Heimsmynd - 01.11.1991, Side 88

Heimsmynd - 01.11.1991, Side 88
Hneyksli. . . framhald af bls. 16 við flytja heim í utanríkisráðuneytið, sjálft móðurskipið, og endurhæfa þá þar. Senda hins vegar út til nýrra átaka þjálf- aða menn, sem kunna sitt fag.“ A öðrum stað ritar hann: „Einnig má vera, að sendiherrunum sjálfum hafi ekki verið gerð nægileg grein fyrir því, að þeir eru þjónar ís- lensku þjóðarinnar. Pað kann að vera að sumir þeirra haldi, af einskærum mis- skilningi, að íslenskt alþýðufólk sé þjónar sendiherranna, en ekki hið gagnstæða. Án sérþekkingar verður enginn skraddari, skósmiður, húsasmiður né dómari. Hví ættu sendiherrar að vera eina stéttin, sem leysir verk sitt meistaralega af hendi án nokkurrar sérþekkingar.“ Þessi umsögn Péturs virðist standast tímans tönn og sýnir að ekki hefur mikið breyst á undanfömum ámm þrátt fyrir að Islendingar hafi eignast hóp af vel mennt- uðu fólki í þessum fræðum. Pað fær lítil sem engin tækifæri til að komast inn í ráðuneytið því þó stöður hafi verið auglýstar hefur klíkuskapurinn ráðið ríkj- um. Á meðan þykir samkeppni á flestum sviðum sjálfsögð í nútímasamfélagi. Pegar Benedikt Gröndal fór með ut- anríkismál auglýsti hann lausar stöður og réð til sín tvær konur, einar af fáum kon- um sem komist hafa inn í utanríkisþjón- ustuna, en það eru þær Sigríður Snævarr sendiherra og Berglind Ásgeirsdóttir sem er nú ráðuneytisstjóri í félagsmála- ráðuneytinu. „Þær eru báðar tiltölulega ungar að ár- um og hafa staðið faglega mjög vel fyrir sínu,“ sagði áðurnefndur stjórnmála- maður á vinstri kantinum. En þrátt fyrir að menn væru sammála um að þær hefðu reynst vel bentu þeir einnig á að þarna væri um pólitísk tengsl að ræða. Á meðan Olafur Jóhannesson fór með utanríkismál frá 1980 fram á vor 1983 voru ekki margir teknir inn í utanríkis- þjónustuna og heldur ekki í tíð Geirs Hallgrímssonar en þann stutta tíma sem Matthías Á. Matthiesen fór með utan- ríkismál - en það var frá því í byrjun árs 1986 fram á mitt sumar 1987 - komust fjölmargir ungir menn inn í utanríkis- þjónustuna, þar má nefna Stefán Hauk Jóhannsson, Stefán L. Stefánsson, Sturla Sigurjónsson, Þórð Bjarna Guðjónsson, Margréti Jónsdóttur, Grétar Má Sigurðs- son, Hannes Heimisson, Magnús Bjarnason, Róbert Trausta Arnarsson og Sigurð Ásmundsson. Flest þessara ungmenna eiga það sam- eiginlegt að vera fædd á 6. áratugnum með bakgrunn í stjórnmálafræði, við- skiptafræði eða lögfræði og það að vera flokkssystkin þáverandi utanríkisráð- herra. Árið sem Steingrímur Hermannsson var utanríkisráðherra réð hann m.a. til sín Þórð Ægi Oskarsson fyrrum þing- fréttaritara Tímans og Guðna Bragason sem alltaf hefur verið talinn bera hlýjar tilfinningar til Alþýðuflokksins. Margir viðmælendur HEIMSMYND- AR bundu þær vonir við Jón Baldvin að hann myndi breyta þessu forna fyrir- komulagi og opna ráðuneytið fyrir hæf- ustu einstaklingunum en því miður hefur hann dottið ofan í sama klíkupottinn og Britax-Recliner er bílstóll fyrir börn frá sex mánaða til fjögurra ára (9-18 kg). Stólinn er auðvelt að flytja á milli bíla því hann má festa með venjulegu bílbelti. Barnið er síðan tryggilega fest í stólinn með flmm punkta öryggisbelti. Bakhallinn er stiilanlegur eftir þörfum barnsins og áklæðið er hægt að taka af og þvo. Hjá Skeljungi fást einnig aðrar gerðir Britax barnastóla svo og barna- bílbelti og upphækkunarsæti. Vörurnar frá Britax tryggja öryggi og vellíðan barnsins þíns, - og þá líður þér líka vel. || ® Örugglega hjá Shell

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.