Heimsmynd - 01.11.1991, Side 24

Heimsmynd - 01.11.1991, Side 24
GEIR ÚLAFSSON JIL SANDÉI HÖNNUN: í miðpunkti APRIORI SONIA RYKIEL MOSCHINO KARL LAGERFELD AIGNER YVES SAINT LAURENT POSITIV FRANK USHER Belti koma ekki aðeins að góðum notum við að halda buxunum uppi, þau eru kjörin leið til að undirstrika kven- legt vaxtarlag. Fallegt og vandað belti dregur athygli aug- ans að mittinu og hjálpar til að forma vaxtarlagið sem get- ur ef vel tekst til tekið á sig lag stundarglass. Belti setur nýjan svip á dragtina, kjólinn og buxurnar og er kjörin leið til að hressa örlítið upp á fataskápinn án þess að kosta miklu til. Skrautlegu beltin frá Yves Saint Laurent og Frank Usher tilheyra kvöldklæðnaðinum og eru tilvalin til að punta upp á einfaldan svartan kjól og dragtir. Beltið frá Etienne Aigner er hins vegar sportlegt en vandað og fer vel bæði með gallabuxum og drögtum. Rauða rússkinns- beltið frá Apriori er áberandi og óvenjulegt, sylgjan ber einna helst keim af mótorhjólatískunni en áferðin er fínleg þannig að útkoman verður fallegt og vandað belti í anda nútímarómantíkur. □ 24 HEIMSMYND

x

Heimsmynd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.