Heimsmynd - 01.11.1991, Blaðsíða 30

Heimsmynd - 01.11.1991, Blaðsíða 30
Það var áberandi klíkuskapur í gangi þarna. En um leið og íslendingar voru búnir að eignast tvær alheimsfegurðardrottningar með þetta stuttu milli- bili fóru þeir að bítast um það hvor stæði betur und- ir titlinum. Hófí hafði unnið hug og hjarta þjóðar- innar með sínu blíða brosi og dálæti á börnum, unga fóstran úr Garðabæ sem fljótlega eftir að hún hreppti titilinn gekk í það heilaga, eignaðist barn og er nú orðin tveggja barna móðir. Linda á hinn bóg- inn fékk á sig/emme/«to/-stimpilinn. „She made the whole contest look like a joke“ sagði víðförull Bandaríkjamaður og átti við það að þrátt fyrir al- vöru fegurðarsamkeppninnar hafi eitthvað í fasi þessarar nítján ára gömlu stúlku bent til þess að hún sæi í gegnum glysið og þá yfirborðslegu staðla sem settir eru í slík- um keppnum. Linda var átján ára og nemandi í fjölbrautaskóla þegar hún tók þátt í forkeppninni fyrir Ungfrú Island og hreppti titilinn Ungfrú Austurland. Rúmum mánuði síðar var hún kjörin Ungfrú ísland og hafði í millitíðinni hrist af sér átta kíló á meðan alþjóð - eða áhugafólk um slíkar keppnir - fylgdist með og þeir eru æði margir. Jafnvel þegar hún var orðin Ung- frú Heimur fékk hún á sig gagnrýni fyrir að vera ekki alveg eins og Hófi. Hár hennar þótti of áberandi litað þar sem skein í dökka rótina og stúlkan þótti sýna of miklar sveiflur í vigt. En á sinn hátt hefur Linda Pétursdóttir skipað sér ákveðinn sess í hópi fegurðardrottninga. Samkvæmt óformlegri könnun HEIMSMYNDAR þykir hún ein kynþokkafyllsta kona lands- ins. Ahugamaður um fegurð sagði hana hafa aðdráttarafl á við Marilyn Monroe þar eð hún höfðaði jafnt til beggja kynja. Þegar hringt var í Lindu og hún beðin að koma í viðtal við blaðið spurði hún blíðlega og feimnislega hvenær okkur hent- aði. Undanfarna mánuði hefur Linda starfað við fyrirsætustörf í Tókíó og hyggst innan skamms hasla sér völl á þeim vett- vangi í Bandaríkjunum. Japönunum þótti hún of sexí, of mik- ið í ætt við kvikmyndastjörnu fremur en þá barnslegu ímynd sem þeir sækjast eftir þessa dagana. I Bandaríkjunum njóta ít- urvaxnar fyrirsætur sín betur. Þegar Linda mætir í eigin persónu er hún feimnisleg og langt frá einhverri kynbomburullu. Hún er lægri vexti, grennri og barnslegri en myndirnar af henni sýna. Röddin er lág, fág- uð og framkoman einkennist af sakleysi, örlitlu öryggisleysi. Hún virkar opin fyrir umhverfinu og laus við að vera upptekin af sjálfri sér. Ósjálfrátt hvarflar það að manni að veran í Japan hafi verið erfiðari reynsla en hún gerði ráð fyrir sjálf. „Það morar allt af fyrirsætum þarna,“ segir hún. „Og þeir vilja núna að þær séu austrænni í útliti en áður. Grannvaxnar, fíngerðar og dökkhærðar stúlkur eiga frekar upp á pallborðið í tískuiðnaðinum þar. Ekki sakar ef augu þeirra eru örlítið skásett.“ Augun í Lindu minna örlítið á augu í ketti. Stór, blá með örlítilli slikju. Pað er miður dagur og hún er vel til höfð með ljósan andlitsfarða, vel púðruð með koparlitan augnskugga og vandlega málaðar varir í ljósum lit. Hún er afar breytt ímynda ég mér frá stúlkunni sem ákvað átján ára gömul að læra á útlit sitt með því að fara á námskeið hjá Hönnu Frímannsdóttur í Karon. „Við vorum þarna nokkrar í hóp þegar Heiðar Jóns- son snyrtir kom eitt kvöldið og sagði að því loknu að í okkar hópi væri ein sem ætti eftir að ná mjög langt í alþjóðlegri keppni. Hann sagðist ekki vilja segja okkur hver það væri.