SSFblaðið - dec 2014, Qupperneq 2
UPPSAGNIR OG STARFSLOKASAMNINGAR
„Eitt versta áfall sem einstaklingur lendir í er að missa vinnuna, lífsbjörgina. Þetta
er sérstaklega sárt fyrir starfsmenn sem hafa helgað sama fyrirtækinu mest alla, eða
jafnvel alla sína starfsævi, en lenda í uppsögn (starfslokum) algjörlega óviðbúnir, oft
nokkrum árum áður en eftirlaunaaldri er náð“ segir Friðbert Traustason, formaður
SSF, í leiðara blaðsins.
- bls. 4 -
MUNU 500 KR. OG 2.000 KR. SEÐLAR FJARA ÚT?
Fjallað er um verðmæti og hlutfall þeirra seðla sem eru í umferð skv.
Fjármálainnviðum Seðlabankans.
- bls. 6 -
FORMANNA- OG TRÚNAÐARMANNAFUNDUR SSF
Yfir sjötíu félagsmenn aðildarfélaga SSF sóttu fundinn þar sem farið var yfir horfur
komandi kjarasamningsviðræðna, lífeyrismálin, stefnumótun SSF og fleira, en fyrst og
fremst var áherslan lögð á kjaragerð samtakanna þar sem áherslur samtakanna voru
kortlagðar.
- bls. 8-9 -
STARFSMANNAFÉLAG SEÐLABANKANS (SFS)
Umfjöllun og kynning á Starfsmannafélagi Seðlabankans.
- bls. 10-11 -
FRAMTÍÐIN Í UPPLÝSINGATÆKNI FJÁRMÁLAFYRIRTÆKJA 2.0
Reiknistofa bankanna (RB) hélt í lok október áhugaverða ráðstefnu um framtíð
upplýsingatækni innan fjármálageirans. Ráðstefnan bar yfirskriftina Framtíðin í
upplýsingatækni fjármálafyrirtækja 2.0. Færri komust á ráðstefnuna en vildu því
uppselt var nokkrum dögum fyrir og því fullt út að dyrum í ráðstefnusal Icelandair
Hótel Reykjavík Natura.
- bls. 12-13 -
FRÉTTAANNÁLL SSF
Í fréttaannál SSF er farið yfir það helsta sem gerðist á árinu hjá SSF. Þá er stiklað á
stóru á sviði bankamála og viðskipta – og efnahagsmála. Jafnframt er leitast við að
birta helstu tíðindi á sviði menningarmála og einnig annað markvert sem gerðist á
sviði þjóðmálanna.
- bls. 14-46 -
HÁTÍÐARKROSSGÁTA SSF
Vegleg verðlaun fyrir réttar innsendar lausnir.
- bls. 47 -