Dagblaðið Vísir - DV - 25.10.2019, Blaðsíða 18
18 25. október 2019FRÉTTIR
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR
& UNDIRKERFI
I
nnkaup og hvers kyns versl-
un hefur í auknum mæli færst
yfir á internetið undanfarin ár.
Nú er svo komið að jafnvel er
hægt að gera heimilisinnkaupin
úr sófanum heima hjá sér. Ótal
vefverslanir standa neytendum
nú til boða, bæði fjöldi íslenskra
síðna og svo heilt haf af erlend-
um verslunum. Í síðasta mánuði
greindi DV frá versluninni Ren-
max sem seldi ryksuguvélmenni á
meintum kostakjörum. Þá höfðu
áhyggjufullir viðskiptavinir versl-
unarinnar sett sig í samband við
DV vegna meintra svika. Renmax
var um ársgömul verslun en hafði
þegar þarna var komið lokað
heimasíðu sinni og hætt að svara
erindum viðskiptavina, sem enn
biðu þess að fá ryksugur afhent-
ar sem þeir höfðu þó greitt fyrir.
Þetta er engan veginn einangrað
tilfelli. Annað fyrirtæki hefur til
dæmis á um ári verið með þrjár
mismunandi Facebook-síður;
Frostvorur.is, Góðkaup og Heim-
ilisvörur, og hefur verið kvartað
yfir þeim öllum. Sendingar skila
sér illa eða alls ekki og erindum
svarað hægt eða alls ekki.
Hér hafa verið teknar saman
nokkrar viðmiðunarreglur sem
gott er að hafa í huga þegar versl-
að er af netinu til að minnka lík-
urnar á að sitja eftir með sárt
ennið.
1Hver er seljandinn?Áður en gengið er til kaupa á netinu þá áttu rétt á að fá að
vita hver það er sem er að selja
vöruna. Þetta geta verið upplýs-
ingar á borð við nafn og heimil-
isfang seljanda, en án slíkra upp-
lýsinga getur reynst erfitt að hafa
uppi á seljandanum til að kvarta
eða til að skila vöru. Einnig er gott
að venja sig á að slá versluninni,
eða seljandanum upp í leitarvél,
til dæmis Google eða jafnvel í leit-
arglugganum á Facebook. Þaðan
gætu fengist upplýsingar frá öðr-
um viðskiptavinum sem eftir at-
vikum gætu haft áhrif á ákvörðun
þína um að versla við þessa til-
teknu verslun eða seljanda.
2Má ég hætta við kaupin?Ef þú ert að versla við selj-anda sem er staðsettur á Ís-
landi eða öðru ríki með aðild að
evrópska efnahagssvæðinu þá
hefurðu rétt á að hætta við kaupin
innan 14 daga frá afhendingu og
fá endurgreitt að fullu. Þessi regla
byggir á því að þegar vara er keypt
á netinu þá hefur þú ekki fengið
tækifæri til að skoða hana fyrir-
fram. Hins vegar áttu ekki rétt á
að fá endursendingarkostnaðinn
endurgreiddan. Ef um sérpöntun
er að ræða, eða ef innsigli vör-
unnar hefur verið rofið, þá er eft-
ir atvikum ekki hægt að skila vör-
unni. Þessi regla á ekki við þegar
verslað er utan EES-svæðisins,
svo sem við verslun sem er stað-
sett í Kína eða í Bandaríkjunum.
3Hvar get ég fengið hjálp ef brotið er á rétti mínum?Fyrst og fremst getur þú haft
samband við seljandann sjálfan.
Stærri seljendur eru oft með sér-
staka starfsmenn, eða netföng
sem taka
við kvörtunum þar sem hvert er-
indi er metið út af fyrir sig út frá
söluskilmálum sem þú sam-
þykktir við kaupin. Hjá minni
seljendum er oft ekki fyrir slíkum
eyrnamerktum kvörtunarferlum
að fara og þá er best að snúa sér
beint til seljanda, með tölvupósti,
símleiðis eða þar fram eftir göt-
um. Ef sú leið ber ekki árangur þá
eru einnig aðrar leiðir sem gætu
verið þér færar.
Ef seljandi er íslenskur þá get-
ur þú snúið þér til Neytendasam-
takanna og fengið þaðan aðstoð
og/eða eftir atvikum ráðleggingar.
