SSFblaðið - Dec 2014, Page 22
22
skýRsla RannsóknaRnefndaR alþingis um oRsök á falli
spaRisjóðanna vaR afhent foRseta alþingis. Skýrslan fékk þónok-
kra athygli og var mikið í umræðunni fyrstu dagana eftir birtingu
hennar.
gRÍmuR sæmundsen, foRstjóRi bláa lónsins, vaR kjöRinn
foRmaðuR samtaka feRðaþjónustunnaR á aðalfundi samtakanna.
Grímur tók við embætti af Árna Gunnarssyni, forstjóra Flugfélags
Íslands.
þjóðhagsspá hagstofunnaR kom út. Í spánni var gert ráð fyrir
að hagvöxtur yrði 2,7% árið 2014, 3% árið 2015 og árið 2016.
stúdentaR fjölmenntu fyRiR utan skRifstofuR
fjáRmálaRáðuneytisins og kRöfðust þess að samið yRði við
háskólakennaRa. Háskólakennarar höfðu, að öllu óbreyttu, boðað
verkfallsaðgerðir í lok mánaðarins.
moRgunblaðið gReindi fRá þvÍ að foRystumenn asÍ teldu
foRsenduR þeiRRa kjaRasamninga sem geRðiR voRu til eins áR
Í desembeR og febRúaR veRa bRostnaR. Þeir töldu sig sitja eftir í
hækkunum á meðan aðrir hafi fengið umtalsvert hærri kjarabætur.
Þeir sögðu það ekki ganga að sumir hópar væru látnir axla ábyrgð
á efnahagslegum stöðugleika, en aðrir fengju hækkanir.
gReint vaR fRá þvÍ Í hagtÍðindum hagstofunnaR að gistinóttum
á Íslandi hefði fjölgað um 15% fRá áRinu 2012 til 2013.
félagaR Í sfR, stéttaRfélagi Í almannaþjónustu, samþykktu Í
atkvæðagReiðslu nýjan kjaRasamning við RÍkið.
tÍmaRitið fRjáls veRslun gReindi fRá þvÍ að samkvæmt úttekt
blaðsins væRi össuR hf. veRðmætasta fyRiRtækið Í kauphöll
Íslands, metið á 117 milljaRða kRóna. Samkvæmt úttektinni
kom Icelandair Group þar á eftir, metið á 93 milljarða króna og
Marel, metið á 84 milljarða króna.
aldRei fóR ég suðuR, RokkhátÍð alþýðunnaR, vaR sett á ÍsafiRði
en RokkhátÍðin feR þaR fRam áRlega. Á hátíðinni komu fram
hljómsveitin Hjaltalín, Maus, Mammút, Retro Stefson auk fjölda
annarra. Mikið rok hafði verið á Ísafirði deginum áður og útlit
var fyrir að hópur tónlistarmanna kæmist ekki þar sem flug lá
niðri um tíma en að lokum fór allt vel, allir komust leiða sinna
og hátíðin fór almennt vel fram.
fRamhaldsskólakennaRaR samykktu nýjan kjaRasamning Í
atkvæðagReiðslu.
fResta þuRfti flugi fRá leifsstöð
þegaR flugvallaRstaRfsmenn
lögðu niðuR stöRf Í annaRRi lotu
veRkfallsaðgeRða. Boðað hafði verið til samningafundar hjá
Ríkissáttasemjara og stóð til að framkvæma aðrar verkfallsaðgerðir
örfáum dögum síðar.
kennaRaR við háskólann
á akuReyRi aflýstu veRk-
falli eftiR að hafa náð
samkomulagi við skólann
um geRð stofnanasamnings.
þRiðja lotan Í veRkfalli flugvallaRstaRfsmanna hófst og stóð
yfiR Í fimm tÍma. Vinnustöðvunin olli röskun á flugtímum fram
eftir degi.
áRsfunduR byggðastofnunaR fóR fRam Í menningaRhúsinu
miðgaRði Í skagafiRði. Á fundinum var Norðursiglingu og Herði
og Árna Sigurbjarnarsonum á Húsavík veittur Landstólpinn fyrir
uppbyggingu hvalaskoðunar á Húsavík.
gRunnskólakennaRaR samþykktu að boða til veRkfalls
seinnihluta maÍmánaðaR ef ekki hefði tekist að semja Í kjaRadeilu
þeiRRa.
asÍ tilkynnti að tilRauniR til geRðaR stöðuleikasamnings væRu
Í uppnám og kRafðist bReyttRa áheRslna Í næstu kjaRaviðRæðum.
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra, sagðist þessu ósammála
og sagði kjarasamninga í samræmi við stefnu sem aðilar vinnu-
markaðarins mörkuðu, hann sagði að hópum væri ekki mismunað.
boðaðRi veRkfallsgeRð, þeiRRi fjóRðu, en hún átti að veRa
ótÍmabundinn, vaR aflýst. Samninganefnd flugvallarstarfsmanna
skrifaði undir nýjan kjarasamning með fyrirvara um samþykki
félagsmanna í atkvæðagreiðslu.
gReiningaRdeild aRion banka sagði að áRsveRðbólga Í apRÍl
væRi innan veRðbólgumaRkmiða seðlanbankans þRiðja mánuðinn
Í Röð, eða 2,3%. Greiningardeildin taldi ekki miklar líkur á að
það myndi breytast á næstunni nema þá í mjög skamman tíma.
maÍ
baRáttudaguR veRkalýðsins fóR hátÍðlega fRam vÍða um land.
Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, sagði í ávarpi á baráttufundi
launafólks á Ingólfstorgi að núverandi stjórnvöld ykju á ójöfnuð
og niðurskurðaráform.
fRam kom Í svaRi fjáRmálaRáðheRRa á alþingi við fyRiRspuRn
guðlaugs þóRs þóRðaRsonaR, alþingismanns, að netveRslun
Íslendinga hefði numið 4,4 milljöRðum kRóna áRið 2013.
Af þeirri upphæð hefðu 3 milljarðar farið í gegnum verslun við
erlendar netsíður.
m e n n i n g
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t