Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Blaðsíða 51
MATUR 511. nóvember 2019
Deig – Hráefni:
n 1/4 l nýmjólk
n 50 g smjör
n 1/2 pakki þurrger
n 4 msk. sykur
n 3 bollar hveiti
n 1/2 tsk. sjávarsalt
Aðferð:
Hitið mjólkina í örbylgjuofni.
Hún á ekki að sjóða heldur vera
volg. Hjá mér tekur þetta 30–45
sekúndur.
Bræðið smjörið og blandið
saman við mjólkina. Bætið
þurrgerinu og sykrinum út í og
látið standa í 4–5 mínútur.
Bætið síðan hveiti og sjávar-
salti saman við og hnoðið deig-
ið vel. Setjið hreint viskastykki
yfir skálina og leyfið deiginu að
hefast í 40–50 mínútur á hlýjum
stað. Gott er að hnoða deigið
svo aftur og leyfa því að hefast á
ný í 20–25 mínútur.
Fylling – Hráefni:
n Nutella
n 3–4 bananar, skornir í bita
n 1 egg
n smá mjólk
Hitið ofninn í 200°C og setjið
smjörpappír á tvær ofnplötur.
Skiptið deiginu í 3–4 jafn-
stóra parta og fletjið út litla
hringi. Skiptið hverjum hring
upp í 8 þríhyrninga með pítsu-
skera. Smyrjið Nutella á efsta
part þríhyrninganna og smellið
einum bananabita ofan á.
Rúllið þríhyrningunum upp og
raðið á ofnplöturnar.
Þeytið eggið og mjólk saman
og penslið toppana á hornun-
um með því.
Bakið í 12–15 mínútur og
leyfið að standa í 10 mínútur
áður en þið gúffið hornin í ykk-
ur. Ekki er verra að bræða smá
Nutella eða súkkulaði og drissa
því yfir.
Botn – Hráefni:
n 115 g brætt smjör
n 1/4 bolli sykur
n 1 tsk. vanilludropar
n 1/4 tsk. salt
n 1 bolli hveiti
Aðferð:
Hitið ofninn í 150°C og takið til form sem er sirka
20 sentímetra stórt. Smyrjið það með smjöri eða
bökunarspreyi.
Blandið smjöri, sykri, vanilludropum og salti
vel saman í skál. Bætið hveitinu við og hrærið þar
til allt er blandað saman.
Þrýstið blöndunni í botninn á forminu og bak-
ið í 15 mínútur, eða á meðan þið takið til fyll-
inguna og toppinn.
Eplafylling – Hráefni:
n 2 stór epli, afhýdd og skorin í þunnar sneiðar
n 2 msk. hveiti
n 2 msk. sykur
n 1 tsk. kanill
n 1/8 tsk. múskat
Aðferð:
Blandið öllu saman í stórri skál og setjið til hliðar.
Toppur – Hráefni:
n 1/2 bolli haframjöl
n 1/3 bolli púðursykur
n 1/4 tsk. kanill
n 1/4 bolli hveiti
n 60 g smjör, kalt og skorið í teninga
Aðferð:
Blandið haframjöli, sykri, kanil og hveiti saman í
skál.
Notið fingurna til að blanda smjörinu vel
saman við þar til blandan byrjar að minna á gróf-
saxaða brauðmola.
Takið botninn úr ofninum og hækkið hit-
ann í 180°C. Raðið eplunum ofan á heitan botn-
inn. Ykkur finnst þetta vera of mikið af eplum en
treystið mér! Raðið þeim bara þétt saman og ýtið
þeim niður í botninn.
Dreifið toppinum yfir eplin og bakið í 30–35
mínútur, eða þar til toppurinn er gullinbrúnn.
Takið úr ofninum og leyfið kökunni að kólna í
20–30 mínútur við stofuhita.
Saltkaramellusósa – Hráefni:
n 1 bolli sykur
n 90 g smjör
n 1/2 bolli rjómi
n 1 tsk. sjávarsalt
Aðferð:
Setjið sykur í pott og hitið yfir meðalhita. Hrærið
stanslaust í sykrinum, en fyrst mun hann verða að
kögglum og síðan bráðna í ljósbrúna blöndu.
Þegar sykurinn er bráðnaður bætið þið smjör-
inu út í og hrærið áfram stanslaust. Passið ykkur
því blandan mun bubbla og láta illa þegar smjör-
ið snertir sykurinn. Hrærið þar til allt smjörið er
bráðnað og búið að blandast saman við sykurinn.
Hellið síðan rjómanum varlega út í á meðan
þið hrærið en blandan mun aftur láta illa. Leyfið
þessu að sjóða í um 1 mínútu en haldið áfram að
hræra stanslaust.
Takið pottinn af hellunni og blandið saltinu
saman við. Hellið blöndunni í aðra skál og leyfið
henni að kólna í 10–15 mínútur áður en þið hellið
henni yfir kökuna. Ekki hella samt allri sósunni
yfir kökuna – geymið smá til að bera fram með
henni. Eða þið bara frystið kökuna án sósunnar,
en hún helst góð í frysti í 3 mánuði. Nammi!
Nutella-horn
Ómótstæðileg epla-
og karamellukaka