Fréttablaðið - 02.04.2016, Page 102

Fréttablaðið - 02.04.2016, Page 102
Leikhús Djúp spor HHHHH Tjarnarbíó Artik Höfundar: Jenný Lára Arnórsdóttir og Jóel Sæmundsson Leikstjóri: Bjartmar Þórðarson Leikarar: Jenný Lára Arnórsdóttir og Jóel Sæmundsson Ljósahönnun: Arnar Ingvarsson Tónlist: Mark Eldred Búningar: Sandra Hrafnhildur Harðardóttir Alex og Selma hittast óvænt í kirkjugarði, þau hafa ekki talast við í fimm ár en nú er komið að upp­ gjöri milli þeirra og gömul sár gróa seint. Enn á ný er Tjarnarbíó vett­ vangur fyrir nýtt íslenskt leikverk þar sem Djúp spor var frumsýnt síðastliðinn fimmtudag. Jenný Lára Arnórsdóttir og Jóel Sæmundsson semja texta sýningarinnar og leika aðalhlutverkin en Bjartmar Þórðar­ son leikstýrir. Sýningin á við fjölmörg vanda­ mál að stríða sem byrja í hand­ ritinu. Samræður á sviði verða annaðhvort að fela í sér fram­ vindu eða lita persónurnar sem þar standa nokkru lífi í stað þess að útskýra einvörðungu umhverfi og aðstæður. Þær verða einnig að vera leikbærar og sviðsvænar. Djúp spor er varla persónustúdía heldur miklu fremur sýnishorn af ástandi, sumar aðstæðurnar eru einnig í ólíklegri kantinum. Handritið er að hluta til byggt upp á viðtölum við einstaklinga sem hafa upplifað mikinn harm vegna ölvunaraksturs. Slíkt er virðingarvert en heimilda­ verk verða að brydda upp ánýjum útfærslum, sjónarhornum og fram­ setningu. Í öðru lagi skortir allan slagkraft í leik þeirra Jennýjar Láru og Jóels, öll átök og reiði. Þó að textinn sé stirðbusalegur þá er hægt að fanga það skipbrot tilfinninganna sem liggja samræðunum til grundvallar. Jenný Lára nær ekki að fanga þetta ástand en fellur í þá gryfju að skila textanum í stað þess að leika per­ sónuna. Jóel nær að sýna breidd, þá sérstaklega í þyngri senunum, en verður frekar tilgerðarlegur á hversdaglegri augnablikum. Bjartmar sýndi fyrr á þessu ári að hann er spennandi handritshöf­ undur og ágætis leikstjóri en hér fatast honum flugið. Sviðslausnir eru sveipaðar doða og gráminn sem ríkir í stílhreinni sviðsmyndinni læðist inn í atburðarásina. Í átaka­ mesta atriðinu eru tveimur stólum hent í jörðina. Leikararnir tala oftar út í sal frekar en við hvort annað og við það fellur öll spenna þeirra á milli til jarðar. Tónlistin er furðulega óper­ sónuleg fyrir utan ágætis innslag frá Spice Girls sem sparka sýningunni á raunverulegan stað en frá fyrsta augnabliki hljóma laglínurnar eins og uppfyllingarefni í stað þess að lyfta sýningunni og styðja hana. Átakalítil harmsaga Í gærkvöldi hófst allsérstæð alþjóð­ leg kvikmyndahátíð í Bíói Para­ dís þar sem sýndar verða einar tíu kvikmyndir á aðeins þremur dögum. Hátíðin kallast Reykjavík World Film Festival en sérkenni hátíðarinnar felst ekki síst í því að myndirnar koma nokkuð víða að en þó eru tvær myndanna frá Bandaríkjunum, Daddy og Leaves of the Tree, tvær frá Rússlandi, Pech orin og Star, og tvær frá Spáni, þær Candela og Escapes. Aðrar myndir eru In Your Arms frá Dan­ mörku, Agnus Dei frá Kósóvó, Black Mud frá Kanada og Stolen Path frá Englandi. Markmið hátíðarinnar er að bjóða upp á kvikmyndir sem talið er að muni hafa víðtæk áhrif á kvik­ Hátíð fyrir alla bíófíkla Atriði úr ensku myndinni Stolen Path. Atriði úr rússnesku myndinni Star. 365.is Sími 1817 SUNNUDAG KL. 19:10 SPÆNSKI BOLTINN UM HELGINA. LAUGARDAG KL. 18:20 Sportpakkinn inniheldur: Stöð 2 Sport, hliðarrásir, Eurosport, Extreme Sport, Motors TV, Sky News, NBA TV, MUTV, LFC TV og Chelsea TV. Sigri Barcelona á Camp Nou í kvöld þegar Real Madrid kemur í heimsókn má segja að liðið sé á góðri leið með að tryggja sér spænska meistaratitilinn. Ronaldo og félagar verða hinsvegar í hefndarhug enda fékk liðið heldur betur skell á Santiago Bernabéu í fyrri leik liðanna í deildinni þegar þeir töpuðu 0–4. Ekki mæta of seint í El Clásico, fjörið hefst kl. 18:20 á Stöð 2 Sport. ENDALAUST NET Á 1.000 KR FYLGIR SPORTPAKKA 365* *Undanskilið er aðgangsgjald og leiga á beini. Nánari upplýsingar á 365.is.Samsetning sjónvarpspakka getur breyst án fyrirvara. EL CLÁSICO 2 . A p r í L 2 0 1 6 L A U G A r D A G U r54 M e n n i n G ∙ F r É T T A B L A ð i ð
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.