Heimsmynd - 01.11.1991, Blaðsíða 88
Hneyksli. . .
framhald af bls. 16
við flytja heim í utanríkisráðuneytið,
sjálft móðurskipið, og endurhæfa þá þar.
Senda hins vegar út til nýrra átaka þjálf-
aða menn, sem kunna sitt fag.“
A öðrum stað ritar hann:
„Einnig má vera, að sendiherrunum
sjálfum hafi ekki verið gerð nægileg
grein fyrir því, að þeir eru þjónar ís-
lensku þjóðarinnar. Pað kann að vera að
sumir þeirra haldi, af einskærum mis-
skilningi, að íslenskt alþýðufólk sé þjónar
sendiherranna, en ekki hið gagnstæða. Án
sérþekkingar verður enginn skraddari,
skósmiður, húsasmiður né dómari. Hví
ættu sendiherrar að vera eina stéttin, sem
leysir verk sitt meistaralega af hendi án
nokkurrar sérþekkingar.“
Þessi umsögn Péturs virðist standast
tímans tönn og sýnir að ekki hefur mikið
breyst á undanfömum ámm þrátt fyrir að
Islendingar hafi eignast hóp af vel mennt-
uðu fólki í þessum fræðum. Pað fær lítil
sem engin tækifæri til að komast inn í
ráðuneytið því þó stöður hafi verið
auglýstar hefur klíkuskapurinn ráðið ríkj-
um. Á meðan þykir samkeppni á flestum
sviðum sjálfsögð í nútímasamfélagi.
Pegar Benedikt Gröndal fór með ut-
anríkismál auglýsti hann lausar stöður og
réð til sín tvær konur, einar af fáum kon-
um sem komist hafa inn í utanríkisþjón-
ustuna, en það eru þær Sigríður Snævarr
sendiherra og Berglind Ásgeirsdóttir
sem er nú ráðuneytisstjóri í félagsmála-
ráðuneytinu.
„Þær eru báðar tiltölulega ungar að ár-
um og hafa staðið faglega mjög vel fyrir
sínu,“ sagði áðurnefndur stjórnmála-
maður á vinstri kantinum. En þrátt fyrir
að menn væru sammála um að þær hefðu
reynst vel bentu þeir einnig á að þarna
væri um pólitísk tengsl að ræða.
Á meðan Olafur Jóhannesson fór með
utanríkismál frá 1980 fram á vor 1983
voru ekki margir teknir inn í utanríkis-
þjónustuna og heldur ekki í tíð Geirs
Hallgrímssonar en þann stutta tíma sem
Matthías Á. Matthiesen fór með utan-
ríkismál - en það var frá því í byrjun árs
1986 fram á mitt sumar 1987 - komust
fjölmargir ungir menn inn í utanríkis-
þjónustuna, þar má nefna Stefán Hauk
Jóhannsson, Stefán L. Stefánsson, Sturla
Sigurjónsson, Þórð Bjarna Guðjónsson,
Margréti Jónsdóttur, Grétar Má Sigurðs-
son, Hannes Heimisson, Magnús
Bjarnason, Róbert Trausta Arnarsson
og Sigurð Ásmundsson.
Flest þessara ungmenna eiga það sam-
eiginlegt að vera fædd á 6. áratugnum
með bakgrunn í stjórnmálafræði, við-
skiptafræði eða lögfræði og það að vera
flokkssystkin þáverandi utanríkisráð-
herra.
Árið sem Steingrímur Hermannsson
var utanríkisráðherra réð hann m.a. til
sín Þórð Ægi Oskarsson fyrrum þing-
fréttaritara Tímans og Guðna Bragason
sem alltaf hefur verið talinn bera hlýjar
tilfinningar til Alþýðuflokksins.
Margir viðmælendur HEIMSMYND-
AR bundu þær vonir við Jón Baldvin að
hann myndi breyta þessu forna fyrir-
komulagi og opna ráðuneytið fyrir hæf-
ustu einstaklingunum en því miður hefur
hann dottið ofan í sama klíkupottinn og
Britax-Recliner er bílstóll fyrir börn frá
sex mánaða til fjögurra ára (9-18 kg).
Stólinn er auðvelt að flytja á milli bíla
því hann má festa með venjulegu
bílbelti. Barnið er síðan tryggilega fest
í stólinn með flmm punkta öryggisbelti.
Bakhallinn er stiilanlegur eftir þörfum
barnsins og áklæðið er hægt að taka af
og þvo. Hjá Skeljungi fást einnig aðrar
gerðir Britax barnastóla svo og barna-
bílbelti og upphækkunarsæti. Vörurnar
frá Britax tryggja öryggi og vellíðan
barnsins þíns, - og þá líður þér líka vel.
|| ®
Örugglega hjá Shell