Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Síða 42
42 20. desember
M
akedónska glæpafréttaritaran-
um Vlado Taneski fannst kannski
helst til mikil ládeyða í glæpa-
heimi lands síns. Eftir um tuttugu
ára feril sem slíkur ákvað hann að taka
hliðarspor frá fréttamennsku og ekki að-
eins fjalla um glæpi heldur fremja þá
fyrst. Þess konar „fréttamennsku“ stund-
aði Vlado um þriggja ára skeið; frá 2005 til
2008.
Vlado var handtekinn 22. júní, 2008,
eftir að hafa fjallað um morð og í fréttum
hans komu fram smáatriði sem einungis
lögregla hafði vitneskju um, atriði sem
ekki höfðu verið gerð opinber og aðeins
morðingi kynni að þekkja til.
Fátækar ræstingakonur
Sjónir lögreglu beindust fyrst að Vlado
eftir skrif hans um morð á þremur konum
í Kicevo í Makedóníu. Fyrsta fórnarlamb-
ið, Mitra Simjanoska, 64 ára, fannst látin
árið 2005, Ljubica Licoska, 56 ára, var myrt
í febrúar árið 2007 og Zivana Temelkoska,
65 ára, var myrt í maí árið 2008.
Reyndar hafði lögreglan Vlado einnig
grunaðan um að vera bendlaður við hvarf
78 ára konu, Glorica Pavleska, árið 2003.
Slæm samskipti sonar og móður
Þessar fjórar konur áttu það sameiginlegt
að hafa verið fátækar, ómenntaðar og séð
sér farborða með þrifum hér og hvar. Merki-
legt nokk þá átti sú lýsing einnig við móður
Vlados, sem allar konurnar höfðu reyndar
þekkt.
Vitað var að samband Vlados og móður
hans hafði ekki verið dans á rósum og litað
ósætti og spennu. Faðir Vlados var ekki leng-
ur til staðar, hann hafði svipt sig lífi árið 1990.
Hann vissi of mikið
Lífsýni úr Vlado var borið saman við lífsýni
úr sæði sem fannst á líkum kvennanna
þriggja og óyggjandi samsvörun fékkst,
en líkin höfðu fundist klæðlaus, vafin með
símaleiðslum í nælonpokum á mismun-
andi stöðum í Kicevo.
Í dagblaðið New Macedonia hafði Vlado
skrifað að Ljubica Licosca hefði verið rænt
eftir að tveir menn nörruðu hana inn í bif-
reið þeirra með frásögn um að sonur henn-
ar hefði slasast illa.
Í grein í öðru dagblaði álasaði Vlado
lögreglunni fyrir að hafa bendlað tvo karl-
menn við dauða einnar konunnar, sagði
hann að umræddir menn hefðu verið í
fangelsi þegar hún var myrt.
Rannsóknarlögreglumaður að nafni
Kotevski sagði: „Við lásum frásagnir hans
og fylltumst grunsemdum. Hann vissi of
mikið.“
Indæll og normal
Kollega Vlados á New Macedonia, Ognen
Cancarevik, sem hafði unnið með honum
að umræddum greinum, sagði að hann
og allir vinnufélagar Vlados væru í áfalli.
Vlado var talinn indælis náungi og virtist
vera normal í alla staði.
„Þegar lögreglan hringdi í mig og sagði:
„Fréttamaður ykkar er morðinginn“ trúði
ég vart því sem ég heyrði,“ sagði Ognen
og bætti við: „Hann var svo rólegur þegar
hann ræddi þessi morð. Allar konurnar
bjuggu aðeins steinsnar frá heimili hans.“
Snöggur endir
Sem fyrr segir hugðist lögregla leggja
nokkrar spurningar fyrir Vlado um Glorica
Pavleska sem horfið hafði árið 2003. Til
þess kom þó ekki því þann 23. júní, 2008,
daginn eftir að hann var handtekinn,
framdi Vlado sjálfsvíg í klefa sínum. Það
gerði hann með því að halda höfði sínu
niðri í fötu fullri með vatni. Örlög Glorica
eru því enn á huldu.
Í einni frétt sinni skrifaði Vlado:
„ Ástæður skrímslisins í Kicevo eru enn
á huldu. Báðar konurnar bjuggu í sama
bæjarhluta og voru vinir. Lögreglan hefur
ekki haft marga til að yfirheyra. Síðasta
líkið fannst á ruslahaug. Það var vafið með
símasnúru sem greinilegt var að hafði
verið notuð til að kyrkja konuna.“ n
SAKAMÁL
KICEVO-SKRÍMSLIÐ
n Hvað lá að baki ódæðum Vlados Taneski er ekki vitað n Fórnarlömbin
voru öll fullorðnar, fátækar konur n Þeim var nauðgað og þær síðan myrtar
Beggja vegna
borðs Vlado
Taneski lét sér ekki
nægja að fjalla um
glæpi.
Á haugunum Lík eins
fórnar lambanna kemur í
leitirnar.
Sími 580 7000 | www.securitas.is
Með öryggishnapp Securitas um úlnlið eða háls eykur þú öryggi þitt ef eitthvað
kemur upp á. Þú býrð við meira öryggi á heimilinu og aðstandendum líður betur að
vita af þér í öruggum höndum.
Þú ýtir á hnappinn, boðin berast samstundis til stjórnstöðvar Securitas þar sem þú
færð samband við sérþjálfað starfsfólk. Öryggisverðir Securitas með EMR þjálfun eru
alltaf á vakt og bregðast hratt og örugglega við.
Hafðu samband við öryggisráðgjafa Securitas í síma 580 7000 og kynntu þér kosti
öryggishnappsins og hvaða annan öryggisbúnað hægt er að hafa með honum.
SAMSTARFSAÐILI
ÖRYGGISHNAPPUR SECURITAS
09:41 100%
ÖRYGGI ÖLLUM STUNDUM
ÖRYGGISHNAPPUR
SECURITAS