Heimsmynd - 01.11.1991, Side 19
Guðrún Ásmundsdóttir leikkona hefði ekki fæðst í Reykjavík 19. nóvember 1935, hvar og
hvenær hefði hún viljað fæðast?
Að fæðast á kreppuárunum á íslandi er ef til vill ekki það lang æskilegasta en ég var svo
■■ ■ heppin að vera velkominn og kærkominn gestur í þennan heim, þrátt fyrir kreppu og ótrygga
afkomu. Þegar unglingsárin tóku við fékk ég síðan að fljóta ásamt íslensku þjóðinni inn í betri
lífskjör. Ég er sátt við að hafa fæðst á þessum tíma því að það var tími möguleikanna. Ekkert
gat hindrað fólk af minni kynslóð í að fá alla þá menntun sem það óskaði eftir. Þegar síðan
kom að því að við vildum stofna fjölskyldu og eignast þak yfir höfuðið var lánakerfið og allt sem því fylgdi svo
miklu mun viðráðanlegra og manneskjulegra en það er í dag.
Hvers vegna?
Að hafa fæðst og fengið að lifa í Reykjavík hafa mér alltaf fundist forréttindi. Ég elska þessa borg, bara það
að rölta niður Bankastræti er fyrir mig ein allsherjar skemmtun. Engin borg í heiminum á sér annað eins
Bankastræti. Einmitt hér vildi ég hafa fæðst.
Hvaða tímabil í sögunni heillar þig mest?
Tímabilið þegar Jesús Kristur gekk um á meðal mannanna og gaf heiminum nýja von.
Hvaða persóna í sögunni hefðir þú helst kosið að vera?
María Magdalena. Líf hennar fól í sér þær miklu andstæður að vera hafin upp úr djúpri óhamingju og nið-
urlægingu til gleðinnar ungu við það að Kristur læknaði hana og sýndi henni að sá kærleikur er til sem er æðri
öllum skilningi.
Hverjum vildir þú helst líkjast í útliti?
Guðnýju Helgadóttur, ekkju Brynjólfs Jóhannessonar. Ég hef enga konu séð eldast jafn fallega.
En innræti?
Ég veit það ekki.
Hvaða kvenmaður í sögunni heillar þig mest?
Guðný frá Klömbrum. Hún var svo gott skáld og örlög hennar eru mér hugstæð.
Hvernig húsgögn viltu helst hafa í kringum þig?
Falleg, létt og notadrjúg en ekki of mikið af þeim. Mikið gólfpláss gerir stofu fallega.
Hvernig slappar þú af?
Ég fer upp í bílinn minn og keyri á einhvern fallegan stað, til dæmis upp í Heiðmörk. Þar fæ ég mér síðan
langan og góðan göngutúr.
Hver eru eftirminnilegustu spakmæli sem þú hefur lesið eða við þig hafa verið sögð?
Það sem skal gerast betur en vel, fer oft verr en illa.
Hvert er besta leikrit sem þú hefur séð?
Leikritið No Laughing Matter hreif mig stórkostlega. Maður hló fram í fjórða þátt, þá skammaðist maður
sín fyrir að hafa hlegið.
Hver er eftirminnilegasta kvikmynd sem þú hefur séð?
Þýskaland, náföla móðir.
Hvaða matur finnst þér bestur?
Vel matreiddur ofnbakaður fiskréttur.
Hverju sérðu mest eftir?
Sumarfríi sem eytt var í leiðinlegum félagsskap.
Hvaða hlut vildir þú helst eignast?
Glerlistaverk eftir Leif Breiðfjörð sem hægt er að hafa í glugga og njóta þess að horfa á í margvís-
legri birtu daganna.
Hverjir eru helstu kostir þínir?
Hvað ég bý til góðan mat.
En veikleikar?
Hvað mér finnst alltaf nauðsynlegt að öllum líki vel við mig.
Hver er ánægjulegasta stundin í lífi þínu?
Að liggja uppi á Fæðingarheimili með nýfæddan fjölskyldumeðlim í glæru plastrúmi við hlið
mér.
Hvað er það sem helst veldur þér áhyggjum?
Að hafa ekki tíma til að gera allt sem mig langar til að gera.
Við hvað ertu hrædd?
Að vera hafnað af einhverjum sem er mér kær.
Hvað heldurðu að þú hafir verið í fyrra lífi?
Hvort ég hafi lifað á einhverju öðru tilverustigi á undan því lífi sem ég hóf þann 19. nóvember
1935, hef ég ekki mikið verið að velta fyrir mér. Hins vegar finnst mér það líf sem ég hóf þá skiptast
niður í fjögur gjörólík tilverustig og í raun nógu mikill höfuðverkur að reyna að fá botn í þau. Hvað-
an ég kom eða hvert ég fer eftir jarðvist mína hér veit ég að mér er ekki ætlað að fá neina vitneskju
um. Ég hef hins vegar verið svo heppin að fá að kynnast hver hann er sá Guð sem skóp mig og ég til-
heyri. Eftir þau kynni veit ég hve fullkomlega mér er óhætt að leggja hönd mína í hans og láta hann
stjórna ferðinni. Þannig verða litirnir sterkari, tilfinningarnar dýpri, líkt og að vakna upp af gráum tíð-
indalausum draumi. Þessa hönd vil ég láta leiða mig inn í næsta tilverustig því ég þekki hana og veit að
hún fer ekki umsvifalaust að troða mér inn í einhverja nýja fæðingu til að lifa áfram í heimi sem er full-
ur af óréttlæti og þjáningu. Til þess að ég nái þroska, segja þeir sem trúa á endurfæðingu. Hann gaf
mér þetta líf til að velja og hafna. Eins óþroskuð og skilningsvana og ég er þá er ég búin að uppgötva
að hann elskar mig samt og er búinn að finna leið til að mér séu fyrirgefnar allar vitleysurnar. Ég fæ að
ganga inn í nýjan og réttlátan heim eftir dauðann og það sem meira er, ég veit að það verður eins og að
ganga inn í ævintýr.
Hverjar eru rómantískustu aðstæður sem þú getur hugsað þér?
Kertaljós, rauðvín og grænmetisbaka (ég borða ekki nautasteik).
Ef þú ættir eina ósk, hvers myndir þú óska þér?
Að ég fengi aðalhlutverkið í besta leikriti heimsbókmenntanna.D
NÓVEMBER
19 9 1