Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Qupperneq 72

Dagblaðið Vísir - DV - 20.12.2019, Qupperneq 72
20. desember 51. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000 Gefðu gjöf frá frægustu hönnuðum heims Epal / Harpa / Skeifan 6 / Kringlan / Laugavegur 70 / 5687733 / epal@epal.is / www.epal.is Þetta er ekkert grín! S tarfsfólk Isavia ákvað að bregða út af vananum þetta árið með því að sleppa að gefa hvert öðru jólagjafir, og láta í stað andvirði gjafanna renna til góðs málefnis. Fjölskylduhjálp Íslands sér fram á erfið jól í ár en í tilkynningu á vef samtakanna segir að fjármunir séu af skornum skammti, styrkir frá hinu opinbera dugi skammt og ásóknin þessi jól eftir matvælaaðstoð sé mun meiri en búist var við. „Jólin nálgast óðfluga og sjá margir í þessum hópum ekki fram á að geta haldið jól yfirhöfuð eða með lítilli reisn. Í fyrra aðstoðuðum við um 2.000 manns fyrir jólin og er ekki búist við færri í ár mið- að við fyrirspurnir til okkar sem hófust óvenju snemma í ár. Fjármagn er hins vegar takmarkað, og því miður sjáum við fram á að þurfa að setja þak á hversu marga við getum aðstoðað í ár, nema samfélagið okkar taki höndum saman og leggi verkefninu lið.“ „Þetta var frábært framtak hjá starfsmönnum okkar hjá Isavia,“ segir Guð- jón Helgason upplýsingafulltrúi Isavia, í samtali við DV. „Um 60 starfsmenn á tveimur vöktum sem sinna öryggisleit starfsmanna og öryggisleit í bifreiðum á gátstöðvum við Keflavíkurflugvöll hafa haft þann sið að skiptast á gjöfum í leynijóla- sveinaleik (secret santa) fyrir jólin. Þetta árið tóku þessir starfsmenn ákvörðun um að láta peninginn, sem annars færi í gjafakaup, renna til góðs málefnis. Sú upphæð sem safnaðist, rúm- lega 200 þúsund krónur, fóru til Fjöl- skylduhjálpar Íslands í Reykjanes- bæ en á meðfylgjandi mynd má sjá nokkra af starfsmönnum Isavia ásamt Ingu Birnu Kristinsdóttur hjá Fjöl- skylduhjálp Íslands í Reykjanesbæ. „Hér er um flott framtak að ræða hjá öflugu starfsfólki okkar,“ segir Guðjón jafnframt. Gjafmilt starfsfólk Isavia Án djóks Á stralski grínistinn Jonathan Duffy trú- lofaðist nýverið kærasta sínum Natan J. Etienne. Bauð Natan sín- um heittelskaða í laumuferð á Snæfellsnes og fór á skelj- arnar. „Ég sagði auðvitað já,“ skrifar Jonathan á Facebook- -síðu sína, í sjöunda himni. Jonathan hefur búið á Íslandi um nokkurt skeið og gert gott mót í uppistandi. Þá hef- ur hann einnig unnið í graf- ískri hönnun fyrir ýmsa lista- menn, þar á meðal fyrir Gretu Salóme og Eurovision-framlag hennar, Raddirnar. Spenna fyrir Signals T ökur á þáttaröðinni Signals, sem frameidd er af Sagafilm, eiga að hefj- ast seint á næsta ári en nú þegar hefur myndast spenn- ingur erlendis fyrir seríunni. Signals var valið áhugaverð- asta „pitchið“ á London Drama Summit nýverið en leikstjórn er í höndum Óskars Jónassonar. Hann skrifar handritið í félagi við Margréti Örnólfsdóttur, Jó- hann Ævar Grímsson og Sjón. Áætlaður kostnaður er tæpur milljarður en um níu þætti er að ræða. Í þáttunum er fylgst með lögreglukonunni Magneu sem rannsakar hryðjuverk og net- glæpi. Heimur hennar umturn- ast þegar að Ísland er á barmi hruns.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.