Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 08.11.2019, Blaðsíða 60
60 FÓKUS - VIÐTAL 8. nóvember J ón Eyþór Gottskálksson skaust hratt upp á stjörnu­ himininn með þátttöku sinni í sjónvarpsþáttunum Allir geta dansað á síðasta ári. Nú stíg­ ur hann aftur á svið og segir þetta skemmtilegasta verkefni sem hann hefur tekið þátt í. Af nægu er að taka þegar dansferill Jóns Ey­ þórs er rifjaður upp en hann byrj­ aði í samkvæmisdönsum tíu ára. „Ég hef verið viðloðandi dans­ heiminn núna í tuttugu ár og náð góðum árangri sem keppnis­ dansari á mínum ferli en ég er margfaldur Íslands­ og bikar­ meistari í samkvæmisdönsum. Ég hef jafnframt keppt fyrir Ís­ lands hönd bæði á heims­ og Evrópumeistaramótum. Eftir að dansferlinum lauk flutti ég til Connecticut í Bandaríkjun­ um til að kenna dans í stúdíói í eitt og hálft ár. Ég var dansarinn hans Páls Óskars í fjórtán ár, svo það eru nánast allar líkur á því að þú hafir séð mig í glimmerpall­ íettugalla uppi á sviði eða á Gay pride­vagninum með honum. Ég hef unnið með gríðarlegum fjölda af tónlistar fólki á Íslandi í áraraðir og var því mjög spenntur að taka þátt í fyrstu seríunni af Allir geta dansað. Það var eitt skemmtileg­ asta verkefni sem ég hef tekið þátt í,“ segir Jón, sem hikaði ekki þegar hann fékk símtalið um þátttöku í nýrri seríu af dansþáttunum. „Þegar ég fékk símtalið um að það yrði önnur sería og ég í beinu framhaldi spurður hvort ég vildi taka þátt var ég strax mjög spenntur og auðvitað klár í slaginn. Í kjölfarið vorum við dansararnir boðaðir á fund og þar tilkynnt með hverjum við yrð­ um í þættinum. Þetta var í byrjun ágúst og þegar mér var tilkynnt að Manuela yrði dansdaman mín var ég vitanlega mjög spenntur. Hún er kraftmikil og áberandi kona, sem ég vissi að gæti í það minnsta gengið á hælum, því ekki vann hún Ungfrú Ísland í sandölum.“ Hún verður hvorki mér né sjálfri sér til skammar Sjálfur þekkti Jón Eyþór Manu­ elu ekki áður en æfingar hófust og vissi að eigin sögn lítið um hana annað en það að hún hefði verið fegurðardrottning einhvern tímann og væri í dag samfélags­ miðlastjarna. „Mamma er búin að þekkja hana síðan hún var krýnd Ungfrú Ísland árið 2002. Mæður okkar þekkjast síðan í barnaskóla en á þessum tíma átti mamma fata ­og skartgripabúðina Flex á Lauga­ veginum og Manuela fékk bæði kjól og skart frá henni til að taka með sér í Miss Universe­keppn­ ina hérna um árið.“ Spurður hvernig æfingar gangi segist Jón Eyþór hafa mikla trú á að samstarfið verði farsælt. „Við náðum strax mjög vel saman. Í upphafi ferlisins var hún á fullu að undirbúa Miss Uni­ verse Iceland­keppnina svo eðli­ lega fór mikill tími í það. Í beinu framhaldi hélt hún til Bandaríkj­ anna og var þar í tæpan mánuð að sinna keppninni. Ég byrjaði svo kennsluna nú nýverið þar sem ég fór yfir grunnatriðin í öll­ um dönsum til að undirbúa hana sem best fyrir þáttinn. Ef ég á að vera alveg hreinskilinn kom mér afskaplega á óvart hvað hún er tilbúin að leggja mikið á sig og hefur mikinn metnað fyrir þessu verk efni. Hún er að leggja sig alla fram í þetta. Ég hef mikla trú á henni og miðað við þetta litla sem við erum búin að gera, þá eigin­ lega leyfi ég mér að fullvissa þjóð­ ina um það að hún verður hvorki mér né sjálfri sér til skammar.“ Beraði bossann í einhverju gríni Fyrr í sumar ákvað Jón Eyþór að koma sér í besta form lífs síns. Fyrsta áskorunin var fjallganga. „Mig langaði að koma mér í form úti í náttúrunni. Ég hafði ekki stundað neina útivist að ráði en aðeins verið að „dangla“ mér í ræktinni. Þetta var svo gaman og frískandi að ég ákvað að setja mér markmið. Ég ræðst auðvit­ að ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og úr því varð til átakið „45 botnar á toppa á 90 dögum“. Ég beraði á mér bossann í ein­ hverju djóki því að ég hafði gert það með frænda fyrr á árinu á toppi austurrísku Alpanna þegar við vorum staddir þar í skíðaferð. Eftir það varð ekki aftur snúið. Það var helvíti strembið að fara í fjallgöngu annan hvern dag í þrjá mánuði en fyrst ég asnaðist til að pósta þessu þá gat ég ekki hætt í miðju átaki. Það kom tími í miðju átakinu þar sem mig langaði að gefast upp, en ég var mjög feginn að klára þetta. Það var heilmikill fjöldi fólks sem var mjög hrifið af þessu og það var sífellt verið að spyrja mig þegar ég rakst á vini og kunningja hvenær næsta bossa­ mynd kæmi. Ég tók svo reyndar eftir því að það fækkaði eitthvað fylgjendum í kjölfarið. En mér var nú eiginlega alveg sama um það því ég var að gera þetta fyrir sjálf­ an mig, ekki fylgjendur. Yfirmaður samfélagsmiðla, nýja dansdaman mín hún Manu­ ela, var sko ekki par sátt við þetta hjá mér svo ég hætti að pósta þessu annan hvern dag til að halda drottningunni góðri,“ segir Jón Eyþór og viðurkennir að hálf­ gerð sprenging hafi orðið á sam­ félagsmiðli hans eftir að í ljós kom við hvern hann dansaði. „Já, þegar Manuela tilkynnti að hún væri að taka þátt í þáttunum og að ég væri danspartnerinn henn­ ar þá kom smá sprengja í fjölgun Íris Hauksdóttir iris@dv.is Beraði bossann á 45 fjalls- tindum Jón Eyþór keppir í Allir geta dansað í annað sinn - Bossamyndirnar slógu í gegn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.