SSFblaðið - des. 2014, Síða 10
10
saga seðlabanka Íslands hófst 7. apRÍl 1961 en þá vaRð
fullum aðskilnaði milli seðlabankans og landsbanka Íslands
Í RekstRi og skipulagi náð. Í kjölfaRið, eða haustið 1962, vaR
staRfsmannafélag seðlabanka Íslands (sfs) stofnað og gegndi
siguRðuR öRn einaRsson fyRstuR staRfi foRmanns sfs. Frá stofnun
SFS hefur félagið vaxið og dafnað og eru félagsmenn 174 um þessar
mundir. Helstu markmið félagsins eru að auka samstarf og kynni
starfsmanna innbyrðis, ásamt því að efla samstarf milli starfsmanna og
stjórnar bankans. Einnig vinnur félagið að kjaramálum starfsmanna
og gætir hagsmuna félagsmanna í hvívetna.
Stjórn SFS er kjörin á aðalfundi félagsins sem haldinn er einu
sinni á ári. Stjórnin er skipuð sjö starfsmönnum frá ólíkum sviðum
Seðlabankans og er Guðríður Lilla Sigurðardóttir núverandi
formaður. Tveir stjórnarmeðlimir mynda orlofshúsanefnd SFS og
þrír meðlimir stjórnar skipa íþrótta- og skemmtinefnd SFS. Stjórnin
tilnefnir einnig fulltrúa í jafnréttis- og kjaranefnd, mötuneytisnefnd
og öryggisnefnd. Á hverju ári hittast fulltrúar starfsmannafélaga
Seðlabanka Norðurlandanna og Eystrasaltslanda og bera saman
bækur sínar og fara yfir stöðuna í hverju landi fyrir sig.
skemmtinefndin stendur fyrir ýmsum uppákomum og er stefnan
sú að halda að lágmarki einn viðburð í hverjum mánuði. Stærsti
viðburður ársins er án efa árshátíðin sem haldin er í samvinnu við
bankann. Næsta árshátíð verður haldin á Valentínusardaginn sjálfan,
14. febrúar. Aðrir fastir liðir eru sumargrill sem haldið er á hverju
vori til að fagna komu sumars, októberfest og jólaglögg þar sem
yfirleitt er boðið upp á hinar ýmsu tegundir af jólabjór. Síðast en
ekki síst er haldið jólaball í desember fyrir börn starfsmanna. Dæmi
um aðra viðburði og uppákomur sem boðið hefur verið upp á eru
t.d. konfektnámskeið, keilumót, ís í allri sólinni sem skein síðasta
sumar, kökuskreytingarnámskeið, Bjórskóli, Sushi-námskeið og
bleik kvöldstund.
ÍþRóttanefndin sér um að úthluta styrkjum einu sinni á ári til
starfsmanna Seðlabankans til íþróttaiðkunar. Styrkirnir hafa til að
mynda verið nýttir í:
golf: Síðasta vor var boðið upp á golfkennslu og mættu þar
starfsmenn til að æfa sveifluna og jafnvel til að rifja upp
gamla takta. Golfmót fyrir starfsmenn var haldið í sumar.
Spilað var á mismunandi völlum en lokaumferðin fór fram
á golfvellinum á Akranesi. Einnig var haldið skrifstofu-
púttmót í húsakynnum Seðlabankans þar sem leysa þurfti
ýmsar þrautir og gekk keppendum misjafnlega vel að koma
kúlunni í holuna.
sjósund: Vikulega hittast nokkrir galvaskir starfsmenn í hádeginu
í Nauthólsvík og skella sér saman í sjósund. Yfirleitt er reynt
að fara á miðvikudögum til að brjóta upp vinnuvikuna og
endurnæra hugann til að klára vikuna en sjósund örvar meðal
STARFSMANNAFÉLAG
SEÐLABANKANS (SFS)