Heimsmynd - 01.11.1991, Blaðsíða 97
Bjarni. . .
framhald af bls. 77
hafði meira að segja skoðun á því hvað
ætti alls ekki að heyrast og bannaði hik-
laust tónlist sem honum líkaði ekki. Og
Jón Þórarinsson hafði líka tröllatrú á
Hrafni Gunnlaugssyni sem blés ferskum
anda í Lista- og skemmtideildina.
Skemmtiþættir Sjónvarpsins hafa skipt
hundruðum og þar hafa komið fram allir
okkar ástsælustu skemmtikraftar: Hvar
voru þeir allir?
Tónlistarmenn af öllum gerðum hafa
birst í sjónvarpinu, svo ekki sé minnst á
menningarþætti eins og Vöku og þar
birtust allir helstu listamenn þjóðarinnar
úr öllum listgreinum. En þetta var ekki
framkvæmt sí svona - sem hefði verið
svo miklu skemmtilegra. Og komið okk-
ur til að hlæja sem nenntum að horfa á
dagskrána.
En glæpinn í Sjónvarpinu verður að
upplýsa, glæpinn sem ráðamenn þess
vilja fela sem lengst; hverju búið er að
henda af gömlu dagskrárefni.
Það er hryllilegt til þess að vita að
Sjónvarpið hefur ekki staðið rétt að
varðveislu myndefnis. Kerfisbundið var
farið yfir myndbandaskrá Sjónvarpsins
og leitað að myndböndum sem mætti
hreinsa og afmá efnið sem á þeim var -
og taka upp á myndböndin nýtt efni.
Þannig hafa þurrkast út og afmáðst við-
talsþættir, skemmtiefni, fræðsluefni og
margvíslegar uppákomur í sjónvarpssal.
Hver myndi trúa því að horfinn væri
spjallþáttur með Gunnari Gunnarssyni
rithöfundi, Halldóri Laxness Nóbels-
skáldinu okkar, Jónasi Árnasyni alþing-
ismanni og rithöfundi og Matthíasi
Johannessen ritstjóra og rithöfundi - en
það er víst sorglega satt, hann var þurrk-
aður út. Og svo er með ótal margt fleira.
Þessi þáttur var frægur fyrir þessa setn-
ingu Halldórs Laxness: „eigum við ekki
að reyna að tosa þetta upp á hærra plan,
ha.“ Já. - Horfinn er þessi einstaki við-
talsþáttur með skáldjöfrum íslenskrar
tungu. Og það er svo margt, svo margt
annað sem siðferðisleg skylda var að
geyma. Peningaskortur réð því að bönd-
in voru notuð aftur og aftur.
Húmar að kveldi - og dagskráin á enda
í Sjónvarpinu, það var að koma 1.
október. Undir miðnætti er afmælisveisl-
an búin. Það var blásið á kertin, slökkt á
sjónvarpsviðtækjunum. Eg fór í náttfötin
og bjó mig undir svefninn.
Um nóttina dreymdi mig árið 2010 og
að Sjónvarpið væri hætt að sýna auglýs-
ingar - og að útvarpsstjórinn væri fjöl-
miðlafræðingur og menntaður í Ameríku
og að útvarpsráð hittist einu sinni á ári,
að Helgi E. Helgason væri að lesa kvöld-
fréttir um að Bubbi Morthens væri orð-
inn menntamálaráðherra.
Bjarni Dagur.
Umhyggja. Sólveig Eggerz
Gleðistund
í glæsilegu umhverfi
ómantísk stund eða glæsilegur við-
skiptamálsverður? Gullni Haninn
sérhæfir sig í að uppfylla væntingar
þínar um öndvegis veitingar og úrvals
þjónustu í glæsilegum húsakynnum þar
sem ekkert hefur verið til sparað. Gullni
Haninn er sem nýr í hólf og gólf, en
andrúmsloftið og veitingarnar bera enn
aðalsmerki fagmennsku og þjónustu í
fremstu röð.
Við sérstök tækifæri er sjálfsagt að gera
kröfur - Gullni Haninn uppfyllir þínar
óskir og gerir stundina ógleymanlega.
LAUGAVEG 178 - 105 REYKJAVÍK
HEIMSMYND 97