Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Qupperneq 30
Íslenskar netverslanir 08. nóvember 2019KYNNINGARBLAÐ
ENGILBERTS HÖNNUN:
Glænýjar og fallegar gjafavörur
halda nafni listarinnar á lofti!
Þau Hjörtur og Greta Engilberts hanna gullfallegar gjafavörur,
töskur, slæður, kerti, sérvíettur,
tækifæriskort og margt fleira
undir hönnunarmerkinu Engilberts
hönnun. „Greta er dótturdóttir
listamannsins Jóns Engilberts
og langaði okkur að koma list
hans á framfæri við almenning
með gjafavörum og fleiru með
áprentuðum teikningum og
málverkum eftir hann, en Jón
er einn ástsælasti listamaður
þjóðarinnar. Okkur langaði að halda
nafni Jóns á lofti og kynna list hans
utan listasafnanna. Með þessum
hætti eru verk hans ávallt sýnileg
en ekki eingöngu þegar verkin eru
í sýningu á listasöfnunum,“ segir
Hjörtur Sólrúnarson.
Hver var Jón Engilberts?
Listamaðurinn Jón Engilberts
(1908–1972) var og er þekktur fyrir
einstaklega djarfan en jafnframt
fallegan stíl. Í grein Jóns Özurar
Snorrasonar um listamanninn
segir að verkin einkennist af sterku
og andstæðuríku litrófi í anda
fígúratífs expressjónisma. Jón
var brautryðjandi í grafíklist hér á
landi og einn stofnenda Íslenskrar
grafíkur árið 1954. Verk hans
eru þó unnin í afar fjölbreytta
miðla og meðal annars eru til
eftir hann vatnslitaverk, dúk- og
tréristur, málverk, blýants- og
blekteikningar og margt fleira.
Jón hafði fulla trú á grafíklistinni
og taldi hana henta betur en
önnur listform til árangurs, þar
sem hún byggi yfir tjáningarformi
ádeilunnar ásamt því að vera
seld á viðráðanlegu verði. En
þessi hugmyndafræði Jóns er
einmitt það sem Greta og Hjörtur
vilja halda á lofti með vörulínu
sinni, Engilberts hönnun. „Það er
einfaldlega stefna hjá okkur að
bjóða íslenska hönnun á þannig
verði að sem flestir geti haft efni á
henni,“ segja þau Greta og Hjörtur.
Fallegar og menningarlegar
jólagjafir
Greta og Hjörtur stofnuðu
Engilberts hönnun árið 2015 og
nú eftir tveggja ára pásu hafa þau
hannað glænýjar vörur og opnað
glæsilega netverslun engilberts-
honnun.is/netverslun þar sem
gafavörurnar eru nú fáanlegar.
Einnig eiga þau upplag af
grafíkverkum eftir Jón Engilberts
og verða verkin seld í gegnum
netverslunina. Vörurnar frá
Engilberts hönnun eru fullkomnar
í jólapakkann enda ákaflega
fallegar, menningarlegar og
skemmtilega öðruvísi.
Nýjar vörur á markaði netverslana
Engilberts hönnun verður með bás
á Pop-up markaði netverslana í
Víkingsheimilinu 9.–10. nóvember.
„Einnig verðum við með bás á
markaði í Laugardalshöll fyrstu
helgina í desember. Þeir sem
eru spenntir að fylgjast með er
bent á Facebook-síðuna okkar,
Engilberts-hönnun ehf. Þar má
fylgjast með því sem er í gangi
hverju sinni hjá Engilberts hönnun.“