningar sem almenningi eru
kunnastar í utanríkisráðuneytinu eru lík-
legast þær sem notaðar eru til að leysa
innri flokkspólitísk vandamál. Þekktustu
dæmin í seinni tíma eru þegar Albert
Guðmundsson var gerður að sendiherra
í Frakklandi og þegar Kjartan Jóhanns-
son fór til starfa í Genf. En honum
bauðst sú staða eftir að Jón Baldvin velti
honum úr sessi í slagnum um formanns-
sætið í Alþýðuflokknum. Ennfremur eru
mýmörg dæmi þess að utanríkisþjónust-
an hafi beinlínis verið notuð sem elli-
heimili fyrir uppgjafa stjórnmálamenn.
Nú kunna menn að spyrja, er ekkert í
lögum landsmanna sem hamlar utanrík-
isráðherra í því að ráða til sín einkaþjóna
með þessum hætti? Nei, svo er ekki.
Lögin frá 1954 um réttindi og skyldur op-
inberra starfsmanna segja að öll störf hjá
hinu opinbera skuli auglýst nema hjá ut-
anríkisþjónustunni. Þær hafa þó verið
auglýstar endrum og sinnum. Það hefur
hins vegar verið algert einkamál utanrrk-
isráðherra hvernig hann færir menn frá
einni stöðu til annarrar. Venjan er sú að
diplómatískir fulltrúar og ritarar fari ut-
an eftir 3ja til 4ra ára starf á íslandi og
séu 3 til 4 ár á hverjum stað sem kallar
oft á mikla hreyfingu innan þjónustunn-
ar. Þegar einn er fluttur þarf annan í
hans stað og svo koll af kolli:
„Það er einmitt þessi hreyfanleiki sem
gerir utanríkisþjónustuna svona eftir-
sóknarverða. Á Islandi er ekki mikið um
slík störf. Launin erlendis eru nokkuð
góð en kvöðin er að starfsmenn utanrík-
isþjónustunnar vinni jöfnun höndum hér
heima á launum sem bundin eru í hér-
lenda kjarasamninga - BHM og BSRB.
Þeir sem búa erlendis fá greiddar staðar-
uppbætur, fólki er séð fyrir húsnæði og
svo framvegis,“ sagði háttsettur starfs-
maður utanríkisþjónustunnar.
Víða í hinum siðmenntuðu löndum
Vestur-Evrópu er inntaka í utanríkis-
þjónustuna miklu strangari. Þar eru bæði
námskeið og inntökupróf og því er sam-
keppnin mun meiri. Pólitískar ráðningar
Amerísku „Sealy" rúroin eru alveg ómótstæðileg. Þau eru hönnuð í samróði við færustu
beinasérfræðinga Bandaríkjanna. Tvær þykkar dýnur, undir- og yfirdýna, sem fjaðra saman
og nó þannig að gefa þér góðan nætursvefn ón bakverkja að morgni. 5—15 óra óbyrgð.
Höfum einnig rúmgafla, nóttborð og rúmföt í miklu úrvali.
Marco,
Langholtsvegi 111, sími 680690.
Opið alla virka daga frá kl. 10-18
Laugardaga frá kl. 11-14
HEIMSMYND 89