Dagblaðið Vísir - DV - 01.11.2019, Side 64
1. nóvember 2019
44. tölublað 109. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Gjaldþrot í
öðru
veldi !?
DOMINOS.IS | DOMINO’S APP | 58 12345
Víðishöllin aftur á sölu
R
úmlega 250 metra einbýlishús
við Valhúsabraut 16 á Sel
tjarnarnesi er komið á sölu og
ásett verð 159 milljónir króna.
Samkvæmt Þjóðskrá eru hjónin Ei
ríkur Sigurðsson og Helga Gísladótt
ir búsett á Valhúsabraut, en þau eru
oft kennd við verslanirnar Víðir. Öll
um verslunum Víðis var lokað fyrir
varalaus í fyrra og félagið er gjald
þrota. Kom það starfsmönnum í opna
skjöldu og sagt frá því í öllum helstu
fréttamiðlum að starfsmenn hefðu
fengið lítinn sem engan fyrirvara á
endanlegri lokun Víðisverslana.
Húsið við Valhúsabraut 16 er ekki
skráð á þau Eirík og Helgu held
ur á fyrirtækið Big Box ehf., en eig
andi þess er sonur hjónanna, Sig
urður Gísli Eiríksson. Þetta er ekki
í fyrsta sinn sem húsið fer á sölu, en
Smartland sagði frá fyrirhugaðri sölu
á húsinu í júlí síðastliðnum. Þá var
húsið kallað Víðishöllin.
Í þeirri frétt var einnig minnst á
sölu Helgu á Hrólfsskálavör 2 sem
hún seldi árið 2013. Það hús komst
síðan í fréttir fyrir stuttu þegar núver
andi eigandi þess, Skúli Mogensen,
fyrrverandi forstjóri WOW air, setti
það á sölu á einkavefsíðu, en það er
talið eitt verðmætasta hús landsins. n
Glæsilegt hús Einbýlishúsið er á Seltjarnarnesi.Heimsveldið
gjaldþrota
F
yrirtækið Heimsveldið
ehf. er gjaldþrota og er
skiptum lokið. Sam
kvæmt Lögbirtingablað
inu voru lýstar kröfur í þrota
búið rétt rúmlega 2,7 milljónir.
Engar eignir fundust í búinu og
var skiptum lokið 10. október
síðastliðinn. Heimsveldið sá
um framleiðslu á kvikmynd
um, myndböndum og sjón
varpsefni og var eigandi þess
Hugi Halldórsson. Hugi er vel
þekktur í íslensku þjóðlífi og
rak til að mynda framleiðslu
fyrirtækið Stórveldið sem
lagði upp laupana árið 2016
eftir öran vöxt. Hugi vakti fyrst
athygli lands
manna sem
OfurHugi
í skemmti
þáttunum
70 mín
útur á
Popptíví.
MYND: SKJÁSKOT / VB.IS
Elísabet leikur
sér að eldinum
N
ý kvikmynd er væntan
leg þar sem Elísa bet
Ronaldsdóttir, einn
eftirsóttasti klipp
ari landsins, leikur listir sín
ar. Kvikmyndin sem um ræð
ir heitir Playing with Fire og
segir frá slökkviliðsmönnum
sem reyna að koma böndum
á þrjá óþekka krakka. Með
helstu hlutverk fara þeir John
Cena, KeeganMichael Key og
John Leguizamo. Elísabet hef
ur gert garðinn frægan upp
á síðkastið með stórvinsæl
um kvikmyndum á borð við
John Wick, Atomic Blonde og
Deadpool 2. Elísabet hefur
þó ekki eingöngu haldið sig
við erlend verkefni á síðustu
misserum og klippti einnig ís
lensku kvikmyndirnar Svanur
inn og Vargur. Playing with
Fire verður frumsýnd á Íslandi
í byrjun árs 2020.