Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Qupperneq 34

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Qupperneq 34
34 FÓKUS 20. desember Okkar bernskujól Jólabörn á tíræðisaldri rifja upp jólin í gamla daga - Enginn ísskápur og baðað upp úr bala B ráðum koma blessuð jólin og börnin flest án efa farið að hlakka til. Flestir fá þá eitthvað fallegt, en líklega eitt- hvað annað en kerti og spil. Á árum áður þóttu kerti og spil þó hin besta gjöf, en jólin hafa tekið miklum breytingum síð- ustu áratugi, en hversu miklar breytingar erum við að tala um? DV leitaði á náðir fjögurra unglamba á tíræðisaldri sem rifj- uðu upp bernskujól sín með blaðamanni. Bar þar margt á góma sem kom blaða- manni töluvert á óvart, og gæti sömuleið- is valdið furðu einhverra lesenda, en hreyft við gömlum ljúfum minningum hjá öðr- um. Fjórmenningarnir eru Bragi Sigurðsson (92), Matthía Margrét Jónsdóttir (90), Ingi- björg Guðmundsdóttir Hansen (90) og Val- dís Daníelsdóttir (95). Þau eiga ólíkan bak- grunn; Matthía og Valdís ólust upp í sveit, Ingibjörg í bæ og Bragi í borg. Hvernig voru jólin þegar þið voruð börn? Matthía grípur fyrst orðið. „Fyrstu jólin sem ég man eftir voru falleg og mikil jól. Við höfðum mikið fyrir því, við systkinin, að smíða jólatréð.“ Þá hváir blaðamaður og spyr hvernig jólatré það sé eiginlega sem þarf að smíða. Ekki stóð á svörun- um. Jólatré úr greni voru þá ekki komin inn á hvert heimili. Þess í stað var jóla- tré smíðað úr spýtum, með örmum sem kerti voru fest á. Eftir atvikum voru slík tré skreytt með lyngi eða könglum, en svo var ekki á heimili Matthíu. „Nei, við vorum ekki með svoleiðis. Það var bara tréð með litlum kertum á endanum. Aðfangadagur var lengi að líða.“ segir Matthía og brosir. „Hann var lengi að líða því við hlökkuðum svo til að fá að kveikja á kertunum á jólatrénu á aðfangadags- kvöld, eftir kaffið. Við borðuðum klukk- an tvö, kalt hangikjöt. Síðan klukkan sex vorum við komin í jólafötin og settumst öll inn til að syngja sálmana. Pabbi fór með húslestur og svo voru sungnir sálm- ar. Það var ekkert útvarp. Það var ekki komið til okkar þá.“ Hún kveðst sakna þess heilaga blæs sem einkenndi jólin er hún var barn. Þá var snæddur hátíðarmatur, kalt hangi- kjöt, klukkan tvö því eftir mat þurfti að sinna búi og fé og síðan baða og klæða fjölskyldumeðlimi fyrir jólahátíðina klukkan sex á aðfangadegi. Með hátíðar- kaffinu á aðfangadagskvöld voru svo snæddar smákökur og tertur. „Pabbi var voðalega góður söngvari. Við sungum alla helstu sálmana. Síðar þegar útvarpið var komið, þá hlustuðum við á hátíðar- messu í útvarpinu. Það var æðislegt.“ Lítið var um jólagjafir, þá helst kerti eða eitthvað þarfaþing svo sem prjóna- klukku (undirkjól) eða nýjan kjól. Hjá Valdísi voru jólin með öðru sniði, þó svo að hún sé líka úr sveit. Hjá henni borðaði fjölskyldan hátíðarmatinn klukk- an þrjú, og svo var farið í mjaltir. Síðan þurfti, líkt og hjá Matthíu, að punta sig fyrir hátíðarhöldin. Margir úr fjölskyldu hennar héldu heimili á sömu slóðum og því var mikið um manninn í sannkölluð- um jólaveislum yfir hátíðirnar. Húsmæð- urnar í fjölskyldunni skiptu á milli sín hátíðardögum og buðu upp á hátíðar- kaffi. Þar voru snæddar sparismákökur, gyðingakökur, vanilluhringir og hálfmán- ar, svo eitthvað sé nefnt, og ríkti mikil til- hlökkun meðal barnanna að fá að bragða dýrindin. „Ég man eftir því, eins og Matthía sagði, að aðfangadagur ætlaði aldrei að líða. Við borðuðum líka seinni part dags- ins og héldum svo veislu um kvöldið. Þar var borðað aðalsælgætið. „Það var nefnilega svoleiðis, að það var það sem var kallað þrímælt. Það var borðuð klukkan þrjú á daginn aðalmál- tíðin, svo var verið að gera í fjósinu, eins og kallað var. Að því loknu fórum við að punta okkur og svo hlustuðum við á mes- su í útvarpinu. Útvarpið kom til okk- ar árið 1930, ég hef þá verið sex ára. Það var afskaplega gamaldags og heilmikið mál að opna það, útvarpið. Ég man eftir því að það voru þrír eða fjórir takkar sem þurfti að ýta á. Það var geymir, sem kall- að var, ljósroði eða eitthvað. Ég man alltaf eftir því að því var snúið fram og til baka [Valdís sýnir aðfarirnar með tilþrifum] og þannig þurfti að opna útvarpið. Það var aldrei messa á aðfangadag í sveitinni hjá okkur. Ég var norður í Hrúta- firði. En það voru bara alltaf yndisleg jólin, þegar maður er að minnast þeirra svona. Maður ætlaðist aldrei til neins. Maður fékk þó náttúrlega alltaf nýja kjóla. Mamma saumaði á mann, og ég saum- aði svo á mínar stelpur. Allt var saumað. Og alltaf náttföt, það var alveg fastur lið- ur að krakkarnir fengu alltaf ný náttföt um jólin. Í gegnum jólin hjá okkur, ef það voru bækur gefnar, þá fóru börnin í nátt- fötin og svo hlupu allir, hver inn í sitt her- bergi til að lesa.“ Líkt og annars staðar var þótti mikið spennandi á heimili Valdísar að tendra á jólatrénu, sem var framan af úr spýtum. Kertin voru í alls konar litum, voru snúin – ekki ósvipuð þeim kertum sem prýða gjarnan afmæliskökur í dag, nema að- eins stærri – og kölluðust Hreinskerti. Jólabaðið var í raun bali þar sem baðkör þekktust ekki í sveitinni á þeim tíma. M Y N D IR : E Y Þ Ó R Á R N A S O N Matthía Margrét Jónsdóttir Valdís Daníelsdóttir Matthía og bernskan í sveitinni Valdís og jóla- veislurnar Erla Dóra erladora@dv.is„Ég man þegar ég fékk rautt epli í fyrsta sinn
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.