SSFblaðið - des. 2014, Síða 38
38
fyrirliði Hollands og ein af
þeirra skærustu stjörnum,
var svekktur í leikslok en
sagði í íþróttafréttatíma
Ríkisútvarpsins að íslen-
ska liðið ætti hrós skilið
fyrir sína frammistöðu.
bandaRÍska matsfyRiRtækið standaRs & pooR›s bReytti hoRfum
Íslensku bankanna úR stöðugum Í jákvæðaR. Fyrirtækið hafði
jafnframt metið horfur íslenska ríkissins með sama hætti nokkrum
mánuðum fyrr og fært íslenska ríkið úr stöðugum horfum yfir í
jákvæðar horfur. Ástæðan fyrir betri horfum nú en áður er sögð
sú að draga muni úr efnahagslegu ójafnvægi hérlendis.
gos úR holuhRauni hélt áfRam og skjálftaviRkni Í báRðaRbungu
vaR enn mikil. Gasmengunin frá gosinu var óvenjumikil að sögn
Ármanns Höskuldssonar, eldfjallafræðings. Hægur vindur hafði
verið undanfarna daga sem hafði orðið til þess að mengun hafði
lagst yfir landið og valdið fólki óþægindum.
listasafn Íslands átti 130 áRa afmæli, en það vaR stofnað á
þessum degi fyRiR 130 áRum Í kaupmannahöfn. Illugi Gunnars-
son, mennta- og menningarmálaráðherra, setti afmælishátíðina
sem stóð út árið 2014.
samtök staRfsmanna fjáRmálafyRiRtækja
opnaði upplýsingasÍðu á facebook.
Hægt er að fylgjast með því sem er að
gerast í starfi SSF með því að slá „Samtök
starfsmanna Fjármálafyrirtækja“ í leitarstreng Facebook og “læka”
við síðuna.
annasamt vaR á skRifstofum RÍkissáttasemjaRa en þaR vaR m.a.
fundað með félagi tónlistaRkennaRa, lækna og skuRðlækna
og staRfsmannafélagi kópavogsbæjaR en allt útlit vaR fyRiR
að það gæti komið til veRkfallsaðgeRða hjá þessum hópum.
mÍnaR sÍðuR á heimasÍðu ssf opnaði. mÍnaR sÍðuR eR
vefuR sem auðveldaR félagsmönnum aðgengi að umsóknum,
stöðu og afgReiðslu úR sjóðum félagsins. Með tilkomu síðun-
nar eru umsóknir aðgengilegri fyrir félagsmenn og úthlutunin
auðveldari. Hægt er að nálgast Mínar síður ásamt leiðbeiningum
um notkun þeirra á heimasíðu SSF.
annað tölublað ssf blaðsins kom út. Hægt er að nálgast tölublöð
SSF á heimasíðu samtakanna, www.ssf.is, með því að smella á liðinn
„Bókasafn“ og þar er hægt er að nálgast öll tölublöð SSF – blaðsins.
fRéttastofa RÍkisútvaRpsins gReindi fRá kynningaRfundi
hagdeildaR asÍ á hagsspá sinni. Í spánni kom fram að horfur
í efnahagslífinu væru betri en þær höfðu verið í langan tíma.
Fjárhagsstaða heimilanna hefði batnað, skuldir minnkað og kaup-
máttur aukist. Hagdeild ASÍ spáði því að hagvöxtur til 2016 verði
3,1% til 3,5%.
veRkfall tónlistaRkennaRa hófst þegaR yfiR 500 kennaRaR Í
félagi tónlistaRkennaRa lögðu niðuR stöRf. Verkfallsboðun hafði
verið samþykkt með miklum meirihluta en lítið hafði þokast áleiðis
á samningafundum samningsnefnda félags tónlistarskólakennara
og Sambands íslenskra sveitarfélaga að sögn Sigrúnar Grendal,
formanns Félags tónlistarskólakennara.
hagstofan biRti launavÍsitölu á vefsÍðu sinni. þaR kom fRam
að laun hefðu hækkað um 6,2% á sÍðustu tólf mánuðum.
Launavísitalan hækkaði um 0,7% í september og kaupmáttur
launa hækkaði um 4,3% síðustu tólf mánuði.
staRfsfólki Í bankaþjónustu hélt áfRam að fækka þegaR
aRionbanki tilkynnti um uppsagniR 18 staRfsmanna. Að auki
var tilkynnt að afgreiðslu bankans á Hólmavík yrði lokað en við
það fækkar um tvo starfsmenn til viðbótar. Í tilkynningu frá ban-
kanum kom fram að þetta væri liður í hagræðingarferli bankans.
Á undanförnum árum hefur 16 útibúum verið lokað og starfsfólki
bankans hefur fækkað um 120 frá árslokum 2009.
miðstjóRnaRfunduR samtaka staRfsmanna noRRænna
fjáRmálafyRiRtækja (nfu) vaR haldinn Í ReykjavÍk. SSF hefur
verið fulltrúi Íslands sem aðili að NFU frá upphafi en samtökin
voru stofnuð árið 1953 sem Norræna bankamannasambandið.
Meginhlutverk NFU í dag er að vera sameiginlegur umsagnaraðili
aðildarfélaganna gagnvart lagafrumvörpum Evrópusambandsins.
styRkleikalisti fifa mat styRkleika Íslenska kaRlalandsliðsins
Í knattspyRnu fRemstan noRðuRlandaþjóða. Íslenska liðið var
komið upp í 28. sæti og hefur aldrei verið ofar og efst Norður-
landaþjóðanna. Íslenska liðið hafði náð miklum viðsnúningi og
hafði hækkað um 103 sæti frá því í apríl árið 2012 þegar liðið
var í 131. sæti.
b a n k a m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
v i ð s k i p t i o g e f n a h a g s m á l
a l m e n n t
a l m e n n t