SSFblaðið - Dec 2014, Page 13
13
markað. Hann sagði þennan nýja heim gjörbreyttan, ef fólki líkar
við vöruna og hún er einföld í notkun þá mun varan sjá um sína
eigin markaðssetningu án nokkurs auglýsingakostnaðar.
Greiðslum í gegnum síma er einnig að fjölga, en gífurleg aukning
hefur verið í sölu á vörum í gegnum snjallsíma á undanförnum árum.
Greiðslur í gegnum Paypal greiðsluveituna hefur t.a.m. stökkbreyst
á undanförnum árum og fjölmargir eru farnir að sérsníða þjónustu
sína að notendum snjallsíma t.d. Uber leigubílaþjónustan ásamt
fleiri leigubílaþjónustum. David tók fleiri dæmi um það hvernig
síminn væri að breyta öllum markaði og nefndi nokkur dæmi um
það hversu ört viðskiptum í gegnum snjallsímaforrit væri að fjölga.
#2 „netcoin“
Banki í núverandi mynd verður óþarfur fyrir fjöldann. Með tilkomu
nettengingar og örra samskiptaframfara eru flestir tengdir inn á
net, hvort sem það er internetið eða staðbundið net (t.d. verslana).
Dæmi um afleiðingar þessa eru “peer to peer” gjaldmiðlar eins og t.d.
Bitcoin. Hann sagði sóknartækifæri fyrirtækja fólgin í því, í öllum
geirum, að tengja fólk án nokkurrar milligöngu með því að nota sinn
eigin greiðslumiðil eða a.m.k. veita mun fleiri greiðsluvalmöguleika.
#3 netviðskipti og netbankaR
Framfarir á sviði samskiptamála hafa leitt til þess að við leitum
stöðugt að nýjum leiðum til að fækka hindrunum. Bankar í dag búa
við erfitt umhverfi regluverks sem leiðir til þess að óhefðbundnir
bankar, netbankar, spretta fram á sjónarsviðið. Fyrirtæki eins og
TransferWise sem býður upp á gjaldeyrisviðskipti á netinu eru nú
að rísa mjög hratt og stöðugt bætast ný við. Sem dæmi tók hann
sauðfjáruppboð sem áður voru háð því að þú mættir í fjárhúsið og
bauðst í fé en nú er komið fyrirtæki sem býður upp fjáruppboð á
netinu, þú þarft ekki að mæta né fara í bankann, allt í gegnum netið.
#4 upplýsingaR
Upplýsingar um hegðun viðskiptavina eru ört dýrmætari upplýsingar.
Verslanir eru nú þegar farnar að setja upp “eftirlitskerfi” sem fylgist
með viðskiptavinunum og safnar upplýsingum um þá til að hjálpa
til við framtíðarviðskipti og bjóða upp á persónulegri þjónustu.
Verslanir með andlitsgreini sem geymir þína viðskiptasögu hafa
þegar orðið til í Bretlandi. David segir að fyrirtæki geri sér ekki
fyllilega grein fyrir því hversu mikilvægar þessar upplýsingar eru og
hvað ákveðin mynstur í kauphegðun fólks getur sagt fyrirtækjunum.
Hann viðurkenndi að ýmsum siðferðislegum spurningum varðandi
þetta væri ósvarað en engu að síður væri hér um gríðarlegt tækifæri
fyrir fyrirtæki að ræða.
#5 geRvigReind
Gervigreind er að mati David framtíðartækni sem mun hafa áhrif
á allt.
#6 skynjaRi
Allt þarf að geta tengst. Í dag erum við með síma, bíla, úr, lófatölvur
og fleira sem getur tengst saman. Þessi þróun er að mati David bara
rétt að byrja. Vörur sem skynja, greina og veita upplýsingar um okkur
sjálf verða sífellt algengari. David nefndi dæmi um körfubolta sem
greinir hvert skot, hann nefndi verslanir sem nema skynjarana og
getur gert verslunum grein fyrir að þú sért t.d. að nálgast (þannig
gæti t.d. daglega kaffið þitt verið tilbúið þegar þú kemur í kaffihúsið),
hann nefndi buxur með innbyggðum skrefamæli og mjólkurfernur
sem láta þig vita, t.d. í símann þinn, að mjólkin sé farin að súrna o.fl.
#7 einföldun
Með örari tækniframförum verður krafan um einfaldleika sífellt
háværari. Fyrirtæki sem eru ekki að selja neitt nýtt eru nú að spretta
fram í heiminum með því að bjóða vöru með einfaldari hætti
þ.e. fækka öllum hindrunum. Tækni sem býður upp á að fækka
hindrunum, t.d. með því að notast ekki við leyniorð, eru að verða
mikilvæg og dýrmæt. Allt sem sparar tíma, hverja fyrirhöfn og eykur
einfaldleikann er virði fjölda viðskiptavina.
#8 hRaði
Fólk gerir kröfu um skjótan afgreiðslutíma. Fólk mun ekki vilja
bíða eftir reikningum, vörunni eða þjónustunni. Mikilvægi þess að
geta fært kúnnanum vöruna samdægurs og án nokkurs tilstands er
mikilvægur þáttur í nútíð og framtíð.
#9 viRði þjónustu
Þjónusta er vaxandi atvinnugrein. Ný fyrirtæki sem sérhæfa sig í að
veita viðskiptavinum sínum margvíslega þjónustu eru farin að verða
áberandi. Sem dæmi um þetta eru tískuverslanir á netinu sem ekki
bara veita þér vörur heldur tengja þig við stílista sem ráðleggur þér
og veitir persónulegri þjónustu en áður. Aukin persónulegri þjónusta
án fyrirhafnar og tíma verður sífellt dýrmætari.
#10 öRyggi
Þetta er einn af mikilvægustu þáttunum að mati Davids. Með því
að auka allt aðgengi og gagnasöfnun verður gagnaöryggi sífellt
dýrmætara. Upplýsingar verða dýrmætari og auðveldara að nálgast
þær. Tölvuárásir verða æ algengari og upplýsingum á netinu fjölgar og
því munu gagnaöryggismál verða nauðsynlegur þáttur fyrir fyrirtæki
til að huga að sökum þess að netglæpir eru ört vaxandi glæpir.
Fagráðstefna RB banka var einkar áhugaverð og fræðandi. Í þessari
umfjöllun hefur verið farið yfir í stuttu máli það sem David Rowan
telur að muni hafa hvað mestu áhrif á fjármálageirann í komandi
framtíð. Í næsta blaði verður fjallað um fleiri erindi þessarar fróðlegu
ráðstefnu.
David Rowan flytur fyrirlestur á fagráðstefnu RB.