Heimsmynd - 01.11.1991, Page 56
KARLMENN OG KYNÞOKKI - Á sólarströnd fer íslendingurinn í stuttbuxurnar sínar en
er ennþá í sokkunum og skónum sem hann notar á skrifstofunni.
aðinn. Þá flaska þeir margir á því að vera í sömu skónum við
hvaða tækifæri sem er og jafnvel sokkum úr hvítum gerfiefn-
um.
Sokkar eiga að vera í stíl við skóna og þeir eiga að vera úr
náttúrulegum efnum, ull, bómull eða silki. Það eru smáatriðin
sem fara alveg með útlit íslenskra karlmanna - punkturinn yf-
ir i-ið sem þeir hirða fæstir um. Mér er það alveg óskiljanlegt
af hverju svo margir þeirra eru til dæmis með gat og eyrna-
lokk í öðru eyranu. Og ef þeir ganga með axlabönd eiga þeir
að fjarlægja kósurnar af buxnastrengnum. Þeir eiga annað
hvort að nota belti eða axlabönd en ekki að vera með tómar
kósur.
Almennt eru menn hér mjög hefðbundnir í klæðaburði. Þá
skortir ímyndunarafl. Þá kunna þeir ekki að klæða sig eftir að-
Á íslandi eru þó til afgerandi vel klæddir menn. Hjörleifur
Guttormsson þingmaður er svo vel klæddur að enskur
aristókrat kemst ekki með tærnar þar sem Hjörleifur hefur
hælana. Hann er álíka vel til fara og ítalskur aðalsmaður. Föt-
in hans eru svo vel sniðin og hann notar litasamsetningar sem
þekkjast varla hér. Hann er eini stjórnmálamaðurinn sem get-
ur leyft sér að mæta í hárauðum jakka í pólitískt viðtal í sjón-
varpi. Friðrik Sophusson fjármálaráðherra er glæsilegur til
fara enda grannvaxinn og flest fer honum vel. Páll Magnússon
sjónvarpsstjóri virðist fylgjast vel með tískustraumum. Bubbi
Morthens er einn fárra sem hefur sláandi persónulegan stíl.
Þótt hann sé á rokkaralínunni er klæðaburður hans þaulhugs-
aður. Jón Sigurðsson er ætíð fínn í tauinu sem og Hans Krist-
ján Árnason en báðir helst til hefðbundnir. Sigurður Gísli
KLÆÐNAÐURINN
BUBBI MORTHENS JÓN SIGURÐSSON
hefur sláandi hefðbundinn
persónulegan stfl
HANS KRISTJÁN
ÁRNASON
ANDRI MÁR
INGÓLFSSON
SIGURÐUR GÍSLI
PÁLMASON
fínn í tauinu
fallega klæddur ungur bandarískt élite-útlit
maður
stæðum eins og sést berlega þegar þeir fara í heitara loftslag.
Á sólarströnd fer íslendingurinn í stuttbuxurnar sínar en er
ennþá í sokkunum og skónum, sem hann notar á skrifstof-
unni.
Islenskir karlmenn eru nýlega farnir að nota steinkvatn og
nota of mikið af því. Ilmurinn af sumum þeirra yfirgnæfir ang-
an kvennanna í kringum þá. Árið 1966 vann ég í herrafata-
verslun og þá lá við að maður þyrfti að grípa til ilmsaltsins oft
á dag þegar þeir fóru úr jökkunum sínum og svitalyktin gaus
upp. Nú virðast þeir orðnir hreinlegri og leggja augljóslega
meira upp úr útliti og klæðaburði en áður. Þeir eru orðnir
nokkuð góðir í því að velja sér hálstau en skortir almennt
persónulegan stfl. Allt of margir kaupa sér hálstau og vasaklút
í stfl. Þar nær hugmyndasnauðin hámarki. Gott dæmi um
hefðbundinn íslenskan karlmann í klæðaburði er Þórarinn
Tyrfingsson yfirlæknir.
Pálmason er sláandi smart, eini íslendingurinn sem ég man
eftir sem er til fara eins og karlmenn í bandarískri yfirstétt.
Hann hefur amerískt élite-útlit. Stfll hans er fólginn í einföld-
um fatnaði, jakkafötin eru rúm, útlitið ávallt persónulegt og
hann yfirkeyrir aldrei á fylgihlutum, er til dæmis í einu lit-
skrúðugu vesti eða peysu en allt hitt er einfalt. Andri Már
Ingólfsson hjá Veröld er mjög fallega klæddur ungur maður
og þeir eru margir fleiri.
FRAMKOMA ÍSLENSKRA KARLMANNA VIÐ KONUR
I samskiptum sínum við kvenfólk er íslensku karlþjóðinni í
mörgu ábótavant. Þeir verða að læra að koma fram við konur
eins og jafningja. Þeir verða að gera sér grein fyrir því að eitt
glas á bar er ekki greiðsla fyrir næturgreiða. Það er ákveðin
smekkleysa sem einkennir afstöðu karla hér til kvenna og hún
er í stfl við sérsmíðuðu íslensku hjónarúmin og 300 fermetra
56 HEIMSMYND