SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 32

SSFblaðið - des. 2014, Blaðsíða 32
32 RÍkissaksóknaRi tilkynnti að gÍsla fRey valdóRssyni, aðstoðaRmanni hönnu biRnu kRistjánsdóttuR innanRÍkisRáðheRRa, hefði veRið biRt ákæRa vegna leka á minnisblaði um hælisleitandann tony omos úR Ráðuneytinu til fjölmiðla. Gísli Freyr sagðist í samtölum við fjölmiðla vera sannfærður um sýknudóm í málinu. Hanna Birna sendi í kjölfarið frá sér yfirlýsingu þar sem fram kom að hún hefði leyst Gísla Frey frá störfum á meðan málið væri til meðferðar fyrir dómstólum. Þá tilkynnti hún jafnframt að hún hefði óskað eftir því að málefni dómsstóla og ákæruvalds færist til annars ráðherra á meðan dómsmálið yfir Gísli Frey stæði yfir. óRóa gætti suð-austuR af báRðaRbungu. Á þriðja tug smáskjálfta höfðu mælst undanfarinn sólarhring. Stærstu á bilinu 2,4 til 2,6 á richter að stærð. jaRðaskjálftahRinan Í báRðaRbungu stóð enn yfiR og útilokuðu jaRðfæRðingaR það ekki að eldgos gæti veRið Í vændum. Eld- stöðin í Bárðarbungu var merkt með gulu fyrir alþjóðaflug sem er fyrsta stig ef merki eru talin á eldstöðvarvirkni. lagaRfoss, nýjasta skip eimskips, kom til ReykjavÍkuR fRá kÍna. Um var að ræða fyrsta skipið sem smíðað er fyrir félagið í rúm 40 ár. bjaRni benediktsson, fjáRmálaRáðheRRa, sagði Í fRéttum fRéttastofu RÍkisútvaRpsins að hann teldi að hækka þyRfti viRðisaukaskatt á matvæli, sem eR nú 7%, lækka efRa viRðisaukaskattsþRepið og dRaga úR undanþágum til að einfalda viRðisaukaskattkeRfið. Þá sagðist hann einnig vilja fella niður sykurskatt og ýmis vörugjöld, til að mynda af heimilistækjum og byggingavörum. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, sagði hækkun á mattarskatti vont innlegg í komandi kjaraviðræður. veðuRstofan hækkaði viðbúnaðaRstig vegna mikils óRóa Í báRðaRbungu. Veðurstofan hækkaði viðvörunarstig fyrir flugmálay- firvöld úr gulu í appelsínugult sem þýðir að líkur eru taldar á gosi. Landhelgisgæslan ákvað að kalla TF-SIF heim úr landamæragæslu við sunnanvert Miðjarðarhaf til að sinna eftirliti með gosvirkni. almannavaRniR lýstu yfiR hættustigi vegna óRóans Í báRðaRbungu. Hafist var handa við rýmingu á svæðinu og lokað var leiðum inn á svæðið. seðlabankinn tilkynnti að peningastefnunefnd bankans hefði ákveðið óbReytta stýRivexti, 6%. Í tilkynningu peningastef- nunefndar sagði að „efnahagshorfur til næstu þriggja ára eru samkvæmt nýrri spá Seðlabankans sem birtist í dag í stórum dráttum svipaðar og spáð var í maíhefti Peningamála. Horfur eru þó á að vöxtur innlendrar eftirspurnar verði ívið meiri í ár og út spátímann.Verðbólguhorfur hafa heldur batnað frá maíspánni og útlit er fyrir að verðbólga verði nálægt markmiði á spátímanum.“ landsbankinn biRti upplýsingaR um afkomu fyRRi hluta áRsins. Í tilkynningu frá bankanum kom fram að hann skilaði 14,9 mill- jarða króna hagnaði á fyrri hluta árs. Afkoman var 600 milljónum króna lakari en á sama tíma í fyrra sagði í tilkynningunni. Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 13,5% á fyrri hluta síðasta árs en lækkaði í 12,8%. Íslandsbanki hagnaðist um 14,7 milljaRða kRóna á fyRstu sex mánuðum áRsins samkvæmt hálfs áRs uppgjöRi bankans. Í tilkynningu frá bankanum sagði að eigið fé væri um 178 milljarðar króna. Heildareignir bankans voru metnir á 908 milljarða. Þá höfðu útlán til viðskiptavina aukist talsvert, voru 7% meiri en í mars á sama ári og námu 604 milljörðum króna. sinfónÍuhljómsveit Íslands hélt tónleika Í Royal albeRt hall Í lundúnum og fékk fÍnaR viðtökuR. Tónleikar hljómsveitarinnar voru hluti af Proms-tónlistarhátíð breska ríkisútvarpsins BBC. Sveitin lék tvö aukalög og var ákaft fagnað, hljómsveitarmeðlimir Sinfóníuhljómsveitarinnar sögðu það mikla upplifun að fá að spila í Royal Albert Hall. menningaRnótt vaR sett Í ReykjavÍk með glæsibRag. ReykjavÍkuRmaRaþonið vaR haldið. Aldrei höfðu fleiri tekið þátt í hlaupinu en heildarfjöldi skráðra þátttakenda var 15.286. Hátt í 80 milljónir króna söfnuðust til styrktar góðgerðarmálum vegna áheita á hlaupara í Reykjavíkurmaraþoninu. veðuRstofan ákvað að lækka viðvöRunaRstig fyRiR báRðaRbungu aftuR niðuR Í appelsÍnugult úR Rauðu. Líkur voru taldar á því að gos væri hafið, sem svo var dregið til baka, en engu að síður var talið að óróinn í Bárðarbungu kynni að leiða til eldgoss. justin timbeRlake hélt tónleika Í kóRnum Í kópavogi. Uppselt var á tónleikana en beðið var komu hins vinsæla söngvara með mikilli b a n k a m á l m e n n i n g s t j ó R n m á l s t j ó R n m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l a l m e n n t a l m e n n t a l m e n n t

x

SSFblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SSFblaðið
https://timarit.is/publication/980

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.