Fréttablaðið - 02.04.2016, Side 80

Fréttablaðið - 02.04.2016, Side 80
 Þetta eru sam- félög um allan heim sem snúast um að dansa og skemmta sér. Ég fór til Parísar um liðna helgi í vinnuferð og fann mér bara lindý hopp hóp í borginni á Facebook. Þau voru með ball og ég dans- aði við fullt af fólki. Auður Sesselja Gylfadóttir „Fyrst og fremst er það fólkið sem maður dansar við sem gerir þetta svo skemmtilegt. Lindý hopp er félagslegur dans, hann snýst ekki endilega um að dansa við sama dansfélagann. Hugmyndin og kúlt- úrinn í lindý hopp er að þetta er bara eins og að mæta á djammið og dansa við hvern sem er,“ segir Auður Sesselja Gylfadóttir, gjald- keri félagsins Lindy Ravers, en hópurinn stendur fyrir lindý hopp balli í kvöld á Hlemmur Square. Auður segir vinsældir lindý hopps fara vaxandi um allan heim en dansinn er upprunninn í Harlem í New York í kringum 1930. Sporin í dansinum má rekja til steppdans og charleston og þró- aðist út frá djass-swing tónlist. „Það klæða sig einmitt marg- ir upp á í takt við þann tíðar- anda, pin-up hár, krullur og rauð- ar varir,“ segir Auður sem sjálf hefur dansað lindý hopp í tvö ár. „Þetta eru samfélög um allan heim sem snúast um að dansa og skemmta sér. Ég fór til Parísar um liðna helgi í vinnuferð og fann mér bara lindý hopp hóp í borginni á Facebook. Þau voru með ball og ég fór á ballið og dansaði við fullt af fólki.“ Ballið í kvöld er haldið í tengslum við námskeið sem stend- ur yfir um helgina í Hinu hús- inu. Lindy Ravers og Háskóla- dansinn standa fyrir námskeið- inu og flytja inn danskennara frá Litháen. Auður segir mark- mið Lindy Ravers að byggja upp samfélag lindý hopp dansara hér á landi og fékk verkefnið styrk frá Reykjavíkurborg. „Lindý hopp er frekar ungur dans á Íslandi og því eigum við ekki marga kennara með reynslu. Þetta er líka dans þar sem fólk skapar sér eigin stíl og þess vegna er gaman að læra hjá ólíkum döns- urum,“ útskýrir Auður. „Þetta til- tekna námskeið er fyrir lengra komna, til dæmis þá sem hafa tekið eitt eða fleiri námskeið hjá Háskóladansinum. Fram undan er svo nokkurra vikna byrjenda- námskeið fyrir 16 til 20 ára. Það verður í Hinu húsinu á þriðjudög- um og hefst um miðjan apríl. Þess utan stöndum við fyrir lindý hopp danskvöldum einu sinni í viku á Ríó á Hverfisgötunni, sem opin eru öllum. Það mæta milli 20 til 30 manns á danskvöldin en ég á von á að fleiri mæti á ballið í kvöld,“ segir Auður. Ballið hefst klukkan 20.30 og stendur til miðnættis og leikur hljómsveit fyrir dansi. „Þetta verð- ur einhvers konar samsett hljóm- sveit. Einn dansarinn er klarín- ettleikari og smellir saman hljóm- sveit þegar þarf.“ heida@365.is Pin-uP hár og rauðar varir Lindy Ravers og Háskóladansinn standa fyrir lindý hopp dansleik í kvöld. Auður Sesselja Gylfadóttir segir vinsældir lindý hopps vaxandi um allan heim. Stefnan er að byggja upp samfélag lindý hopp dansara á Íslandi. Mörg sporanna í lindý hoppi má rekja til charleston og steppdans. Lindý hopp þróaðist út frá djass-swing tónlist í Harlem í New York í kringum 1930. MYNd/Nordic pHotoS GettY Lindý hopp er líflegur dans. Leon James & Willa Mae ricker sýna hér sporin en myndin er tekin árið 1943. MYNd/Nordic pHotoS GettY Auður Sesselja Gylfadóttir vill byggja upp samfélag lindý hopp dansara á Íslandi. Lindy ravers standa fyrir balli í kvöld. MYNd/Auður SeSSeLJA GYLfAdóttir. KJÓLL VERÐ: 8.490 KR SUNDFÖT Í MIKLU ÚRVALI ÞÚ GETUR LÍKA SKOÐAÐ ÚRVALIÐ OG PANTAÐ Á CURVY.IS Sendum frítt hvert á land sem er OPNUNARTÍMAR Í VERSLUN CURVY AÐ FÁKAFENI 9 ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 11-18 LAUGARDAGA FRÁ KL. 11-16 Fákafeni 9 | Sími 581-1552 | www.curvy.is 2 . a p r í l 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r8 F ó l k ∙ k y n n i n G a r b l a ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ k y n i n G a r b l a ð ∙ h e l G i n
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.