Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Síða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Síða 36
36 FÓKUS 20. desember Sundaborg 3 104 Reykjavík 777 2700 xprent@xprent.is SKILTAGERÐ Ljósakassar Ljósaskil 3D stafir Hönnun Ráðgjöf Uppsetning Matthía: „Eftirminnilegasta jólagjöf sem ég virti ógurlega mikið og var mér hálfheilög. Það var stórt kerti með mynd af frelsaranum. Fóstra mín gaf mér þetta og mikið fannst mér það fal- legt. Ég verndaði það eins og dýr- grip. Ég hef verið svona sjö ára. Síðan seinna tók bróðir minn kertið og kveikti á því. Ég grét því ég fann svo til, þetta var mynd af frelsaranum á stóru kerti og hann kveikti á því. Bróðir minn benti mér á að hann hafði nú ekki brennt sjálfan frelsarann, en ég sagði bara „Láttu þetta vera“. Svo fékk ég líka efni í satínpils.“ Valdís: „Ég hef fengið margar yndislegar jólagjafir. Það er svo margt sem mér dettur í hug. Bæði bækur og annað. Það var þó eitt sem ég man sér- staklega eftir. Ég fékk lítið píanó og gat spilað lög á það. Það var svona um tuttugu sentímetrar á lengd og hvítt á litinn. Það var pantað frá Þýskalandi. Það var maður heima hjá okkur, sem var giftur ömmu- systur minni, sem gat pantað frá Þýskalandi og pantaði þetta. Þetta var berklaveikur maður, með smit- andi berkla. Hann vildi ekki fara á hælið, sem var þó komið þá. Við vorum að sniglast í kringum hann og mamma var alltaf með sápuna og lýsól á lofti. Og það einkenndi berklasjúklinga, þessi lýsóllykt. Þessi maður gaf okkur öllum krökkunum eitthvað svona sem hann pantaði. Síðan hélt að hann myndi deyja fyrir jól og vegna þess fengum við jólagjöfina svolítið snemma því hann vildi sjá þegar við tækjum utan af gjöfunum. Við smituðumst ekki af berklunum. Það er mín besta jólagjöf.“ Inga: „Manni fannst voða gott að fá bækur. Ég man eftir einni bók sem hét Inga fór til Íslands, sem móðurbróðir minn gaf mér. Ég var alltaf kölluð Inga. Síðan gaf ég dóttur hans bókina þegar hún var orðin fullorðin.“ Bragi: „Nei, ég man nú ekki neitt sérstakt. Ég man bara ekki neitt svoleiðis. Jú, skautarnir og eitt sinn fékk ég skíði líka. Það var voðalega erfitt að kaupa þetta, þetta þótti það dýrt þótt verðið hafi ekki verið hátt miðað við daginn í dag. En peningar voru peningar þá.“ Breytingar með hernum Eftir að fjórmenningarnir fóru að búa sjálfir tóku jólin nokkrum stakkaskiptum. Þá var herinn kominn til landsins og fylgdu honum hraðar breytingar í sam- félaginu. Valdís: „Þá komu eplin og eplalyktin. Þá angaði heimilið af eplum. Ég reyndar skil ekki hvað gerist síðar, áður var eplalyktin úti um allt, en epli í dag bera enga lykt. Það er eitthvert efni sem er notað nú á þau til að láta þau end- ast betur. Í gamla daga var þetta mikið ferskara. Eftir að ég fór að búa þá man ég eftir því að hjá kaupmanninum í kaup félaginu voru eplin skömmtuð eftir því hversu margir voru á heimili.“ Matthía: „Ég man þegar ég fékk rautt epli í fyrsta sinn.“ Bragi: „Ég var stýrimaður á einu skipi og frændi okkar kom alltaf með ávexti fyrir jólin. Það þótti voðalega flott.“ Enginn ísskápur Blaðamaður ræddi við fjórmenn- ingana um margt sem því miður rúmast ekki allt á þessum síðum. Eftirminnilegt er þó að heyra lýs- ingarnar af bernsku þeirra. Tíma þar sem menn þurftu að rogast á milli heimila með rafhlöður til að hlaða þær í hleðslustöð til að geta hlustað á útvarpið. Ekki var þá hægt að stökkva út í bíl til að flýta för. Á þessum tíma voru ekki einu sinni komnir vegir til allra byggða og fólk ferðaðist mikið um á hest- baki. Framan af þurftu þau líka að komast af án ísskáps. „Við fengum ekki ísskáp fyrr en 1957,“ segir Inga. Þau útskýra fyrir blaðamanni að fyrir tíð ís- skápsins voru notaðar kaldar úti- geymslur og fjölskyldur leigðu sér frystigeymslur eða frystihólf í þar til gerðum frystihúsum. „Það var stórt frystihús þar sem Seðla- bankinn er núna. Þar voru leigð út hólf,“ segir Bragi. Minna stress um jólin Fjórmenningarnir eru sammála um að streitan hafi verið minni í þá tíð. „Ég sakna rólegheitanna. Nú er mun meira stress fyrir jólin,“ segir Inga. Sjálfbærnin í samfélaginu var einnig meiri. „Þá var allt nýtt, engu hent,“ seg- ir Valdís. Fatnaður var saumað- ur heima við, jafnvel þegar engin eyrnamerkt efni fengust. „Það var mikill saumaskapur á mínu heimili. Móðir mín var sauma- kona. En hún saumaði ekki á mig, það var konan í næsta húsi sem kunni karlmanns- saum. Hún saumaði á mig en móðir mín saumaði á hana,“ segir Bragi. Matthía og Valdís saumuðu einnig allt á dætur sín- ar, eftir að þær stofnuðu til fjöl- skyldu. „Fyrstu kjólarnir sem ég saumaði á börnin voru út hveiti- pokum. Þá fengust engin efni úr búðum. Þá notaði maður hveiti- poka, en sykurpokarnir voru jafnvel enn betri,“ segir Matthía. Valdís tekur undir þetta. „Ég man að það var heilmikið mál að ná stöfunum af pokunum.“ Á þessum tíma var lítið sem ekkert um plast. Þeir sem bjuggu í borg eða bæjum héldu til mjólkursal- ans með krúsir sem voru fylltar af mjólk. Hveiti og sykur komu í nýtanlegum pokum úr efni. Raf- magn var af skornum skammti og munaðarvörur á borð við raf- magnseldavél, þvottavél, ísskáp, fyrsti, sjónvarp og jafnvel, lengi vel, útvarp voru ekki til stað- ar. Allt var nýtt, matarsóun lítil sem engin og jólin voru tími til- hlökkunar og samveru, en ekki hluta og streitu. Miðað við lofts- lagskrísuna núna í heiminum þá væri jafnvel sitt hvað sem samfé- lagið okkar í dag mætti taka sér til fyrirmyndar frá íslenska sam- félaginu eins og það var skömmu eftir fyrri heimsstyrjöldina. Ljóst er að jólin hafa tekið miklum stakkaskiptum síðan fjórmenningarnir voru börn. Blaðamaður kann þeim bestu þakkir fyrir ánægjulega og fræð- andi samverustund. Mun hann fara að fordæmi gömlu dag- anna þessi jólin, reyna að kúpla aðeins aftur streituna og ein- beita sér frekar að því að hlakka til samverustunda með fólkinu sínu og fyrst og fremst muna að njóta. n Eftirminnilegar gjafir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.