Heimsmynd - 01.11.1991, Síða 46

Heimsmynd - 01.11.1991, Síða 46
KARLMENN OG KYNÞOKKI - Fátt er jafn fráhrindandi og maður sem ekki auðsýnir kon- um tilhlýðilega virðingu og viðurkennir þær ekki sem andlega jafnoka sína. ingar eru óhult í skjóli hans. Hann veit hvað hann vill, fyrir hverju hann er að berjast og spyr engan um leyfi. Enn í dag eimir talsvert eftir af jíessari goðsögn eins og glöggt má sjá í kvikmyndum eins og Die Hard, Terminator eitt og tvö. Að sama skapi er spilað á þessar nótur í sjónvarps- og tímarita- auglýsingum. Karlmaðurinn er í það minnsta höfðinu hærri en konan sem leitar skjóls í örmum hans þar sem hann stendur ber að ofan með hnyklaða brjóstvöðva og rakspíraflösku í annarri hendinni. Fátt er jafn heillandi í fari manns og greind. Greindur maður á auðvelt með að heilla konur með einlægni og hnyttnum athugasemdum um lífið og tilveruna. Hann er vel heima í öllum málefnum, blessunarlega laus við fordóma og getur rætt allt milli himins og jarðar án þess að það særi karlmennskuímynd hans. Greindur maður getur ekki aðeins talað um fagurbókmenntir jafnt og baráttu fyrir betri heimi, hann getur líka sett sig í spor annarra. Hann á auð- velt með að gera sér grein fyrir því hvað konur vilja og hvað þeim finnst aðdáunar- vert í fari karla. Slíkur mað- ur hefur öll vopn í hendi sér og greind til að færa sér það í nyt. Afburðargreinda karl- menn er ekki að finna á hverju strái en þeir bera af eins og gull af eiri þar sem til þeirra sést. Olafur Jó- hann Olafsson, forstjóri So- ny Electronic Publishing, fellur í þennan hóp. Hann er ekki aðeins fluggreindur og glæsilega vaxinn, með fágaða framkomu og heims- borgaralegt yfirbragð heldur er hann jafnframt laus við tilgerð og tekur sjálfan sig og lífið ekki of hátíðlega. Að sama skapi og greind er aðlaðandi er fátt jafn frá- hrindandi og maður sem ekki auðsýnir konum tilhlýðilega virðingu og við- urkennir þær sem andlega jafnoka sína. Menn sem reyna að hefja sig á stall með því að setja konuna skör lægra geta aldrei orðið kynþokkafullir í þeirra aug- um. Dæmi um slíkt sem allar konur þekkja úr hversdagslífinu er þegar jafnvel bláókunnugur maður tekur að ávarpa viðmæl- enda sinn vina mín, elskan eða góða mín. Slíkt háttalag karl- manna miðar að því meðvitað eða ómeðvitað að sýna konu yf- irburði karlmannsins sem hún er á tali við í það skiptið. Ef einhver karlmaðurinn telur sig með þessu háttalagi vekja kenndir í brjóstum kvenna sem eiga eitthvað skylt við ímynd harðjaxlsins og einfarans í vestramyndum má benda þeim sama á að honum væri hollast að skipta um öngul, konur bíta ekki á hann þennan. Kímni er mikilvægur hluti kynþokkans. Maður sem ekki sér ljósu punktana í tilverunni og tekur sjálfan sig og aðra of há- tíðlega verður alltaf hálf þunglamalegur og leiðinlegur. Það er lítið gaman fyrir konu að vera návistum við mann sem tekur sjálfan sig svo hátíðlega að hann á meira að segja bágt með að daðra lítið eitt vegna þess að hann er ekki viss um að það sé viðeigandi. Pað að vera áhugasamur um það sem er að gerast og vera tilbúinn að taka þátt ýtir undir og magnar spennu í kringum hann. Áhuginn kveikir blik í augum og órætt bros leikur um varir. Karlmenn sem eru slíkum kostum búnir eiga auðvelt með að hrífa konur með sér. Það er alltaf gaman og spennandi að vera návistum við slíka menn og konur upplifa samverustundirnar sem ævintýri, óskrifaða sögu þar sem allt getur gerst. Konur vilja vissulega gjarnan hafa fastan punkt í tilverunni en enginn getur þrifist og dafnað lengi án spennu, eftirvæntingar og ævintýra. Menn sem kunna að koma konum á óvart, senda blóm, fara með þær út að borða, elda nýjan mat, fara með þær á nýja og spennandi staði, standa með pálmann í höndunum. Þeir eru ómót- stæðilegir í augum kvenna, draumaprinsarnir sem vekja jafnan öfund í sauma- klúbbnum. Sú kímni sem hér er átt við er fyrst og fremst afstaða mannsins til sjálfs sín og umhverfisins. Hún kemur því innan frá en ekki með því að leggja tíu brandara á minnið sem síð- an eru látnir flakka yfir kvöldverðinum eða við þær konur sem villast að bar- borðinu. Hins vegar getur einnig hér keyrt um þver- bak. Þegar karlmaður er orðinn svo upptekinn af því að skapa notalegt umhverfi finnst mörgum konum að sér vegið. Maður sem eyðir mörgum klukkutímum í að hafa upp á servíéttum og kertum sem fara vel við dúk- inn og matarstellið er ekki kynþokkafullur í augum þeirra. Konur vilja ekki menn sem eru eins og mæður þeirra. Kynþokki felst í hæfilegum skömmtum af réttu hlutun- um. Vissulega þykir konum mikið til um þá menn sem eiga til að elda spennandi og framandi mat, en þær vilja ekki slík hús- legheit á kostnað annars. Ekkert má skyggja á þá staðreynd að þeir eru karlar og það er sá þáttur í fari þeirra sem konur laðast að. Konur laðast að ríkum mönnum. Á dögunum lét einn við- mælandi HEIMSMYNDAR þau orða falla að á veitingastaðn- HVAÐ FINNST ÞÉR KYNÞOKKAFULLT í FARI KARLMANNA? Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir. „Kynþokki karlmanna felst að mínu mati í ákveðinni út- geislun, þar sem útlit og inn- ræti spila saman. Fallega eygðir karlmenn finnast mér alltaf mjög kynþokkafullir.“ Ástrós Gunnarsdóttir. „Hvernig þeir bera sinn „kar- akter“. Mér finnst menn kyn- þokkafullir ef þeir standa undir því sem þeir sýna.“ 46 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.