SSFblaðið - dec 2014, Qupperneq 4

SSFblaðið - dec 2014, Qupperneq 4
4 Rúmum sex áRum eftiR efnahagshRunið eRu fjáRmálafyRiRtækin og dóttuRfyRiRtæki þeiRRa enn að segja staRfsmönnum upp staRfi eða semja við þá um staRfslok. Samkvæmt tölum hjá SSF hafa rúmlega tvö þúsund félagsmenn misst starf sitt frá byrjun árs 2008 til dagsins í dag. Flestir voru félagsmenn SSF tæplega sex þúsund en eru núna rúmlega fjögur þúsund. Þar af eru þrjú hundruð með einstaklingsaðild og starfa hjá fjármálafyrirtækjum sem ekki hafa skrifað undir „Samkomulag um kjarasamninga bankamanna“ frá 14.10.2004. Fækkunin hjá aðildarfyrirtækjum kjarasamnings SSF er um tvö þúsund starfsmenn og útibúum og afgreiðslustöðum hefur á sex árum fækkað úr hundrað og fimmtíu niður í níutíu. Og enn er boðuð frekari „hagræðing“ þrátt fyrir þá staðreynd að fjöldi starfsmanna sé nú kominn niður í sama fjölda og starfaði að meðaltali hjá samningsaðilum SSF á árunum 1985-2005. Auðvitað spilar tækni og sjálfvirkni stærra hlutverk í rekstri fjármálafyrirtækja nú en var fyrir 20 árum. En þá verður einnig að benda á að nánast allt greiðslumiðlunarkerfi landsmanna fer í dag í gegnum aðildarfyrirtæki SSF, en það var ekki fyrir 20-30 árum. Á fyrirtækin og starfsmenn eru síðan á hverju ári settar auknar kröfur um öryggi þjónustu, víðtækari ráðgjöf og fjölbreytta upplýsingagjöf til eftirlitsaðila á vegum íslenska ríkisins. Eitt versta áfall sem einstaklingur lendir í er að missa vinnuna, lífsbjörgina. Þetta er sérstaklega sárt fyrir starfsmenn sem hafa helgað sama fyrirtækinu mest alla, eða jafnvel alla sína starfsævi, en lenda í uppsögn (starfslokum) algjörlega óviðbúnir, oft nokkrum árum áður en eftirlaunaaldri er náð. Reglur um uppsagnir samkvæmt lögum og kjarasamningum á almennum vinnumarkaði eru því miður handónýtar og bjóða ekki uppá hugsanlega vernd af neinu tagi. Það er galopið að segja starfsmönnum upp án nokkurra gildra ástæðna. Eina sem fyrirtækin verða að uppfylla er að greiða a.m.k. umsaminn uppsagnarfrest. Ákvæði í kjarasamningi SSF um að „starfsmanni skuli veittur kostur á að tala sínu máli áður en lokaákvörðun um uppsögn er tekin“ hafa ekki virkað þar sem ákvörðun um uppsögn (starfslok) er þegar tekin þegar starfsmaður er kallaður til fundar með stjórnanda. Undanfarin ár hefur víðast hvar í Evrópu gilt samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunar nr. 158 þar sem áréttað er að við uppsögn skuli viðkomandi starfsmanni gert mögulegt að tala sínu máli. Í samþykktinni segir m.a. „Starfsmaður á rétt á viðtali um starfslok sín og ástæður uppsagnar. Beiðni um viðtal skal koma fram innan fjögurra sólarhringa frá því uppsögn er móttekin og skal viðtal fara fram innan fjögurra sólarhringa þar frá. Starfsmaður getur óskað þess þegar að loknu viðtali eða innan fjögurra sólarhringa að ástæður uppsagnar séu skýrðar skriflega“. Alþingi Íslendinga hefur enn ekki innleitt þessa tilskipun í lög hér á landi þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar samtaka stéttarfélaga þar um. Vonandi verður árið 2015 hliðhollt félagsmönnum SSF og fyrirtækjunum sem þeir starfa hjá. Framundan er að gera kjarasamninga, sem verður flókið að koma saman, sérstaklega ef semja á til lengri tíma en eins árs. Gleðilegt nýtt ár og bestu þakkir fyrir gott samstarf undanfarin ár. Friðbert Traustason, formaður SSF UPPSAGNIR OG STARFSLOKASAMNINGAR við eRum á facebook Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja eru komin á Facebook. Við höfum stofnað Facebook síðu þar sem að við munum flytja fréttir af starfi samtakanna, birta myndir úr starfinu og segja frá því sem er í deiglunni. Slástu í hóp með okkur á Facebook og fylgstu með því sem að verður að gerast hjá okkur í vetur. Það sem þú þarft að gera er að slá Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja í leitarstreng Facebook og „læka“ við síðuna.

x

SSFblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.