Heimsmynd - 01.11.1991, Síða 48

Heimsmynd - 01.11.1991, Síða 48
KARLMENN OG KYNÞOKKI - Það er lítið gaman fyrir konu að vera návistum við karl- mann sem tekur sjálfan sig svo hátíðlega að hann á bágt með að daðra lítið eitt við hana yfir rómantískum kvöldverði. um Ömmu Lú yrði vart þverfótað fyrir kornungum stúlkum í leit að ríkum mönnum. Það er talsvert til í þeirri gömlu sögn að konur heillist af peningum og völdum. Ríkur karlmaður er óneitanlega prýðilegur kostur fyrir unga konu, en að sama skapi myndu fáar konur selja skrattanum sál sína fyrir pen- inga. Peningar einir sér geta ekki komið í stað persónutöfra, útlits og gáfna en þeir geta virkað sem aðdráttarafl fyrir kon- ur. Astæðunnar er ekki langt að leita, konur hafa alla jafna lægri tekjur, líkt og niðurstöður könnunar Jafnréttisráðs sýna, þannig að oft er það að giftast rík- um karlmönnum sú leið sem þær sjá sér færa til að tryggja sér betri lífsafkomu. Pá má benda á að lengi lifir í gömlum glæðum. Hlutverk karlmanna hefur í gegnum aldirnar verið að draga björg í bú og karlmennskan gjarnan mæld í því hversu vel manni vegnaði í hlut- verki framfærandans. Að vissu leyti má segja að karl- mennska sé enn mæld í getu manns til að afla tekna og því hrífist konur af ríkum karlmönnum. Margar konur falla eins og flugur fyrir yfirmönnum sínum. Völd virðast alltaf hafa jafn mikil áhrif á konur, þrátt fyrir einlægan vilja þeirra til að koma fram breytingum á stöðu og viðhorfum til kvenna í samfélaginu. Ef til vill hefst leikurinn þegar fyr- ir fermingu meðan stúlkur hella sér í ástarsögurnar þar sem hjúkrunarkonunni og yfirmanni hennar lækninum er teflt saman. Reyndar heldur sama mótunin áfram, hver man ekki eftir Holly- wood-kvikmyndunum Working Girl og Pretty Woman, þar sem söguhetj- urnar, annars vegar gleði- kona og hins vegar ómenntuð skrifstofublók, hrepptu þann stóra þegar valdamiklir fjarmálamenn létu svo lítið að líta við þeim. Menn í áhrifa- og valdastöðum njóta oft ótrúlegrar kvenhylli sé tekið mið af líkamlegu atgerfi þeirra. Þetta geta verið stjórnendur ríkisstofnana, stórfyrirtækja eða stjórnmála- menn sem fáar konur myndu hugsa tvisvar um ef ekki kæmu til völd þeirra og virðing. Líklega er hér komið afbrigði af hinni viðteknu ímynd karlmannsins sem verndara konunnar, sterka aðilans sem getur séð fyrir henni og verndað. Það má til dæmis stórlega draga í efa að John F. Kennedy fyrrum for- seti Bandaríkjanna hefði notið jafn mikillar kvenhylli og raun bar vitni hefði hann ekki orðið forseti. En þegar glæsilegt útlit og atgerfi fóru saman við gífurleg völd og ríkidæmi varð hann ómótstæðilegur öllum konum. Agætt ís- lenskt dæmi er Jón Óttar Ragnarsson. Margir karl- menn furðuðu sig á kven- hylli hans á uppgangsárum hans sem sjónvarpsstjóra Stöðvar 2. Einhver gekk svo langt að líkja honum í klæðaburði við araba í London, þar sem hann dansaði milli kvennanna sem biðu með opinn arm- inn, í þykkbotna leðurstíg- vélum, renndum á hliðinni, í þröngum ljósum jakkafötum með útvíðum skálmum. Svarið er einfalt. Hann náði að skapa umhverfis sig áru, hann sýndi því fólki sem á vegi hans varð áhuga, lagði sig fram við að læra nöfn þess og naut þess að baða sig í sviðsljósinu. Hann dáð- ist að sjálfum sér og konurn- ar dáðust að honum. Allar konur dreymir um prinsinn á hvíta hestinum, en flestar láta sér nægja ein- hvers konar ígildi hans. Hins vegar ættu karlmenn að vera meðvitaðir um að konur hafa vakandi auga og taka eftir kynþokkafullum karlmanni verði hann á vegi þeirra. Pað er löngu afsönn- uð kenning að konur hafi minni áhuga en karlmenn á kynlífi og öllu sem því teng- ist. Þær kunna að meta sam- vistir við kynþokkafulla menn og leita eftir þeim, þær fara í kvikmyndahús til að horfa á kyntröllin þeysast um skjáinn og sanna karlmennsku sína með því að bjarga því sem bjargað verður. Konur eiga kröfu á því að karlmenn hugsi sinn gang og reyni að koma til móts við þær að þessu leyti. Þeir þurfa að halda sig til fyrir þær líkt og konur hafa gert fyrir þá frá ómuna tíð.D HVAÐ FINNST ÞER KYNÞOKKAFULLT I FARI KARLMANNA? Helga Guðrún Jónas- dóttir. „Fyrst tek ég eftir höndun- um, þá nefinu og síðan kjálkasvipnum og andlitsfall- inu. Ef ég á að falla fyrir ein- hverjum verður hann að vera kurteis og í alla staði háttvís. Klæðaburðurinn hefur líka sitt að segja. Karlmaður verður að vera öruggur í framkomu og fasi. Hann þarf að vera týpan sem segir „ég veit hvað ég vil“. Þótt maður vildi geta sagt að útlitið skipti litlu er það nú svo að í þessu sambandi skiptir það gífur- lega miklu máli.“ Ragnhildur Hjaltadóttir. „Það er afskaplega margt sem gerir það að verkum að sumir karlmenn eru barma- fullir af kynþokka og aðrir alls ekki. Það hefur ekkert að gera með það hvort karl- maður er laglegur eða ekki, ungur eða gamall. Fyrir mér er kynþokki fyrst og fremst hughrif, útgeislun karlmanns sem hrífur hugann og örvar. Ef ég á að nefna eitt tiltekið atriði þá eru augun tvímæla- laust mögnuðust. Ég get ekki heldur séð fyrir mér kyn- þokkafullan mann sem skort- ir alla kímnigáfu.“ 48 HEIMSMYND
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Heimsmynd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimsmynd
https://timarit.is/publication/1408

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.