Heimsmynd - 01.11.1991, Blaðsíða 43
kvenna til að slá hraðar með því einu að horfa í augu þeirra?
v
villtir
vonlausir?
v
V
þœttir í fari karlmanna sem hrífa konur en eru
kynþokki og í hverju felst hann?
karlar þykja ekki síður augnayndi að mati erlendra kvenna.
Þeim hefur verið lýst sem villtum og óhefluðum með hreint
víkingablóð í æðum og upp til hópa mjög laglegum. íslenskir
karlmenn eins og þeir yaldemar Örn Flygenring, Baltasar
Kormákur Sampe, Egill Ólafsson, Stefán Jón Hafstein, Ragn-
ar Axelsson ljósmyndari og Gottskálk Dagur Sigurðsson, sá
sem leikur hvíta víkinginn í nýjustu kvikmynd Hrafns Gunn-
laugssonar, hafa útlitið með sér. Þeir eru laglegir, geta státað
af stæltum líkama og hafa auk þess útgeislun sem gerir það að
verkum að það er erfitt að gleyma þeim. Það er alltaf gaman
að sjá myndir af Agli Ólafssyni þótt þær geti tæpast talist til
nýnæmis lengur. Það breytir engu þótt hárunum hafi fækkað,
sjarminn, dulúðin og aðdráttaraflið er alltaf til staðar. Það
sama á við um Valdemar Örn Flygenring. Hann er fjall-
myndarlegur, hefur ímynd einfarans, kvennamannsins og hins
hreinræktaða víkings. Konur blikna í návist hans, ekki vegna
þess sem hann segir eða gerir, heldur þess hvernig hann stend-
ur, horfir og hreyfir sig. Áhorfandinn fær aldrei nóg af því að
horfa á hann. Bandaríski tískuhönnuðurinn Calvin Klein, sem
vakið hefur mikla eftirtekt fyrir djarfar auglýsingar þrungnar
kynþokka, kom auga á þennan hæfileika Valdemars og réð
hann til að auglýsa vöru sína í bandarísku sjónvarpi. Það er
kynþokkinn, sem umboðsmenn í Hollywood eru á höttunum
eftir þegar þeir leita eftir nýju hæfileikafólki í von um að það
slái í gegn. Rétta blandan er milljarða bandaríkjadala virði.
Nýjasta kyntröllið er án efa Patrick Swayze sem vakti fyrst
heimsathygli þegar hann lék í myndinni Dirty Dancing. 1
sjálfu sér er hann ekkert andlitsfríðari en margir þeirra leikara
sem ganga um götur Los Angeles í von um að verða uppgötv-
aðir. Það sem gerir hann hins vegar svo ómótstæðilegan er að
saman fer fullkominn líkami, kæruleysislegt göngulag, hæfi-
lega gróft yfirborð og til að kóróna allt saman, kynþokki.
Aðrir frægir leikarar sem konur um allan heim þyrpast í kvik-
myndahús til að eiga kvöldstund með eru Mel Gibson, Daniel
Day Lewis, Kevin Kostner, Bruce Willis og Dennis Ouaid.
Allir eru þeir margfaldrar þyngdar sinnar virði í gulli fyrir
kvikmyndaframleiðendur vegna þess að þeir ná til áhorfenda
og eru fyrirmyndir fólksins. Konur vilja að eiginmenn þeirra
líkist kvikmyndastjörnunum sem mest og þeir gæla í laumi við
þá hugsun hvort lífið yrði ekki leikur einn ef þeir vöknuðu
einn morguninn í líkama Patricks Swayze eða Kevins Kostner.
Einstaka karlmaður heldur kynþokka sínum þótt árin færist
yfir. Sean Connery er einn þeirra. Hann vann fyrst hug og
hjörtu kvenna í hlutverki James Bond og síðan í hverri stór-
myndinni á fætur annarri. Nýlega var sýnd myndin Rússlands-
deildin í einu af kvikmyndahúsum borgarinnar. Þar lék hann á
móti Michelle Pheiffer sem er um það bil fjörutíu árum yngri
en hann. Ekki virtust kvikmyndaframleiðendur hafa nokkrar
áhyggjur af því að tekið væri að slá í Connery. Þeir vissu sem
var að Sean Connery stendur alltaf fyrir sínu. Hann er fjall-
myndarlegur þótt hann sé farinn að missa hárið og kann betur
en flestir að töfra áhorfendur með þokka sínum.
Breiðar axlir, mjótt mitti og miklir vöðvar eru tákn
karlmennsku. Þótt ýmsir hafi reynt að kveða í kút-
inn viðtekin kyntákn eins og þrýstinn barm kvenna
og vöðvamiklar axlir karla mun það seint bera ár-
angur. Aftur og aftur skjóta þessi gildi upp kollin-
um, sama hversu mjög er reynt að bæla þau niður. Staðreynd-
in er að þessir þættir tengjast kynhvöt mannsins órofaböndum
og til lítils að ætla að reyna að standa gegn þeim. Allt eins
mætti eyða tíma og orku í að fá vatn til að renna upp í móti.
Þessir þættir kveikja áhuga hins kynsins og öfund annarra
kynbræðra og systra, þannig vildu allir líta út gætu þeir fengið
HEIMSMYND 43