SSFblaðið - des. 2014, Síða 31

SSFblaðið - des. 2014, Síða 31
31 ágúst ólafuR áki RagnaRsson vaR Ráðinn sveitaRstjóRi vopnafjaRðaR- hRepps og tók við staRfinu af þoRsteini steinssyni sem tók við sem sveitaRstjóRi gRundaRfjaRðaR. Ólafur Áki hafði áður gegnt starfi sveitarstjóra Djúpavogshrepps í sextán ár og stöðu bæjarstjóra í Ölfus í átta ár. fjölmaRgaR útihátÍðaR voRu settaR en veRslunaRmannahelgin fóR fRam um þessa helgi. Hátíðahöld fóru, er að virtist, rólega og friðsamlega fram. Talið var að um 12.000 manns hafi verið viðstad- dir upphaf Þjóðhátíðar í Eyjum og áfram streymdi fólk til Eyja. Í skýRslu global peace index kom fRam að skv. fRiðaRvÍsitölunni eR Ísland fRiðsamasta þjóð Í heimi en sýRland sú ófRiðsamasta. fjáRmálaRáðuneytið biRti gReiðsluuppgjöR RÍkissjóð fyRiR fyRRi helming áRsins 2014. Fram kom að ríkissjóður hefði skilað ríflega 13 milljörðum króna í rekstrarafgang á fyrri helmingi ársins. Í tilkynningu ráðuneytisins kom fram að handbært fé frá rekstri ríkisins hafi verið jákvætt um tæplega 16 milljarða en neikvætt um tæpa 14 milljarða á sama tíma ársins 2013. Skýringin á batnandi afkomu var sögð betri innheimta en innheimtar tekjur ríkisins jukust um 17,7% milli ára. fitch Ratings mat hoRfuR Í efnahagsmálum á Íslandi stöðugaR og að lánshæfismat Íslands skyldi áfRam veRa bbb og bbb+. Fitch spáði jafnvægi í ríkisrekstri árið 2015 og að skuldir ríkissjóðs yrðu komnar niður í rúmlega 81% af vergri landsframleiðslu. Fyrirtækið spáði auknum hagvexti á næstu tveimur árum og býst við því að hann verði orðinn rúmlega 3% árið 2015. hanna biRna kRistjánsdóttiR, þáveRandi innanRÍkisRáðheRRa og vaRafoRmaðuR sjálfstæðisflokksins, sagðist ekki hafa Íhugað að segja af séR embætti innanRÍkisRáðheRRa þrátt fyrir að harkalega væri deilt á hana, aðstoðar- menn og ráðuneytið vegna „Lekamálsins“. Hún sagði „Lekamálið“ vera ljótan pólitís- kan leik í viðtali við fréttastofu Ríkisút- varpsins. úttekt gReiningaRdeildaR aRion banka á skuldastöðu stæRstu sveitaRfélaga landsins leiddi Í ljós að skuldiR stæRstu sveitaRfélaganna á Íslandi hefðu lækkað á áRunum 2013- 2014 sem eR Í fyRsta skiptið sem það geRist sl. fjöguR áR. „94% lands- manna búa í 27 stærstu sveitarfélögunum. Skuldastaða þessara sveitarfélaga er mismikil en þau eiga það flest sameiginlegt að hún fer batnandi“ sagði í úttekt greiningardeildarinnar. bÍlasala á Íslandi jókst um Rúmlega 30% á fyRstu sjö mánuðum áRsins 2014 skv. fRéttatilkynningu bÍlgReinasambandsins.Alls voru skráðir 7.120 fólksbílar sem eru 1.646 fleiri fólksbílar en skráðir voru á sama tímabili í fyrra. Í tilkynningunni kom fram að á árinu 2013 hefðu verið skráðir rétt tæplega 7.300 bifreiðar, þannig að gera má ráð fyrir því að í ágústmánuði hafi verið búið að skrá jafn margar nýjar bifreiðar og allt árið 2013. Fram kom í tilkynningunni að bílaleigur ættu mestan þátt í aukningunni á fólksbílasölunni en rúmlega 4.000 bílaleigubílar höfðu verið skráðir á árinu. Sala til einstaklinga og fyrirtækja jókst um 15% milli ára. tæplega 547 þúsund faRþegaR fóRu um keflavÍkuRflugvöll Í júlÍ 2014 skv. tölum isavia. Aldrei höfðu fleiri farið um Leifsstöð í einum mánuði og aldrei hafði farþegafjöldinn náð yfir hálfa milljón áður. fjóRtándi fiskidaguRinn vaR settuR á dalvÍk. Að venju sóttu fjölmargir hátíðina og brögðuðu á ýmsum fiskréttum, heimsóttu heimamenn og fengu þar fiskisúpu og hlýddu á fjölmargar íslenskar hljómsveitir sem stigu á stokk á hátíðinni. hin áRlega gleðiganga fóR fRam Í ReykjavÍk. Gangan markar upphaf hinsegin daga í Reykjavík sem tugþúsundir landsmanna taka þátt í en boðið var upp á veglega skemmtidagskrá í ár í miðborg Reykjavíkur. fjáRmálaRáðheRRa opnaði nýjan vef á vegum fjáRsýslu RÍkisins, RÍkisReikninguR.is. Heimasíðan er ætluð almenningi og er tilgangur hennar að veita gott aðgengi að upplýsingum ríkisreikningsins á hverju ári. Á vefnum má finna sundurliðun á tekjum og gjöldum ríkisins frá árinu 2004. máR guðmundsson vaR skipaðuR seðlabankastjóRi til næstu fimm áRa. Skipunartími Más var við það að renna út þegar tilkynnt var um að auglýsa ætti starfið laust til umsóknar. Tíu sóttu um stöðuna og mat matsnefnd þrjá hæfasta: Friðrik Már Baldursson, Már Guðmundsson og Ragnar Árnason. s t j ó R n m á l s t j ó R n m á l s t j ó R n m á l s t j ó R n m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l a l m e n n t a l m e n n t b a n k a m á l

x

SSFblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.