SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 19

SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 19
19 eftirlýstur af stjórnvöldum í Úkraínu vegna ásakana um að hafa fyriskipað morð á mótmælendum. Mikil spenna ríkti á svæðinu og Rússar höfðu vígbúist við Krímskaga. Hópur aðskilnaðarsinna í austurhluta Úkraínu vildi sameinast Rússlandi og hóf að taka yfir stjórnarbyggingar með meintum stuðningi Rússa. Hernaðaraðgerðum Rússa var víða mótmælt og fjölmargir erlendir ráðamenn fordæmdu aðgerðirnar. Íslensk stjórnvöld létur sitt ekki eftir liggja og fordæmdu her- naðaraðgerðir Rússa á Krímskaga og sögðu þær brot á alþjóðalögum. Í yfirlýsingu frá utanríkisráðuneytinu sagði að það væri skýr krafa íslenskra stjórnvalda að Rússar myndu leita sátta með friðsamlegum hætti í stað þess að gripa til vopnaðrar íhlutunar í Úkraínu. landsbankinn tilkynnti að bankinn hefði hagnast um 28,8 milljaRða kRóna eftiR skatta áRið 2013, samkvæmt áRsReikningi bankans. Í tilkynningu bankans sagði að hagnaður bankans hefði aukist um 13% milli áranna 2012 og 2013. Þar sagði jafnframt að rekstrarkostnaður hefði lækkað um 10% og að stöðugildum hefði fækkað um 50 á árinu. Heildareignir Landsbankans námu 1.152 milljörðum króna í lok árs 2013 og var eigið fé bankans um 241,4 milljarðar króna. Íslenska kRónan hélt áfRam að styRkjast. Hagsjá Landsbankans greindi frá því að krónan hefði styrkst um 1% á móti evru í febrúar og stóð í 155 krónum í lok mánaðar, en var 156,6 í lok janúar. Krónan hafði styrkst um 6,5% síðan um miðjan nóvember 2013. iðnþing samtaka iðnaðaRins vaR sett Í tilefni af 20 áRa afmæli samtakanna. Samhliða Iðnþingi fór fram aðalfundur samta- kanna þar sem m.a. var tekist á um formennsku samtakanna en þær Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjörís, og þáverandi formaður Svana Helen Björnsdót- tir gáfu kost á sér. Svo fór að Guðrún Hafsteinsdóttir var kjörin nýr formaður samtakanna, hún hlaut 54,5% gildra atkvæða en fráfar- andi formaður Svana Helen Björnsdóttir hlaut 45,5% atkvæða. moRgunblaðið gReindi fRá þvÍ að seðlabanki Íslands hefði gReitt málskostnað más guðmundssonaR, seðlabankastjóRa, Í dómsmáli hans gegn bankanum vegna ágReinings um kjaRamál. Miklar umræður sköpuðust um málið m.a. vegna þess að greiðsla málskostnaðar kom aldrei til ákvörðunar bankaráðs né var hún borin undir ráðuneyti efnahagsmála. þjóðhagsReikninguR hagstofu Íslands kom út. Í fRéttatilkynningu hagstofunnaR kom fRam að hagvöxtuR á Íslandi hefuR ekki veRið meiRi sÍðan 2007. Landsframleiðsla jókst um 3,3% árið 2013 að raungildi. Einnig var greint frá því að þjóðarútgjöld hefðu lítið aukist á árinu 2013 og að viðskipta- jöfnuður við útlönd hefði verið jákvæður í fyrsta sinn frá árinu 2002. búðaRhálsviRkjun vaR gangsett. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðarráðherra, og Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, gang- settu tvær vélar við virkjunina. Búðarhálsstöð er nýjasta aflstöð Íslendinga og sjöunda stærsta aflstöð Landsvirkjunar. Uppsett afl hennar er 95 MW og hún framleiðir um 585 GWst af rafmagni á ári inná orkukerfi landsmanna. stÍfiR samningafundiR voRu haldniR hjá RÍkissáttasemjaRa Í kjaRadeilu fRamhaldsskólakennaRa og RÍkisins. Framhaldsskólak- ennarar höfðu líst því yfir að verkfall myndi hefjast á næstu dögum hafi ekki samist fyrir ákveðinn tímapunkt í öllum framhaldsskólum landsins, nema Verslunarskólanum. alþjóða fjáRmálalæsisvikan hófst en þetta vaR Í fyRsta sinn sem hún vaR haldin á Íslandi. Átakið miðast við að gera börnum og ungmennum grein fyrir mikilvægi fjárhagslegra réttinda sinna. foRmenn samninganefnda ssf og sa skRifuðu undiR nýjan kjaRasamning sem gildiR til 28. febRúaR 2015. Boðað var til atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna SSF. evRópusambandið, noReguR og fæReyjaR geRa með séR samkomulag um makRÍlveiðaR án aðkomu Íslendinga en samningatilRauniR höfðu staðið yfiR Í nokkRa mánuði. Sig- urður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegsráðherra, sagði í fréttatíma Ríkisútvarpsins að samkomulagið feli í sér að ríkin taka sér samtals rúmlega milljón tonna afla í ár, eða nær átján prósent umfram ráðgjöf Alþjóðahafrannsóknarráðsins ICES. Hann sagði einnig að Evrópusambandið hefði gengið á bak orða sinna um sjálfbærar veiðar með samkomulaginu. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins og fjármálaráðherra, sagði það forkastanlegt af hálfu vinaþjóða og nágrannaríkja að koma saman og gera með sér samkomulag án þess að hleypa Íslendingum að samningaborðinu. Össur Skarphéðinnsson, fyrrverandi utanríkisráðherra, sakaði Norðmenn um að hafa beitt miklum klækjubrögðum og dregið Færeyingana þannig að borðinu með sér. Þá sagði ríkisstjórnin samkomulagið stefna sjálfbærum veiðum í hættu og Gunnar Bragi Sveinsson, utanríkisráðherra, kallaði sendiherra Noregs, fulltrúa Evrópusambandsins og Færeyja á fund í utanríkisráðuneytinu til að gera alvarlegar athugasemdir við hvernig staðið hefði verið að samkomulaginu. b a n k a m á l b a n k a m á l s t j ó R n m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l a l m e n n t

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.