SSFblaðið - Dec 2014, Page 16
16
fjáRmálaRáðuneytið tilkynnti að það hefði Ráðið tRyggva
þóR heRbeRtsson, hagfRæðing og fyRRveRandi þingmann, sem
veRkefnisstjóRa um fRamkvæmd höfuðstólslækkunaR Íbúðalána.
talið vaR upp úR kössunum Í atkvæðagReiðslu samtaka
atvinnulÍfsins um nýjan kjaRasamning alþýðusambands Íslands
sem undirritaður var af hálfu beggja aðila fyrr í mánuðinum með
fyrirvara um samþykki félagsmanna. Samningurinn var samþykk-
tur með miklum yfirburðum af hálfu fyrirtækja innan Samtaka
atvinnulífsins. 98 prósent fyrirtækja greiddu atkvæði með samnin-
gunum en 0,4 prósent vildu fella þá, niðurstöður atkvæðagreiðslu
félagsmanna ASÍ voru hvergi nærri jafn afgerandi.
Íslenska kaRlalandsliðið Í handknattleik sá aldRei til sólaR
gegn heimamönnum Í danska landsliðinu á evRópumótinu Í
handknattleik. Leikið var í Danmörku og var þetta lokaleikur
liðsins í milliriðli, Danir unnu leikinn auðveldlega 32-23. Það var
því ljóst að Ísland myndi spila um 5. sæti Evrópumótsins.
gReiningaRdeild aRion- banka gaf út spá um þRóun
feRðamannastRaums til Íslands. Þar kom fram spá um áfram-
haldandi fjölgun ferðamanna og að þeir verði meira en 900 þúsund
á þessu ári og fleiri en milljón árið 2015.
ÍslendingaR unnu fRækinn siguR á pólveRjum Í leik um 5. sæti
em Í handbolta kaRla.
standaRd & pooR´s tilkynnti að lánshæfismati RÍkissjóðs
Íslands hefði veRið bReytt Í stöðugaR úR neikvæðum hoRfum.
Í skýrslu um lánshæfismatið segir það vera vegna þess að dregið
hefur úr áhættu í ríkisfjármálum. Jafnframt kom fram að lán-
shæfiseinkunnirnar BBB-/A-3 væru staðfestar.
magnús geiR þóRðaRson, fyRRveRandi leikhússtjóRi
boRgaRleikhússins, vaR Ráðinn útvaRpsstjóRi RÍkisútvaRpsins.
Staðan hafði verið auglýst í desember 2013 eftir að Páll Magnús-
son, sem gegnt hafði stöðunni frá því árið 2005, lét af störfum.
hagstofan gReindi fRá þvÍ að samkvæmt Rannsókn sinni teldust
95 % landsmanna til ReglulegRa netnotenda. Samkvæmt
tilkynningu Hagstofunnar er það hærra hlutfall en í nokkru öðru
Evrópuríki. Í Evrópu teljast að meðaltali 72 prósent íbúa í ríkjum
Evrópusambandsins reglulegir netnotendur. Í tilkynningu Hag-
stofunnar kom fram að tæplega helmingur íslenskra netnotenda
tengist netinu á farsímum eða snjallsímum.
fRÍveRslunaRsamninguR Íslands við kÍna vaR samþykktuR á
alþingi.
félag kvenna Í atvinnulÍfinu veitti þRem konum áRlega
viðuRkenningu félagsins. Liv Bergþórsdóttir, forstjóri Nova,
fékk FKA-viðurkenninguna, sem eru aðal verðlaun félagsins. Þá
fékk Rakel Sölvadóttir, stofnandi Skema, hvatningarviðurkenningu
FKA og Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi,
fékk þakkarviðurkenningu félagsins.
febRúaR
Íslensku vefveRðlaunin voRu afhent á gRand hotel Í ReykjavÍk.
Að þessu sinni var það Nikitaclothing.com sem fékk verðlaunin
sem besti íslenski vefurinn.
stæRsta Reiðhöll landsins vaR vÍgð Í kópavogi við hátÍðlega
athöfn. Kostnaðurinn við bygginguna nam um hálfum milljarði
króna en höllin er 4.000 fermetrar að stærð.
hagstofan gReindi fRá vöRuskiptajöfnuði RÍkisins fyRiR áRið
2013. Fram kom að árið 2013 voru fluttar út vörur fyrir 45,7 mill-
jarða króna en inn fyrir 41,2 milljarða. Vöruskiptajöfnuður ársins
2013 var því hagstæður um 69,4 milljarða króna. Niðurstaðan var
að jöfnuðurinn var 7,9 milljörðum króna lakari árið 2013 en árið
2012 sem skýrist af minni útflutningi á sjávarafurðum.
seðlabanki Íslands bauðst til að kaupa evRuR Í skiptum fyRiR
ÍslenskaR kRónuR til fjáRfestingaR til langs tÍma Í Íslensku
atvinnulÍfi eða gegn gReiðslu Í RÍkisveRðbRéfum Í flokknum
Riks 33 0321. Jafnframt kallaði Seðlabanki Íslands eftir tilboðum
frá aðilum sem vildu selja íslenskar krónur gegn greiðslu í reiðufé
í erlendum gjaldeyri. Útboðin þrjú sem haldin voru þriðjudaginn
18. mars 2014 voru liður í losun hafta á fjármagnsviðskiptum,
bReskiR fjölmiðlaR hófu að gReina fRá þvÍ að heimildiR væRu
fyRiR þvÍ að þýski bankinn deutsche bank hefði keypt næRRi
allaR kRöfuR bReskRa sveitaRfélaga sem þau áttu Í gamla
landsbankanum fyRiR Rúma 26 milljaRða ÍslenskRa kRóna -
140 milljóniR bReskRa punda.
b a n k a m á l
b a n k a m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t
a l m e n n t
a l m e n n t
a l m e n n t