SSFblaðið - Dec 2014, Page 7
7
miðstjóRnaRfunduR samtaka staRfsmanna noRRænna
fjáRmálafyRiRtækja (nfu) vaR haldinn Í ReykjavÍk þann 23.
okt. sl. SSF hefur verið fulltrúi Íslands sem aðili að NFU frá
upphafi en samtökin voru stofnuð árið 1953 sem Norræna
bankamannasambandið. Meginhlutverk NFU í dag er að
vera sameiginlegur umsagnaraðili aðildarfélaganna gagnvart
lagafrumvörpum Evrópusambandsins.
Á dagskrá fundarins voru hefðbundin miðstjórnarstörf þar sem
farið var yfir skýrslu um störf stjórnar, strauma og stefnur NFU,
aðildargjöld, starfsemisáætlun og kosningu stjórnar. Micheal
Budolfsen var endurkjörinn formaður samtakanna á fundinum.
Á meðal þeirra sem fluttu erindi á fundinum voru Steingrímur J.
Sigfússon, fyrrverandi fjármálaráðherra, og Anna Karen Hauksdóttir,
1. varaformaður SSF. Erindi þeirra tengdust bæði þema málþingsins,
um hvernig Íslandi hefur tekist að vinna sig út úr fjármálakreppunni.
Í erindinu sem Anna Karen flutti fór hún yfir það hvernig SSF
brást við kreppunni og hvernig aðgerðir samtakanna snerust um að
styðja við félagsmenn sína eftir áfall kreppunnar, tryggja laun þeirra
og hjálpa þeim sem misst höfðu vinnuna við að missa ekki móðinn.
Þá fór hún yfir það hvernig starfsumhverfi fjármálafyrirtækja hafi
þróast frá árinu 2008, skattaþróun, ímyndarvinnu fjármálafyrirtækja,
núverandi eignarhald og mögulega framtíð í þeim efnum sem
og hvernig fjármálafyrirtækjunum gengur að endurvinna traust
viðskiptavina og samfélagsins.
Steingrímur J. Sigfússon fór yfir það í erindi sínu hvernig Ísland
hafi risið upp úr kreppunni og sagði m.a. að við gætum dregið þann
lærdóm af fjármálakreppunni að það væri ótækt að hafa fjármálakerfi
þar sem ágóðinn væri einkavæddur en skaðinn þjóðnýttur. Hann
fór einnig yfir skyldu samfélagsins við að viðhalda velferðarkerfinu
og veita lægstu tekjuhópunum skjól í fjármálakreppu.
menntunaRsjóðuR ssf Í nokkRum skRefum
• Umsóknum og fylgigögnum er skilað rafrænt í gegnum heimasíðu SSF.
• Vegna sumar- og haustannar er sótt um fyrir 15. janúar ár hvert.
• Einungis eru veittir styrkir vegna námsgjalda en ekki vegna annars kostnaðar sem til fellur við námið s.s.
bókakostnaðar eða ferðakostnaðar.
• Styrkhæft nám er allt einingametið nám, tungumálanám og sjálfstyrking.
• Hámarksstyrkur er 50% af námsgjöldum, þó að hámarki kr. 150.000,- á önn. Hámarksstyrkur vegna
tungumálanáms er kr. 30.000,-
• Styrkir eru greiddir eftir að umsóknarfrestur er liðinn.
minnum á heimasÍðuna
Ný heimasíða SSF var tekin í notkun í apríl 2013. Mikil vinna hefur verið
lögð í að gera síðuna sem aðgengilegasta fyrir félagsmenn. Hægt er að nálgast
ýmsar upplýsingar á heimasíðunni s.s. um orlofsmál, upplýsingar um sjóði,
launareiknivél, niðurstöður kannana félagsins, hægt er að skoða útgáfumál
félagsins, upplýsingar um trúnaðarmenn og margt fleira.
Allar ábendingar og athugasemdir um það sem betur má fara á síðunni eru vel
þegnar á ssf@ssf.is.
MIÐSTJÓRNARFUNDUR NFU Á ÍSLANDI
Ulrika Boëthius, varaforseti NFU, og Michael Budolfsen, forseti NFU.