Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Síða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Síða 33
KYNNINGARBLAÐ Gæði RMK HEILDVERSLUN: „Plastið brotnar niður í náttúrunni á 30 dögum“ RMK Heildverslun er framsækið umbúðafyrirtæki sem býður upp á gott úrval af umhverfisvænum umbúðalausnum fyrir hvers konar matvælaiðnað. „Við höfum fundið fyrir gríðarlegri aukningu á að fyrirtæki leggi aukna áherslu á að bjóða upp á umhverfisvænni umbúðir. Að sjálfsögðu tökum við þessari þróun fagnandi og leggjum ríka áherslu á að bjóða upp á eins umhverfisvænar umbúðir og hægt er fyrir hvern viðskiptavin. Okkar helstu umhverfisvænu valkostir eru ýmiss konar umbúðir úr pappa og pappír, bambus og tréhnífapör, PLA vörur og svo vörur úr bambus/sykurreyr púlpi,“ segir Vignir Jóhannesson, framkvæmdastjóri RMK. PLA „plast“ sem brotnar niður á 30 dögum En hvað er PLA? „PLA hefur oft verið nefnt „jurta plast“, en þrátt fyrir plastlíkindin er hér þó ekki um eiginlegt plast að ræða. Í stuttu máli er PLA unnið úr náttúrulegum jurtaefnum svo sem maíssterkju eða sykurreyr. Vörur úr PLA eru 100% niðurbrjótanlegar og henta í moltugerð. PLA vörur flokkast með lífrænum úrgangi eða almennu sorpi en fara ekki í plasttunnuna. Í náttúrunni brotna þær niður og jarðgerast en það er mismunandi hvað það tekur langan tíma. Við fullkomnustu aðstæður brotnar PLA niður á 30–40 dögum. Við bjóðum uppá PLA „boozt“ glös, drykkjarmál, salatbox, rör, hnífapör og margt fleira. Það nýjasta hjá okkur eru kaffimál úr pappa sem eru með PLA-húðun innan í í stað plasthúðunar. Það er líka gaman að segja frá því að í lok október munum við eingöngu vera með PLA húðuðu kaffimálin á lager hjá okkur og að sjálfsögðu PLA lok líka. Það eru til umhverfisvænir möguleikar fyrir flestar plastvörur, en ekki allar,“ segir Vignir. Plastið getur verið gott að því leyti að það þolir hita/kulda betur og getur lengt endingartíma matar. „Það er oft talað um að það sé umhverfisvænna að pakka mat vel svo að hann endist, frekar en að hann skemmist og fari beint í ruslið. Það er alltaf eitthvað nýtt að koma á markaðinn og er ég viss um að eftir nokkur ár verði búið að leysa allt plast af hólmi.“ RMK er duglegt að fylgjast með nýjungum í umbúðageiranum og er sífellt að bæta við úrvalið til þess að koma æ betur til móts við viðskiptavini sína. Nýjar vörutegundir bætast við í hverri einustu viku og eru helstu nýjungar hjá RMK meðal annars frábærir veislubakkar. Nánari upplýsingar á rmk.is Vefpóstur: info@rmk.is Sími: 554-2888 Ábyrgðarmaður: Kolbrún Dröfn Ragnarsdóttir / kolla@dv.is Umsjón: Jóhanna María Einarsdóttir / johanna@dv.is08. nóvember 2019

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.