SSFblaðið - dec 2014, Qupperneq 28

SSFblaðið - dec 2014, Qupperneq 28
28 atvinnuleysi á Íslandi Í maÍ 2014 vaR 7,1%, samkvæmt vinnumaRkaðsRannsókn hagstofu Íslands. 195.400 voru á vinnumarkaði í mánuðinum, af þeim voru 171.600 með vinnu, en 13.800 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka jókst um 2,2% og atvinnuleysi minnkaði um 0,4% samanborið við sama mánuð árið 2013. kjaRadeilum félags skuRðlækna og læknafélags Íslands vaR vÍsað til RÍkissáttasemjaRa. Sigurveig Pétursdóttir, for- maður samninganefndar Læknafélagsins, sagði að mikið bæri á milli deiluaðila í fréttum RÚV. Hún sagði að nauðsynlegt væri að hækka laun lækna verulega og sporna við vaxandi læknaskorti. flugvél af geRðinni antonov 225, lenti á keflavÍkuRflugvelli, en um stæRstu flugvél Í heimi eR að Ræða. Antonov-vélin var smíðuð í Úkraínu árið 1988 og var upprunalegur tilgangur hennar að flytja sovéskar geimferjur. hagstofa Íslands gReindi fRá þeim jákvæðu tÍðindum að gjaldþRotum hefði fækkað um 20% fRá júnÍ 2013 til maÍ 2014, samanboRið við sama tÍmabil áRanna á undan. Alls voru 837 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á meðan 1.929 ný félög voru skráð á tímabilinu. Flestar nýskráningar voru í fjármála- og vátryggingarstarfsemi, eða 310 talsins. fRéttastofa RÍkisútvaRpsins gReindi fRá þvÍ að fRá áRinu 1998 hefði 28 pósthúsum veRið lokað vÍða um land, eða um þRiðjunguR af pósthúsum landsins. Haft var eftir forsvarsmön- num Póstsins að pósthúsin hefðu ekki staðið undir sér fjárhagslega sökum þess að fólk sendir einfaldlega mun færri bréf en áður. staRfsfólki fiskistofu vaR veRulegu bRugðið eftiR að tilkynnt vaR um áfoRm RÍkisstjóRnaRinnaR að flytja stofnunina til akuReyRaR. Starfsfólkinu var boðin áfallahjálp. júlÍ fRÍveRslunaRsamninguR Íslands og kÍna tók gildi. Fríverslu- narsamningurinn felur í sér niðurfellingu tolla á öllum helstu útflutningsafurðum Íslendinga þ.m.t. sjávarafurðum en algengir tollar á þeim eru á bilinu 10-12% en sjávarafurðir eru um 90% af útflutningi Íslands til Kína skv. frétt fréttastofu Ríkisútvarpsins. þjóðhagsspá hagstofu Íslands kom út. Gert var ráð fyrir að landsframleiðsla myndi aukast um 3.1% árið 2014 og um 3,4% árið 2015. Fram kom að verðbólga ársins 2014 yrði 2,5%, 3,4% árið 2015 og 3,2% árið 2016. Hagstofan sagði að þjóðarútgjöld myndu aukast um 5% árið 2014 og 2015, vegna vaxtar einkaneyslu og fjárfestinga. mikill eldsvoði bRaust út Í skeifunni. Mikill eldur logaði, sprengingar heyrðust og mikinn reyk lagði yfir stóran hluta Rey- kjavíkur. Eldurinn kom upp í húsnæði efnalaugarinnar Fannar og breiddist þaðan í nærliggjandi byggingar. Mikið hættuástand skapaðist að sögn slökkviliðsmanna en yfir 100 slökkviðliðsmenn reyndu að ná niðurlögum eldsins. tónlistaRstjaRnan neil young hélt tónleika Í laugaRdalshöll við mikinn fögnuð fjölmaRgRa aðdáenda hans héR á landi. ReineR huttasch, ljósamaðuR hjá ópeRunni Í beRn Í sviss, vakti heilmikla athygli á vegum landsins Í júlÍ en hann feRðaðast hRinginn Í kRingum landið með afaR óvenjulegum hætti. Hringferðina fór hann á gömlum traktor með heimasmíðað hús úr timbri í eftirdragi. Reiner kom með ferjunni Norrænu til Seyðifjarðar og tók sér sex vikur í hringferðina. fjáRmála- og efnahagsRáðuneytið tilkynnti að það hefði samið við lögmannsstofuna cleaRy gottlieb steen & hamilton llp og RáðgjafafyRiRtækið White oak advisoRy llp um að vinna með Íslenskum stjóRnvöldum að losun fjáRmagnshafta. Lee Buchheit, fyrrverandi aðalsamningamaður Íslands í Icesave – deilunni, starfar hjá Cleary Gottlieb Steen & Hamilton og kom fram að hann myndi stýra vinnu lögmannstofunnar. moRgunblaðið gReindi fRá þvÍ að koRtavelta Íslendinga hefði aukist milli áRa miðað við töluR um koRtanotkun visa. Í blaðinu kom fram að innlend velta hefði aukist um 4% og velta kortanotkunar Íslendinga erlendis um 13% samanborið við júní árið 2013. m e n n i n g s t j ó R n m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l a l m e n n t a l m e n n t a l m e n n t

x

SSFblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.