“ Hún var þá þybbin með sítt og mikið hár, nemi á málabraut í Ármúlaskólanum. í páskafríinu veturinn 1988 fór hún heim til Vopnafjarðar þar sem foreldrar hennar bjuggu þá og var beðin að taka þátt í keppninni Ungfrú Austurland. Hún hafði neitað því áður en móðir hennar Ása Dagný Hólmgeirsdóttir fékk hana til þess að taka skrefið. „Konan sem stóð fyrir keppninni á Austurlandi hafði hringt áður og ég neitað. Mér fannst ég ekki þessi týpíska fegurðardrottning og hafði ekki nóg sjálfstraust.“ Linda, sem hafði fitnað árið áður, en þá var hún skiptinemi í Bandaríkjunum, tók sig til og fór í hörku megrun. „Eg synti og æfði mig og þegar kom að Ungfrú Islands-keppninni þurfti ég ásamt nokkrum öðrum að fara á fljótandi fæði til að ná tak- markinu áður en við birtumst á sundbolum. Eg fór niður í 54 kíló.“ Núna segist hún vera 57 kíló en hún er 172 sentímetrar á hæð og vill losa sig við fjögur kíló. Miðað við þá staðla sem settir eru fyrir ljósmyndafyrirsætur, samkvæmt grein í vikurit- inu Time nýlega, þurfa þær að vera lágmark 175 sentímetrar, helst grindhoraðar en barmmiklar. Næstum ósættanleg við- mið. Linda dæsir. „Maður les um það að þessar stelpur séu að láta stækka og minnka brjóstin á sér hjá lýtalæknum eftir því hvernig vindar blása.“ Hún situr með fangið fullt af tískublöðum og flettir. „Mér finnst Linda Evangelista æðisleg. Hún er svo mikill töffari. Hún er orðin 26 ára,“ bætir hún við. „I Japan virtust þeir helst sækjast eftir kornungum stúlkum. Ég var hjá umboðsskrif- stofu sem heitir Gap og það var alveg undir bókurunum þar komið hvernig og hvort maður fékk einhver verkefni. Ég var svo heppin að fá íbúð til afnota sem forríkur Japani bauð mér. Þessi íbúð var stórglæsileg, staðsett í háhýsi á besta stað í Tókíó með útsýni yfir alla borgina. Hún var fullbúin fallegum húsgögnum og veggirnir þaktir listaverkum. Þessi maður hef- ur átt í viðskiptum við Islendinga og ég held að hann hafi litið á þetta sem nokkurs konar greiða við Island því ég varð ekki fyrir neinum óþægindum af hans hálfu þótt ég hefði afnot af íbúðinni. Kunningjar mínir í módelbransanum í Tókíó áttu ekki orð þegar þeir komu í heimsókn til mín. Þeir þurftu flest- ir að sætta sig við að búa í smáskonsum. En ég held að stelp- urnar sem unnu á umboðsskrifstofunni hafi öfundað mig eitt- hvað af þessari aðstöðu og að ég var fyrrverandi Miss World. Það var svo áberandi klíkuskapur í gangi þarna. Sú stelpa sem fékk bestu verkefnin var hollensk og við hinar skildum ekkert í því hvað hún hafði mikið að gera þar eð hún leit alls ekki vel út. Hún var á kafi í eiturlyfjum með mikla bauga undir augum og bólugrafið andlit. En hún nennti að smjaðra fyrir stelpun- um á umboðsskrifstofunni og það dugði til, hún fékk öll bestu verkefnin.“ ótt Linda eigi síður en svo langan feril að baki sem fegurðardís og fyrirsæta hefur hún fengið smjörþef- inn af yfirgangi karlmanna sem reyna að hafa not af slíkum stúlkum. „Árið sem ég skartaði Miss World-titlinum var ég svo vernduð að mér stafaði engin hætta af karl- mönnum, sem vildu komast í kynni við mig. Þetta ár var ég á stöðugum ferðalögum, ferðaðist mikið um Mið-Ameríku, þar sem ég kynntist hræðilegum bágindum og fátækt. Þótt það væri erfitt að horfa upp á eymdina þar fannst mér það samt skárra en selja fiskinn fyrir íslendinga í Boston. Miss World- fyrirtækið seldi íslenskum fyrirtækjum hundrað daga af starfs- árinu mínu og skyldi ég þá ferðast í þeirra þágu og kynna ís- 30 HEIMSMYND
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Heimsmynd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.