Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Side 8

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Side 8
8 UMRÆÐA Sandkorn 20. desember DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. Aðalnúmer: 512 7000 Auglýsingar: 512 7050 Ritstjórn: 512 7010 Útgáfufélag: Frjáls fjölmiðlun ehf. Stjórnarformaður: Sigurður G. Guðjónsson Framkvæmdastjóri: Karl Garðarsson Ritstjóri: Lilja Katrín Gunnarsdóttir Prentun: Torg prentfélag Dreifing: Póstdreifing Suðurlandsbraut 14 2. hæð FRÉTTASKOT 512 7070 ABENDING@DV.IS Spurning vikunnar Hvaða ilmur minnir þig á jólin? Bensínlykt. Ég fór alltaf á snjósleða í sveitinni á Nesjavöllum um jólin. – Ómar Úlfur Eyþórsson Hjá mér er það hangikjöts- og eða ham- borgarhryggjarilmurinn sem neglir stemninguna. Ekki er verra ef það hanga þurrkaðar appelsínu- sneiðar um eldhúsið eins og var gert stundum heima. – Aron Freyr Þorsteinsson Þegar afi kveikir á vindlinum sínum. Alltaf eftir matinn á aðfangadag fær afi sér vindil. Besta jólalykt í heiminum. – Anna Kristín Arnarsdóttir Makkarónur sem minna mig mest á jólin. Kanill er í sterku öðru sæti vegna þess að oft voru soðnar kanilstangir í desember til að fá ilminn. – Vigdís Björg Valgeirsdóttir Jólin koma, sama hvað Þ ótt ég muni ansi lítið úr barnæskunni fyrr en ég er um það bil fimm til sex ára, þá man ég alltaf svo sterkt eftir jólunum, eins og velflestir aðrir. Við munum eftir jólunum, hvort sem stundirnar eru góð­ ar eða slæmar. Gleði eða sorg. Ég get prísað mig sæla fyrir að mín­ ar jólaminningar eru nánast allar góðar. Í blaðinu rifja bæði ungir og aldnir upp jólin. Þekktir Ís­ lendingar segja frá eftirminni­ legustu jólagjöfinni og vistmenn Hrafnistu rifja upp jólin í denn. Í þessum frásögnum velflestum kemur bersýnilega í ljós að það eru litlu hlutirnir sem skipta máli. Heimagerðu gjafirnar og sjald­ séðu eplin. Notalegu stundirn­ ar með þeim sem maður elskar. Eins klisjulega og það hljómar. En klisjur eru oftast sannar. Ég er svo heppin að ég á fjölda fólks til að halda upp á jólin með. Foreldra sem eru enn á lífi, góðar systur og systrabörn, yndislegan maka og æðisleg börn. Einnig eru tveir hundar, nokkrir sniglar og gullfiskar. Heimili þar sem allt er á rúi og stúi. Snoturt, lítið jólatré og ævafornt jólaskraut í bland við það nýja. Á jólunum er tími til að njóta. Manni finnst þau koma alltof fljótt. Manni finnst eins og maður geti aldrei sýnt fólkinu sem mað­ ur elskar hvað maður metur það mikils. Keyrir um bæinn í leit að hinni fullkomnu gjöf. Syngur með poppuðum jólalögum með tárin í augunum. Lúnir handleggirn­ ir ráða vart við að lyfta tuskunni en það þarf samt að vera hreint fyrir jól! Allir þurfa að vera hrein­ ir og fínir. Maturinn þarf að vera tilbúinn klukkan 18 og hann þarf að vera besti matur ársins. Allir þurfa að vera í góðu skapi. Engin tár hér, takk. Þvílík pressa sem við setjum á okkur sjálf. Við gleymum því að jólin koma, sama hvað. Þau koma á slaginu sex, sama hvað tautar og raular. Þau sem eru heppin eins og ég ættu bara að vera þakklát, þó að sykurbrúnuðu kartöflurn­ ar misheppnist og yngsta barnið taki ekki annað í mál en að vera í hreindýranáttfötunum með hor út á kinn. Við ættum að vera þakk­ lát fyrir það sem við eigum; mat­ inn sem er á borðinu og stundar­ innar sem við eigum í faðmi þeirra sem við elskum mest. Því það er nú einu sinni svo að það eru ekki allir jafn heppnir. n Jinga gjaldþrota Skiptum er lok­ ið vegna gjald­ þrots fyrirtæk­ isins Jinga ehf., en samkvæmt fyrirtækjaskrá sá félagið um rekstur auglýsingastofu. Fyrir­ tækið er í eigu kvikmynda­ gerðarmannsins Júlíusar Kemp, sem leikstýrði til að mynda Reykjavík Whale Watching Massacre og Blossa 810551 og var í hlutverki framleiðanda í Lof mér að falla og Vonar­ stræti. Engar eignir fundust í búinu en lýstar kröfur í búið námu rúmlega þremur og hálfri milljón. Söngkona og útvarpsmaður Lítt þekkt ættartengsl K örfuboltakappinn Kjartan Atli Kjartansson hefur átt góðu gengi að fagna í fjölmiðlabrans­ anum síð­ ustu ár, hvort sem það er á prenti, í út­ varpi eða sjón­ varpi. Kjartan er sonur Ásu Steinunnar Atladóttur hjúkrunarfræðings og Kjartans Sigtryggssonar, fyrrverandi lögreglumanns. Fósturdóttir Kjartans eldri er söngkonan Ruth Reginalds, sem búsett hefur verið er­ lendis síðustu ár. Ruth er Ís­ lendingum góðkunn og hefur lagt sitt af mörkum í jólahefðir margra með laginu Þú komst með jólin til mín ásamt Björgvini Halldórssyni. Leiðari Lilja Katrín Gunnarsdóttir lilja@dv.is Annasamur tími Þeir sem höndla með jólatré hafa nú í nógu að snúast. M Y N D : E Y Þ Ó R Á R N A S O N

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.