Neytendastofa hefur eftirlit
með viðskiptum í gegnum netið
á grundvelli laga um neytenda-
samninga.
Kærunefnd lausafjár- og þjón-
ustukaupa getur einnig gefið álit í
málum en þau eru ekki bindandi.
Ef þú telur erlendan seljanda
á netinu hafa brotið gegn rétti
þínum þá getur þú leitað til EEC
á Íslandi. Þaðan verður erindi
þitt áframsent til EEC-stöðvar í
heimalandi seljanda sem tekur
svo á málinu.
Ef þú borgaðir fyrir vöru með
kreditkorti en fékkst hana aldrei
afhenta þá getur þú haft sam-
band við kortafyrirtæki þitt. Slíkt
verður þú að gera innan þriggja
mánaða frá áætlaðri afhendingu.
Kortafyrirtækið fer þá í málið og
hefur samband við seljanda til
að kanna hvort varan hafi verið
send. Ef slík sönnun fæst ekki þá
bakfærir kortafyrirtækið greiðsl-
una. Eins ef þú hefur greitt fyrir
vöru með millilið á borð við Net-
gíró þá getur þú haft samband við
milliliðinn og eftir atvikum fengið
endurgreitt.
4Skoðaðu vefslóðinaTil að tryggja öryggi góðra netverslana er slóð þeirra
dulkóðuð. Slóðin byrjar þá á
https í staðinn fyrir http. Við hlið
slóðarinnar ætti að vera mynd af
læstum lás.
5Það kostar að fá vöru til Íslands frá útlöndumÍ erlendri vefverslun getur
lágt verk verið söluhvetjandi.
Síðan gætir þú orðið fyrir von-
brigðum þegar vara berst hing-
að til lands og þú þarft að greiða
af henni aukakostnað á borð við
virðisaukaskatt, toll, umsýslu-
gjald, sendingargjald, tollskýrslu-
gerð og svo framvegis. Til dæm-
is væri virðisaukaskatturinn af
sendingu sem kostaði 15.000
krónur 3.600 krónur. Síðan rukk-
ar Íslandspóstur 450 krónur í um-
sýslugjald, og 400–600 krónur
í sendingargjald. Ofan á þetta
getur bæst geymslugjald ef
sendingin er ekki sótt tímalega á
pósthúsið, kostnaður við að opna
pakkann og leita að reikningi í
sendingunni. Þarna eru þess-
ar 15 þúsund krónur orðnar að
um 20 þúsund krónum. Ágætt er
að miða við að lokaverð vörunn-
ar eftir að hún er hingað til lands
komin sé um 25–33 prósent-
um hærra en upprunalegt verð.
Ef varan er mjög ódýr þá getur
kostnaður við að fá hana afhenta
á Íslandi numið margföldu verði
hennar.
6Er ég virkilega að gera góð kaup? Nokkuð hefur borið á því
undanfarið að vefverslanir skjóti
upp kollinum og bjóði kostakjör
á gæðavörum. Við nánari skoðun
reynast gæðavörurnar vera pant-
aðar frá erlendum söluaðilum á
borð við AliExpress eða ebay á
aðeins broti af því „kostaboði“
sem þær bjóðast á hér heima. Eft-
irminnilegt var til dæmis í vet-
ur þegar DV greindi frá því að
áhrifavaldurinn Tanja Ýr Ástþórs-
dóttir, væri að selja glingur af Ali-
Express á uppsprengdu verði.
Neytendum er að sjálfsögðu
frjálst að ganga skammarlaust til
slíkra viðskipta, til dæmis ef þeim
þykir hentugra að skipta við milli-
lið og þeir eru tilbúnir til að borga
fyrir það aukagjald. Hins vegar er
alltaf best að ganga til viðskipta
með bæði augun opin, meðvitað-
ur um hvað maður er að kaupa. n
Viðskiptavinir Ren
max sátu eftir með
sárt ennið þegar fyrir
tækið hætti rekstri
án þess að standa við
skuldbindingar sínar
Tanja Ýr
seldi vörur
frá AliEx
press með
gífurlegri
álagningu.
Erla Dóra
erladora@dv.is
Varnaglar slegnir við vefverslun
DV gefur nokkur hagnýt ráð um viðskipti á netinu