Fréttablaðið - 02.04.2016, Page 35
Í undirbúningi
þessa máls
veitti bankinn Tómasi
umboð á umrætt félag og
óskaði hann jafnframt
eftir því að ég fengi
sambærilegt umboð. Það
mun vera skýring á því
að nöfn okkar eru á um-
ræddum lista. En aðstæður
breyttust og aldrei kom til
þess að Tómas tæki yfir
eignarhald þessa félags eða
nýtti það til fjárfestinga.
Allt þetta gerðist áður en ég
tók sæti á Alþingi og voru
þessi áform löngu aflögð
þegar reglur um hagsmuna-
skráningu þingmanna
tóku gildi.
Ólöf Nordal (Af
Facebook)
Ég gerði grein
fyrir kaupum
á félaginu og niðurlagningu
þess gagnvart íslenskum
skattyfirvöldum og hef
alla tíð staðið í þeirri trú
að félagið ætti varnarþing
í Lúxemborg. Það var ekki
fyrr en mér barst ábending
frá erlendum blaðamanni að
ég komst að því að svo hefði
ekki verið, en umrætt félag,
Falson & Co, var skráð á
Seychelles-eyjum. Það hafði
þó engin áhrif í skattalegu
samhengi.
Bjarni Benediktsson
(Af Facebook)
Ég hef ekki frá
því ég byrjaði
í stjórnmálum fundið eins
mikinn og þéttan stuðning
og í þessu máli. Ég held að
það sé vegna þess að þetta
fólk sem hefur unnið með
mér veit að ég hef verið
vakinn og sofinn í þessari
baráttu og hef ekkert látið
stoppa mig í henni.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
„Menn mega ekki rugla Lúxemborg
saman við aflandseyjar vegna þess
að Lúxemborg er með almennt
skattkerfi sem er ekki ósvipað því
sem gengur og gerist hjá öðrum
Evrópuríkjum.
Síðan eru þeir með sérreglur fyrir
ákveðna tegund af félögum sem eru
háð alveg sérstökum skattlagningar
reglum.
Þessi félög eru í eigu einstaklinga
eða félaga og þau mega ekki vera
með neina starfsemi í Lúxemborg
heldur mega þau bara vera með
tekjur sem koma erlendis frá,“ segir
Indriði H. Þorláksson, fyrrverandi
ríkisskattstjóri.
Þessi félög séu nánast undanþegin
skatti og það séu því þessi félög sem
séu skattaskjól en ekki Lúxemborg
í heild sinni.
„Þannig að það að félag sé í
Lúxem borg þarf ekki að þýða að það
sé í skattaskjóli því það fer eftir því
um hvers konar félag er að ræða. Þá
hefur það líka komið slæmu orði á
Lúxemborg að landið er notað sem
milliliður þar sem peningum er
komið þangað og þaðan til skatta
paradísa.“
Munur á Lúxemborg og Bresku jómfrúareyjunum
Lífeyrissjóðurinn fyrir þig
Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda
Góður kostur fyrir þá sem þurfa að velja sér lífeyrissjóð
Ársfundur
2016
Ársfundur sjóðsins verður haldinn
þriðjudaginn 19. apríl kl. 17:00.
Borgartún 29 · 105 Reykjavík · Sími 510 7400 · www.sl.is
Nánar um uppgjör ársins 2015 á www.sl.is
Eignir í árslok 2015 námu 140 milljörðum króna.
Langtímaávöxtun sjóðsins er ein sú besta.
Sjóðurinn greiddi 12.806 sjóðfélögum lífeyri sl. ár.
Sjóðurinn hefur aldrei skert áunnin réttindi.
Sjóðurinn veitir mjög hagstæð lán til sjóðfélaga með veðhlutfalli allt að 75%.
Ekkert uppgreiðslugjald, hægt er að greiða upp lán hvenær sem er.
135 þúsund manns eiga réttindi hjá sjóðnum.
Fyrrverandi ríkisskattstjóri segir mikinn mun á skattaumhverfinu á Bresku
Jómfrúareyjunum og Lúxemborg.
h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 35l A U g A R D A g U R 2 . A p R í l 2 0 1 6