Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Síða 18

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Síða 18
18 20. desemberFRÉTTIR Á dögunum greindi DV frá umfangs- miklu fjársvikamáli tengdu hinni meintu rafmynt OneCoin. Fram hef- ur komið að búlgarska athafnakon- an Ruja Ignatova hafi náð að svíkja út tæpa þúsund milljarða íslenskra króna á heims- vísu. Málið hefur vakið mikla athygli hér á landi en vitað er að nokkrir Íslendingar hafi látið blekkjast af svikamyllunni. Hér á eftir verða rifjuð upp nokkur eftir- minnileg fjársvikamál sem upp hafa kom- ið hér á landi. Einstaklingarnir sem fjallað er um eiga það sameiginlegt að hafa svikið háar fjárhæðir af fjölda manns. Í mörgum tilfellum eru fórnarlömbin efnalitlir eða veikir einstaklingar sem hafa fallið fyrir gylliboðunum en endað í sárum og jafnvel orðið gjaldþrota. „Virðist vera algjörlega siðlaus“ Halldór Viðar Sanne á sér langa sögu í svik- um og prettum og hefur skilið mörg hund- ruð Íslendinga eftir með sárt ennið. Halldór er líklega þekktastur í tengsl- um við svokallað iPhone-svindl í Dan- mörku árið 2013. Svindlið gekk út á að Halldór sannfærði hátt í hundrað einstak- linga til að kaupa fyrir hann iPhone-síma á raðgreiðslum í Danmörku sem hann myndi síðan selja áfram á Íslandi fyrir hærra verð. Halldór hirti síðan símana sjálfur og seldi og hafði rúmlega 110 milljónir upp úr krafsinu. Fjölmargir létu blekkjast, en flest fórnarlömbin voru Íslendingar búsettir í Danmörku og þar af margir fátækir náms- menn. Þeir sem urðu verst úti sátu uppi með skuldir upp á margar milljónir. DV fjallaði ítarlega um Halldór í upp- hafi árs 2013 þegar hann sat í gæsluvarð- haldi í Kaupmannahöfn vegna umrædds iPhone-svindls. Á sama tíma voru nokkur mál gegn Halldóri, vegna meintra fjársvika hans, til rannsóknar hjá lögreglu hér á landi. Halldór var handtekinn í Kaupmanna- höfn haustið 2012 og sætti gæsluvarðhaldi þar til dómur féll í máli hans í mars 2013. Hann var var gerður brottrækur frá Dan- mörku að afplánun lokinni en hann af- plánaði hluta dómsins á Kvíabryggju. Halldór Viðar gekk enn lengra þegar hann auglýsti lífvarðanámskeið sem fara átti fram í Kaupmannahöfn árið 2013. Fjölmargir, þar á meðal Íslendingar, létu blekkjast og greiddu tæplega 400 þúsund í námskeiðsgjald. Námskeiðinu var ítrekað frestað og aldrei varð neitt úr því. Í frétt DV árið 2013 kom fram að Halldór hefði hótað óánægðum viðskiptavinum barsmíðum. „Hann er mjög klár í að blekkja fólk og virðist vera algjörlega siðlaus maður. Við vissum að það væru kærur á hendur hon- um hérna og konan mín kærði hann. Þá hringdi lögreglan og sagði að hann hefði sagt að hún væri að ofsækja hann og væri að reyna rústa mannorði hans hér á landi,“ sagði viðmælandi DV sem greiddi fyrir son sinn. Í mars 2017 var síðan greint frá því að Halldór Viðar hefði verið hnepptur í gæsluvarðhald, grunaður um milljónasvik með því að hafa fé af fólki á leigumarkaði. Fjölmargir Íslendingar höfðu þá lagt fram kæru á hendur á honum og komu nokkr- ir þeirra fram í fjölmiðlum. „Ástæða þess að ég segi þessa sögu er til að aðrir hugsi sig um áður en farið er í viðskipti við þenn- an siðblinda mann,“ sagði Bergljót Snorra- dóttir í samtali við Fréttablaðið, en hún var ein af þeim sem lentu í svikamyllu Hall- dórs. Svikin gengu út á það að Halldór gerðist ítrekað milliliður fyrir fólk í leit að leiguhús- næði. Tók hann íbúðir á leigu, framleigði þær öðrum en stal síðan leigugreiðslum þeirra og greiddi aðeins fyrsta mánuðinn til réttra eigenda. Þá er hann einnig grun- aður um að hafa selt farsíma sem svo aldrei fengust afhentir. „Auðvitað sé ég eftir því sem ég gerði. Ég sveik marga, en ég hef verið dæmdur fyrir þau brot og tekið út minn dóm. Nú er ég breyttur maður,“ sagði Halldór Viðar í sam- tali við Fréttablaðið á sínum tíma. Í ágúst sama ár var Halldór dæmdur í eins árs fangelsi fyrir fjársvik, tilraun til fjársvika og fjárdrátt. Þá var hann dæmdur til að greiða öllum sem kröfðust bóta, hverjum fyrir sig, 150 þúsund krónur í málskostnað. Honum var einnig gert að greiða samtals 3,6 milljónir króna í skaða- bætur. Halldór heitir í dag Aldo Viðar Bae- Sanne. Á heimasíðu hans á LinkedIn er hann skráður sem stofnandi og forstjóri Smart Capital Inc. í Kanada. Fram kemur að fyrirtækið veiti ráðgjöf til einstaklinga í fjárfestingahugleiðingum. Þá segist hann hafa meira en 20 ára reynslu í sölu og alþjóðlegri markaðssetn- ingu í tæknigeiranum, hann hafi meðal annars stofnað fyrirtækið SmartSMS og unnið að markaðssetningu fyrir fyrirtæki á borð við Coca Cola, Visa og Volkswagen. Einstæðir öldungar voru fórnarlömbin Árið 2001 var Þór unn Sig ur veig Aðal steins- dótt ir dæmd í tveggja ára fang elsi í Héraðs- dómi Reykjavíkur fyrir að hafa með skipu- lögðum blekkingum fengið sjö karlmenn, sem allir voru aldraðir einstæðingar, til þess að lána henni peninga. Ljóst var þó að hún átti enga möguleika á að endurgreiða þeim lánin. Alls náði hún að hafa rúmlega 55 milljónir króna út úr mönnunum. Í umfjöllun DV árið 2001 kom fram að flest benti til þess að svikin hefðu verið SVIKAHRAPPAR n DV tekur saman þekkt íslensk fjársvikamál n Fatlaðir, aldraðir og fátækir algeng fórnarlömb Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Umfjöllun Helgarpósturinn árið 1994. Ljósmynd/Tímarit.is Ljósmyndari DV náði þessar mynd af Sigurði þegar dómur var kveðinn upp í héraðsdómi. Skjáskot af síðu LinkendIn Halldór Viðar er einna helst þekktastur í tengslum við iPhone svindlið svokallaða

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.