SSFblaðið - dec 2014, Qupperneq 21
21
sigmunduR davÍð gunnlaugsson, foRsætisRáðheRRa,
og bjaRni benediktsson, fjáRmálaRáðheRRa, kynntu
skuldaleiðRéttingaRfRumvöRpin á blaðamannafundi. Þar kom
fram að heildaraðgerðirnar myndi nema allt að hundrað og fimmtíu
milljörðum og ná til hundrað
þúsund heimila. Sigmundur
sagði að það yrði mjög einfalt
fyrir fólk að sækja um leiðrét-
tingu „svona svipað eins og
þegar fólk sendi böggul eða
panti pizzu“.
alþýðusamband Íslands kynnti hagspá sambandsins. Þar spáði
hagdeild 3,2% hagvexti árið 2014, 3,4% árið 2015 og 3,5% árið
2016.
stéttaRfélög innan bsRb skRifuðu undiR kjaRasamning við
RÍkið sem kvað á um 2,8% launahækkun. Mikil fundahöld stóðu
yfir hjá Ríkissáttasemjara. Enn þokaðist lítið áfram í kjaradeilu
framhaldsskólakennara.
ögmunduR jónasson, fyRRveRandi innanRÍkisRáðheRRa,
gagnRýndi haRkalega gjaldtöku við náttúRupeRluR Íslands.
Hann sagði engan lagalegan grundvöll fyrir gjaldtökunni en
landeigendur höfðu tekið upp á því að hefja gjaldtöku við nát-
túruperlur landsins t.d. Geysi og við Kerið. Landeigendurnir
sögðu gjaldtökuna nauðsynlega til þess að mæta auknum fjölda
ferðmanna sem kallaði á aukin viðhaldskostnað. Ögmundur
mótmælti gjaldtökunni með því að halda á Geysissvæðið ásamt
hópi mótmælenda og neita greiða aðgangseyrinn. Hann ásamt
hópnum hélt inn á svæðið án þess að verða krafðir um greiðslu.
landlæknisembættið kynnti Rannsókn um lÍðan og heilsu
Íslendinga. Í rannókninni kom fram að áfengisneysla hjá
landsmönnum færi minnkandi, þeir drykkju minna og sjaldnar.
fulltRúaR tólf stéttaRfélaga Í bandalagi háskólamanna
skRifuðu undiR kjaRasamning við samband ÍslenskRa
sveitaRfélaga.
tilkynnt vaR að anton vasiliev yRði næsti sendiheRRa Rússlands
á Íslandi. Hann tók við af Andrei Tsyganov sem var sendiherra
frá því árið 2010.
apRÍl
mp banki tilkynnti að 477 milljóna kRóna tap hafi veRið af
RekstRi mp banka áRið 2013, eftiR skatta. Fram kom að bankinn
hafi afskrifað viðskiptavild að fjárhæð 772 milljónum króna.
Viðskiptavild hafi þar með verið afskrifuð að fullu. Þá hafi fallið
til talsverður kostnaður vegna hagræðingar og skipulagsbreytinga
í lok síðasta árs. Hagnaður af reglulegri starfsemi í fyrra hafi verið
346 milljónir.
áRsfunduR samtaka atvinnulÍfsins fóR fRam Í höRpu. Lögð var
áhersla á mikilvægi afnáms gjaldeyrishafta, mótun nýrrar penin-
gastefnu og lækkun skatta.
tæplega þRiggja vikna veRkfalli fRamhaldsskólakennaRa lauk.
Skólahald hófst á ný daginn eftir að samkomulagið náðist. Félag
framhaldsskólakennara hóf að kynna efni kjarasamningsins fyrir
endanlega staðfestingu félagsmanna í atkvæðagreiðslu.
félagsmenn félags háskólakennaRa á akuReyRi ákváðu Í
atkvæðagReiðslu að boða til veRkfalls Í tvæR vikuR. Verkfal-
lið var fyrirhugað síðar í mánuðinum.
kennaRaR veRslunaRskólans Í ReykjavÍk samþykktu að boða
veRkfallsaðgeRðiR sÍðaR Í apRÍl.
veRkfallsaðgeRðiR félags flugmálastaRfsmanna, sfR og
landssambands slökkviliðs- og sjúkRaflutningamanna, hófust.
Verkfallið raskaði millilanda- og innanlandsflugi en verkfall-
saðgerðirnar fóru fram í lotum, nokkrar klukkustundir í senn.
Mikil örtröð myndaðist í Leifsstöð þar sem fólk stóð lengi í
miklum röðum eftir að fá að innrita sig í flug. Verkfallsaðgerðum
lauk svo síðar um kvöldið en næstu verkfallsaðgerðir höfðu verið
boðaðar þann 23. apríl.
seðlabankinn gaf út Rit, fjáRmálastöðugleiki. Í Ritinu kom
fRam að staða fyRiRtækja hefði batnað mikið á undanföRnum
mánuðum, fRam kom að staða heimila faRi batnandi, skuldiR
lækki og RáðstöfunaRtekjuR hækki.
spaRisjóðuR noRðfjaRðaR tilkynnti um 70,2 milljón kRóna
hagnað áRið 2013, fyRiR skatt. Fram kom í tilkynningunni að
sparisjóðurinn væri kominn aftur á traustan grunn en um tíma
stóð til að selja sparisjóðinn.
samtök atvinnulÍfsins gáfu út fyRstu hagspá sÍna áRið 2014.
Þar var spáð 3% hagvexti næstu ár sem einkum yrði drifinn áfram
af innlendri eftirspurn.
s t j ó R n m á l
s t j ó R n m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t
b a n k a m á l