SSFblaðið - des. 2014, Síða 34
34
septembeR
Íbúð ssf við landspÍtalann Í ReykjavÍk vaR seld. Íbúðin hafði
verið á vegum styrktarsjóðs SSF fyrir félagsmenn sem hafa þurft
á læknismeðferð á halda. Ákveðið var á þingi SSF 2001 að kaupa
íbúðina og í kjölfarið var gerður samningur við Krabbameinsfélag
Íslands um að félagið myndi annast rekstur íbúðarinnar ásamt
úthlutun og utanumhald vegna hennar. Þann tíma sem félags-
menn SSF nýttu ekki íbúðina fékk Krabbameinsfélagið að nýta
hana fyrir krabbameinssjúklinga sem þurftu að sækja meðferð hjá
Geisladeild Landsspítalans. Í dag er starfsumhverfi SSF breytt og
félagsmönnum á landsbyggðinni hefur fækkað verulega. Þá hefur
tilkoma sjúkrahótelsins breytt mjög aðstöðu fólks á landsbyggðinni.
Því hefur íbúðin verið lítið notuð og ekki talið forsvaranlegt fyrir
Styrktarsjóð SSF að vera áfram með þessa fjármuni bundna í
fasteigninni. Krabbameinsfélagið átti 10% í íbúðinni og samið var
um að félagið keypti 90% hlut Styrktarsjóðs SSF. Nú sem áður
mun styrktarsjóður engu að síður aðstoða félagsmenn sína með
öðrum hætti og leita annara leiða við að aðstoða þá félagsmenn
sem annars hefðu nýtt sér íbúðina.
áRleg skýRsla alþjóðaefnahagsRáðsins um samkeppnishæfni
þjóða kom út. Ísland færist upp um sæti, í 30. sæti í árlegri
mælingu Alþjóðaefnahagsráðsins á samkeppnishæfni þjóða. Í
umsögn Alþjóðaefnahagsráðsins sagði að Ísland hefði færst upp um
sæti sökum umbóta á sviði þjóðhagfræðilegra þátta og tilslakana
á fjármálamarkaði. Þrátt fyrir erfiðleika undanfarinna ára njóti
Ísland áfram nokkurra sterkra stoða samkeppnishæfni og eru þar
sérstaklega nefnd heilbrigðis- og menntamál.
gosið Í holuhRauni hélt áfRam og náði nú um sjö kÍlómetRa
fRá gÍgunum Í noRðaustuRátt. Þetta var haft eftir Ármanni
Höskuldssyni, eldfjallafræðingi, í fréttum Ríkisútvarpsins en hann
hafði verið við mælingar á gossvæðinu. Hann sagði að heilmikil
kvika væri komin í hraunið. Hrauntungan hélt áfram að stækka.
gReint vaR fRá þvÍ Í fRéttum RÍkisútvaRpsins að miklaR
eituRgufuR kæmu upp fRá eldgosinu Í holuhRauni og mældust
Í allt að sex kÍlómetRa hæð yfiR jöRðu. Mest var af brennistein-
sdíoxíði og fundu vísindamenn fyrir eitureinkennum fyrsta dag
gossins. Haft var eftir vísindamönnum að fjörutíu milljónir rúm-
metra hrauns hefðu komið upp í eldgosinu. Skjálftavirkni var
áfram mikil á svæðinu.
láRa ómaRsdóttiR, fRéttamaðuR RÍkisútvaRpsins, gReindi fRá
þvÍ að tvæR nýjaR spRunguR hefðu myndast miðja vegu milli
syðsta enda spRungnanna Í holuhRauni og dyngjujökli.
aðalfunduR dv fóR fRam en mikil átök höfðu staðið yfiR um
meiRihlutaeign Í fjölmiðlinum. Reynir Traustason, ritstjóri og
einn eigenda blaðsins, hafði sagt að menn óvinveittir sér væru að
reyna að „sölsa“ undir sig blaðið til að koma sér frá völdum, m.a.
Björn Leifsson. Svo fór að nýjir aðilar náðu meirihluta hlutafjár.
Reynir sagðist ekki trúa öðru en að ný stjórn myndi sjá sóma sinn
í að láta reka sig.
akRafell, flutningaskip samskipa, stRandaði á skeRi við
vattaRnes, milli ReyðaRfjaRðaR og fáskRúðsfjaRðaR. Mikill
leki kom að skipinu við strandið. Allar björgunarsveitir á Aus-
tfjörðum voru kallaðar út. Tólf manns voru um borð í skipinu,
engan sakaði. Skipið sat fast eftir strandið. Varðskipið Ægir kom
síðar á strandstað og vann að því að flytja dælur yfir í skipið.
Engin olíumengun var sjáanleg frá skipinu. Þór hélt af stað á
strandstað en til stóð að skipið tæki við vettvangsstjórn af Ægi
og dráttartauginni sem lá yfir í Aðalstein Jónsson. Ægir náði þó
ekki á strandsstað því Akrafell var dregið af strandsstað skömmu
fyrir miðnætti á háflóði af Aðalsteini Jónssyni. Skipið var dregið
til hafnar á Eskifirði. Skipið var mikið skemmt en engin mengun
stafaði frá skipinu. Síðar var greint frá því að stýrimaður skipsins
hefði sofnað.
ný stjóRn dv kom saman. Á fundinum var ákveðið að Hallgrímur
Thorsteinsson tæki við af Reyni Traustasyni sem ritstjóri blaðsins.
Hallgrímur tók strax við ritstjórn blaðsins og Reynir var leystur
undan starfsskyldum. Hann hafði gegnt stöðu ritstjóra blaðsins
síðustu 7 ár.
lÍtillega hafði dRegið úR skjalftaviRkni Í báRðaRbungu en gosið
Í holuhRauni hélt áfRam. Bláleit móða frá eldgosinu lá víða yfir
Austurlandi. Móðan var af völdum brennisteinsdíoxíðs og haft var
eftir Helgu Hreinsdóttur, framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits
Austurlands í fréttatíma Ríkisútvarpsins að fjöllin hyrfu í blámóðu.
bjaRni benediktsson, fjáRmálaRáðheRRa, lagði fRam
fjáRlagafRumvaRp áRsins 2015. Gert var ráð fyrir 4,1 milljarða
króna afgangi af rekstri ríkissjóðs árið 2015. Samhliða fjárlaga-
frumvarpinu voru lagðar fram tillögur um breytingar á virði-
saukaskattskerfinu sem miðuðu að því að efra þrep yrði lækkað
úr 25,5% í 24% og lægra þrepið hækkað úr 7% í 12%, þ.m.t.
virðisaukaskattur á matvæli. Þá var lagt til að almenn vörugjöld
yrðu afnumin sem hefði áhrif á sykruð matvæli og drykkjarvörur,
byggingavörur, varahluti í bíla, stærri heimilistæki svo sem ísskápa
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t
a l m e n n t
a l m e n n t