Heimsmynd - 01.11.1991, Qupperneq 37

Heimsmynd - 01.11.1991, Qupperneq 37
OÁklæði lætur oft fljótt á sjá án þess að sófasettið hafi gengið sér til húðar. Mikið úrval er í íslenskum álnavöruverslunum af fallegum og meðfærilegum efnum sem auðveldlega má sauma úr nýtt utan um gamla sófann þannig að hann fái nýtt yfirbragð. Ekki sakar að hafa áklæðið rúmt þannig að hægt sé að smeygja því af, þvo það og þurrka, því þá gerir minnst til þótt skítugir barnafingur setji mark sitt á ljóst áklæði. Snið af slíkum áklæðum er hægt að fá hjá bólstrurum og þau má oft finna í blöðum sem sérhæfa sig í innanhússhönnun. OFalleg og vönduð efni eru mjög dýr. Lítill bútur sem dugar utan um einn eða tvo púða getur gefið stofunni eða svefnherberginu nýjan svip án þess að setja stórt strik í heimilisbókhaldið. Smám saman er hægt að safna líflegu safni púða úr glæsilegum eðalefnum. OPegar líður að hausti má taka inn greinar og blóm úr garðinum sem henta til þurrkunar og o spreyja þau með gylltu eða g koparlit. Þurrkuð afskorin ^ blóm eins og nellikkur geta œ sett skemmtilegan svip á é slíkar heimatilbúnar g; skreytingar. Gyllt gefur £E heimilinu hlýlegan blæ og fer vel með viðarhúsgögnum. OSnyrtilegt yfirbragð skiptir miklu. Vel lakkaðir glugga- og dyrakarmar setja fallegan svip á heimilið. Til að fá sem besta áferð er gott að nota svamprúllu til að rúlla lakkinu á. Þeim sem ekki treysta sér til að mála glugga og hurðir að svo stöddu má benda á að með því einu að taka sér pensil í hönd og bletta í þar sem lakkið hefur flagnað af má gera kraftaverk. Vel málaðar vistarverur bera öll húsgögn betur. Teppi sem tekin eru að vindast upp á köntunum eru til mikillar óprýði og setja leiðinlegan svip á stofuna. Til að bjarga málunum er hægt að kaupa sérstaka strigaborða sem límdir eru á kanta teppisins þannig að þeir verði sléttir. Ef teppið er illa undið má bera límið undir teppið allt. Teppi og dreglar vilja oft renna til á viðargólfum en með því að leggja stoppnet, sem eru sérstök net úr gúmíi, undir þau má koma í veg fyrir þetta. Baðherbergi láta oft fljótt á sjá. Til að o Ef baðherbergið er 1 kuldalegt er margt sem hægt er að gera án mikils tilkostnaðar til að breyta því. Nokkur þykk og falleg hvít baðhandklæði í stafla á baðherberginu vekja alltaf notalega tilfinningu. Þykk gólfmotta hjálpar einnig til við að skapa ímynd munaðar en þannig dreymir flesta um að baðherbergið sé. Til að setja punktinn yfir i-ið getur verið skemmtilegt að fylla gróft leirker með þurrkuðum blómum og setja á spegilborðið. Vellyktandi þurrkaðar jurtir í fallegri frá gluggunum með fallegum böndum sem hægt er að fá bæði með og án dúska. ®Sjálfsagt er að láta fallega og vel lakkaða glugga njóta sín. Færðu húsgögnin frá gluggunum og legðu sem mest upp úr umgjörð þeirra. Það gefur sérlega rómantískan blæ þegar gardínurnar eru vel síðar eða látnar liggja í eins konar hrauk á gólfinu. Dragsíðir, einlitir stórisar eru aftur að komast í tísku. Stórisar eru ódýrir og gefa því andlitslyftingu án mikils tilkostnaðar bendir Ómar Sigurbergsson innanhússarkitekt á að skrapa megi upp fúguna sem er á milli flísa á veggjum og sparsla í að nýju. Þetta er ódýr og árangursrík aðferð við að lífga upp á gömul og lúin baðherbergi, hins vegar er vissara að ætla sér nægan tíma því verkið er heldur seinlegt í framkvæmd. Ef flísarnar sjálfar eru mjög ljótar en fjárhagurinn leyfir ekki að skipt sé um að svo stöddu má benda fólki á að hægt er að lakka flísarnar með því að rúlla yfir þær með svamprúllu. Þannig er hægt að skipta algjörlega um lit á baðherberginu. OFallegar og efnismiklar gardínur gefa stofunni rómantískan og hlýlegan blæ. Það er einfaldara og ódýrara en margan grunar að setja upp slíkar gardínur. Hægt er að fá á mjög vægu verði sérstakar gardínustangir, ýmist einfaldar, tvöfaldar eða þrefaldar, með sveigju sem ætlaðar eru til þessa. Efnið er þrætt upp á stangirnar og fellingar og sveigjur mótaðar að vild. Þá má taka gardínurnar laust skál eða handmáluð sápuskál í anda Viktoríutímabilsins eru einnig góðar hugmyndir. Það er mikil pryði að fallegum og litríkum borðbúnaði og kjörið að nota hann sem borðskraut milli máltíða líkt og hér er gert. HEiMSMYND 37
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Heimsmynd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.