Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Page 16
16 FÓKUS - VIÐTAL 1. nóvember 2019
R
úmur áratugur er síðan
Steinar Smári Guðbergs-
son hóf formlega störf sem
meindýraeyðir, en hann
hafði fram að því fengist við mörg
mismunandi störf sem áttu það
sameiginlegt að reynast hjálp-
leg fólki í mismunandi aðstæð-
um. Hann byrjaði sem rafvirki,
en kláraði ekki það nám að fullu
því hann fór á sjóinn og kallar sig í
dag hálfvirkja. Hann ól lengi þann
draum í brjósti að verða flugmað-
ur en vegna takmarkaðrar heyrn-
ar gekk sá draumur ekki eftir.
„Ég er alinn upp í sveit og hata
köngulær, þannig byrjaði þetta
eiginlega,“ segir Steinar Smári
þegar talið berst að því hvernig
hann hafi gerst meindýraeyðir.
„Ég var alltaf að reyna að finna
leiðir til að útrýma köngulóm úr
lífi mínu. Algengt er að segja þær
dragi frá flugur en það er bull og
vitleysa. Tegundirnar af flugum
eru fjöldamargar og aðeins örfáar
sem rata í vefinn. Eitrið sem er
notað til að drepa köngulærnar
drepur sömuleiðis flugurnar svo
allir græða.“
Einn af fáum sem fá að skjóta
Á þeim tíma sem Steinar Smári
ákvað að snúa sér að starfsgrein-
inni var lítil sem engin fræðsla í
boði, í dag er hún ögn meiri en er
engu að síður mjög svo ábótavant.
„Ég get fullyrt að ég sé orðinn
hálfgerður líffræðingur eftir að
ég hellti mér út í þetta. Áður voru
þetta tveir dagar og snerust að
mestu um að kenna manni að
Íris Hauksdóttir
iris@dv.is
Steinar Smári fær um sextíu símtöl á dag - Mikill músagangur
á þessum árstíma - Stærstu rotturnar um 40 sentimetrar
„Miðborgin
er morandi
í rottum“
Dagur í lífi
meindýraeyðis:
M
Y
N
D
IR
: EY
Þ
Ó
R
Á
R
N
A
S
O
N