SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 15
15
moRgunkoRn Íslandsbanka gReindi fRá þvÍ þennan dag að
Íslenska kRónan hefði styRkst um 10% á milli áRa þ.e. fRá 2013-
2014. Fram kom í máli þeirra að útlit væri fyrir verðlækkanir á
innfluttum vörum á árinu. Helsta skýringin fyrir styrkingunni voru
lægri afborganir ríkisins af erlendum lánum á milli ára.
bændablaðið gReindi fRá þvÍ að hRútuRinn bósi fRá
þóRoddsstöðum Í hRútafiRði væRi vinsælasti hRútuRinn til
undaneldis en flestiR sæðisskammtaR komu undan bósa eða á
þRiðja þúsund skammtaR. Hann hefur því að öllum líkindum verið
sá hrútur sem eignast hefur flesta afkomendur sl. vor.
hlaðvaRpinn, menningaRsjóðuR ÍslenskRa kvenna, útlutaði
styRkjum að andviRði 7 milljónum kRóna til kvenna. Hæstu sty-
rkina fengu hljómsveitin Dúkkulísurnar fyrir gerð heimildarmyndar
um hljómsveitina og Ísold Uggadóttir fyrir gerð heimildarmyndar
um hælisleitanda frá Úganda og einstæða móður í Keflavík.
stefán kaRl kRistjánsson, lögmaðuR, lagði fRam kæRu fyRiR
hönd hælisleitandans tonys omos, á hendur Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur, innanríkisráðherra og öllum starfsmönnum
ráðuneytisins vegna meints leka á trúnaðargögnum um Omos.
Málið átti eftir að verða fréttnæmt á árinu.
Íslenska kaRlalandsliðið Í handknattleik hóf keppni á em,
sem fRam fóR Í danmöRku. Liðið hóf leik gegn Norðmönnum
og vann mikilvægan sigur, 31- 26.
heildaRvelta debetkoRta Í desembeR vaR 41,5 milljaRðuR kRóna,
og var það rúmlega 28 prósenta meiri velta en í nóvember, sam-
kvæmt tölum Seðlabankans. Heildarvelta debekorta jókst um 3,7
prósent milli ára.
Íslenska kaRlaliðið Í handknattleik tRyggði séR sæti Í milliRiðli
á evRópumótinu Í danmöRku með jafntefli Í öðRum leik liðsins
á mótinu gegn ungveRjum Í miklum spennuleik.
myndlistaRmanninum RagnaRi kjaRtanssyni voRu afhent
Íslensku bjaRtsýnisveRðlaunin; áletRaðan gRip úR áli og eina
milljón kRóna. Bjartsýnisverðlaunin eru menningarverðlaun
sem veitt eru listamönnum sem með list sinni hafa stuðlað að
bjartsýnu lífsviðhorfi. Verðlaunin voru fyrst afhent árið 1981 og
voru kennd við upphafsmann sinn, Danann Peter Brøste til ársins
1999. Alcan hefur verið bakhjarl verðlaunanna frá árinu 2000.
Frú Vigdís Finnbogadóttir, formaður dómnefndar, kynnti valið
og Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin, en hann hefur
verið verndari þeirra frá upphafi.
Íslenska handknattleiksliðið mátti sætta sig við tap Í sÍðasta
leik sÍnum Í Riðlakeppninni Í álaboRg, gegn spánveRjum,
lokatöluR Í leiknum 33:28.
á þessum degi voRu liðin 100 áR fRá stofnun
eimskipafélags Íslands. Eimskip minntist
dagsins með veglegum hátíðarhöldum í Hörpu
þar sem margir af frægustu tónlistarmönnum
Íslands stigu á stokk.
Íslenska kaRlalandsliðið Í handknattleik lék sinn fyRsta leik
Í milliRiðli evRópumótsins sem fRam fóR Í danmöRku. Íslenska
liðið hóf keppni af mikilli hörku og sigraði lið Austurríkis, 33- 27.
Patrekur Jóhannesson var þjálfari Austurríkis í leiknum.
Íslensk-sænska leikkonan edda magnason hlaut sænsku
kvikmyndaveRðlaunin gullbjölluna fyrir bestan leik í aðal-
hlutverki í kvikmyndinni Monikca Z. Sverrir Guðnason hlaut
einnig verðlaun fyrir bestan leik í aukahlutverki í sömu kvikmynd.
ÍslendingaR unnu nauman siguR á makedónÍu, 29:27 Í öðRum
leik liðsins Í milliRiðli em Í handknattleik Í danmöRku.
seðlabanki Íslands tilkynnti að dRáttaRvextiR og vextiR af
peningakRöfum héldust óbReyttiR, 13,0%, fyRiR tÍmabilið
1. – 28. febRúaR 2014.
áRamótaskaup RÍkissjónvaRpsins sem sýnt vaR á gamláRskvöld áRið
2013 fékk óvenju góða dóma ef maRka má skoðanakönnun mmR
en niðuRstöðuR hennaR voRu biRtaR þennan dag. Samkvæmt
niðurstöðum könnunarinnar þótti 81,3 % landsmanna skaupið
mjög eða frekar gott. Það er umtalsvert meiri ánægja en oft áður.
s t j ó R n m á l
a l m e n n t
m e n n i n g
m e n n i n g
m e n n i n g
a l m e n n t
a l m e n n t
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
m e n n i n g
a l m e n n t
a l m e n n t
a l m e n n t
b a n k a m á l